Bandarísk stjórnvöld segjast fullviss um að árangur af hernámi Íraks sé innan seilingar og að Írakar muni sjálfir geta séð um að halda uppi lögum og reglu í landinu innan nokkurra mánaða. Stór hluti bandarískra kjósenda segir að árangur í Írak ráði mestu um hverjum þeir greiði atkvæði sitt í þingkosningunum í næsta mánuði.
Eftir því sem liðið hefur á hernám Bandaríkjmanna og stuðningsmanna þeirra í Írak hefur stöðugt sigið á ógæfuhliðina. Fleiri bandarískir hermenn hafa fallið í átökum í þessum mánuði en í nokkrum öðrum til þessa og ekkert lát er á mannfalli saklausra borgara. Látið hefur verið að því liggja að stjórnvöld í Washington sé að missa móðinn enda mælist hernámið afar illa fyrir bandarískum almenningi, svo ekki sé minnst á írösku þjóðina.
Á fréttamannafundi í Bagdad í dag fullyrtu aftur á móti fulltrúar Bandaríkjastjórnar að þótt ástandið í Írak væri slæmt væri árangur innan seilingar. Zalmay Khalilzad, sendiherra Bandaríkjanna í Írak, sagði skilaboð sín skýr. Hann sagði árangur mögulegan í Írak þrátt fyrir erfið úrlausnarefni sem væru framundan. Hann sagði hægt að ná árangri og það með raunhæfum tímamörkum.
George Casey hershöfðingi telur að á næstu 12-18 mánuðum verði Írakar í stakk búnir til að sjá sjálfir um að halda uppi lögum og reglu. Enn væru þó ýmis ljón í veginum, til dæmis einkaherir trúarhópa og útsendarar al-Kaída í landinu en einnig slæmir nágrannar.
Casey minntist einnig á utan að komandi þætti - og ríki, þ.e. Íran og Sýrland. Þessi tvö ríki héldu áfram að tefja fyrir með því að styðja ýmsa öfgahópa og hryðjuverkasamtök sem störfuðu í Írak.
Mat þeirra félaga á stöðunni kann að litast meira af pólitísku andrúmslofti í Bandaríkjunum en af raunverulegu ástandi í Írak. Þingkosningar eru á næsta leiti og allt stefnir í að demókratar fái meirihluta í báðum deildunum. Ný skoðanakönnun ABC-sjónvarpsstöðvarinnar bendir til að óákveðnir kjósendur ætli að fylkja sér á bak við Demókrataflokkinn og að Íraksstríðið sé sá þáttur sem skiptir stóran hluta þeirra mestu máli. Það ríður því á fyrir núverandi valdhafa að láta að minnsta kosti líta út fyrir að bjartara sé framundan í Írak.