Eigendur Pennans kaupa hlut í AN Office 7. júní 2006 14:33 Kristinn Vilbergsson, forstjóri Pennans, ásamt Gunnari Dungal, fyrrum eigandi fyrirtækisins. Myndin var tekin þegar eigendaskipti á Pennanum voru kynnt. Mynd/GVA
Eigendur Pennans hafa fest kaup á 73 prósent hlut í lettneska rekstarvörufyrirtækinu AN Office, (Aigas Nams) sem er þriðja stærsta rekstrarfyrirtækið á Eystrasaltssvæðinu. Velta AN Office var um 1,5 milljarðar íslenskra króna á síðasta ári. Kristinn Vilbergsson, forstjóri Pennans, segir lykilstjórnendur AN Office í höfuðstöðvunum í Lettlandi taka þátt í yfirtökunni og halda áfram í sínum störfum hjá fyrirtækinu. Haft er eftir honum að fyrirtækið sé vel rekið og góður byrjunarreitur fyrir Pennan til að sækja inn á nýja markaði." Í tilkynningu frá Pennanum kemur fram að AN Office sé mjög vel þekkt fyrirtæki á sínu markaðssvæði og búi að breiðum og sterkum hópi viðskiptavina í atvinnulífinu í Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Fyrirtækið hefur um 150 birgja um alla Evrópu og munu sameiginleg innkaup og kaupsamningar Pennans og AN Office auka slagkraft beggja, þótt AN Office verði áfram rekið sem sjálfstæð eining. Rúmur þriðjungur af tekjum fyrirtækisins er frá sölu á netinu og fyrirtækið rekur auk þess verslanir og öflugar dreifingarmiðstöðvar í Eystrasaltslöndunum en meirihluti veltu fyrirtækisins er í Lettlandi, segir í tilkynningunni. Hér heima starfrækir Penninn verslanir víða um land, undir eigin nafni, auk Eymundssonar, Griffils og bókabúðar Máls og menningar við Laugaveg.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Viðskipti innlent Hagkerfið allt í hættu Viðskipti innlent Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Neytendur 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Viðskipti innlent Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Neytendur Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Samstarf Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Neytendur Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Viðskipti innlent Jón Örn genginn í eigendahópinn Viðskipti innlent Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Bein útsending: Lokakeppni Gulleggsins 2026 Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Mikið í húfi ef ekki dregur úr verðbólgu og vaxtalækkun ekki í sjónmáli Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Verðbólga stendur í stað þvert á spár Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Festa kaup á hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Velta heilsulinda jókst töluvert Sjá meira