Vísitala fasteignaverðs hækkaði í júní 26. júlí 2006 16:52 Reykjavík.
Vísitala fasteignaverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 309 stig í síðasta mánuði en það er 0,6 prósenta hækkun frá maí, samkvæmt upplýsingum Fasteignamats ríkisins. Fasteignaverð hefur hækkað um 13,1 prósent síðastliðna 12 mánuði að jafnaði um 1 prósent undanfarið hálft ár. Hækkunin í júní er undir því meðaltali. Í Vegvísi greiningardeildar Landsbankans segir að hækkun íbúðaverðs í síðasta mánuði gefi til kynna að enn sé töluvert líf í fasteignamarkaðnum þótt hægt hafi á honum. Hækkunin í júní á mánaðargrundvelli samsvarar 7,4 prósenta hækkun fasteignaverðs á ársgrundvelli. Verð á sérbýli hækkaði um 1,3 prósent á milli mánaða í júní. Á sama tíma hækkaði verð á fjölbýli um 0,4 prósent, að sögn greiningardeildarinnar. Það sem af er ári hefur sérbýli hækkað talsvert meira í verði en fjölbýli, eða 10,2 prósent samanborið við 4,5 prósenta hækkun fjölbýlis. Greiningardeildin segir ljóst að innkoma bankanna á fasteignalánsfjármarkað og rýmri reglur um hámarkslán- og veðsetningu hafi gert almenningi kleift að fjárfesta í dýrara húsnæði. Það hafi hins vegar lyft upp verði á sérbýli. Megi greinilega sjá þetta á því að á síðastliðnum tveimur árum hafi verð á sérbýli hækkað um tæplega 77 prósent en verð á fjölbýli um 51 prósent á sama tíma.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Viðskipti innlent Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Neytendur Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Samstarf Hagkerfið allt í hættu Viðskipti innlent 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Viðskipti innlent Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Viðskipti erlent Jón Örn genginn í eigendahópinn Viðskipti innlent Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Neytendur Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Viðskipti innlent Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Neytendur Fleiri fréttir Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Bein útsending: Lokakeppni Gulleggsins 2026 Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Mikið í húfi ef ekki dregur úr verðbólgu og vaxtalækkun ekki í sjónmáli Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Verðbólga stendur í stað þvert á spár Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Festa kaup á hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Velta heilsulinda jókst töluvert Sjá meira