Kauphöll Íslands sameinast öðrum kauphöllum í Evrópu með tveggja mínútna þögn í viðskiptakerfinu í dag. Er þetta gert til að minnast þess að fimm ár eru liðin frá hryðjuverkaárásunum í Bandaríkjunum.
Þögnin hefst klukkan 11:00 og er samtímis í öllum kauphöllunum.