Hagnaður Exista yfir væntingum 1. nóvember 2006 16:32
Fjármálaþjónustufyrirtækið Exista skilaði 27,6 milljörðum krónum í hagnað á þriðja fjórðungi ársins. Hagnaðurinn á fyrstu níu mánuðum ársins nam 24,3 milljörðum króna. Þetta er talsvert meira en greiningardeildir þriggja stærstu viðskiptabankanna gerðu ráð fyrir. Félagið skilaði rúmum 50 milljörðum króna á öllu síðasta ári. Exista hf., sem er með starfsemi hér á landi og í Bretlandi, starfar á sviði fjármálaþjónustu, einkum trygginga og eignaleigu, m.a. undir merkjum VÍS og Lýsingar og er kjölfestufjárfestir í nokkrum af stærstu fyrirtækjum landsins, þar á meðal Kaupþingi, Bakkavör Group og Símanum. Í tilkynningu frá Exista kemur fram að rekstrarhagnaður af starfsemi hafi numið 29 milljörðum króna á fyrstu 9 mánuðum ársins en 4,8 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi. Eigið fé nam 171 milljarði króna og var eiginfjárhlutfall 46 prósentum á þriðja ársfjórðungi. Arðsemi eigin fjár nam 25 prósentum á ársgrundvelli. Þá námu heildareignir félagsins 374 milljörðum króna. Í tilkynningunni er haft eftir Lýði Guðmundssyni, stjórnarformanni Exista, að fjórðungurinn hafi verið afar viðburðaríkur hjá Exista. „Hagnaður Exista á þriðja ársfjórðungi er vel viðunandi. Markmið okkar er að breikka og efla rekstrarstoðir félagsins enn frekar á næstu misserum," segir hann.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira