Athyglin á hliðarmálunum 6. nóvember 2006 06:00 Kristjánsborgarhöll. Vel fór um Norðurlandaráðsþing í salarkynnum danska þjóðþingsins. Ljósmynd/Søren Svendsen/Norden.org MYND/Søren Svendsen/Norden.org
Málefnin sem voru á aðaldagskrá Norðurlandaráðsþings í Kaupmannahöfn í vikunni sem leið, svo sem hvernig norræna velferðarmódelinu reiddi af í hnattvæðingunni, vöktu minni athygli fjölmiðla en hliðarefni á borð við jafnréttismál í Færeyjum. Það breytti litlu um fjölmiðlaathyglina þótt bryddað hefði verið upp á þeirri nýjung að formleg dagskrá Norðurlandaráðsþings hæfist á svonefndum leiðtogafundi, þar sem ríkisstjórna- og stjórnarandstöðuleiðtogarnir kölluðust á um efnið „samkeppnishæfni Norðurlanda í hnattvæðingunni og norræna velferðarmódelið“.Samkeppnishæfni og velferðÍ sínu innleggi í þessum umræðum sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra að forgangsraða þurfi í norrænu samstarfi og leggja áherzlu á þau samstarfssvið sem sennilegust eru til að skila áþreifanlegum árangri, þar á meðal menntun, rannsóknir, nýsköpun og afnám hindrana í vegi frjálsra flutninga milli Norðurlanda. Geir sagðist sannfærður um að með þessum hætti gætu norrænu samstarfsstofnanirnar, Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin, stuðlað að því að bæta samkeppnishæfni Norðurlanda.amkeppnishæfni Norðurlandanna verður líka í brennidepli formennskudagskrár Finna í Norrænu ráðherranefndinni á árinu 2007. Í opnunarræðu sinni á Norðurlandaráðsþinginu lagði finnski forsætisráðherrann Matti Vanhanen jafnframt áherzlu á samhengi milli formennskudagskrár Finna í Evrópusambandinu og í Norrænu ráðherranefndinni. Finnar gegna formennskunni í ESB til áramóta. Samkeppnishæfnina vilja Finnar tryggja með tilstyrk eflds samstarfs á sviði rannsókna, þróunar og nýsköpunar; þetta sé til þess fallið að gera norræn fyrirtæki betur í stakk búin að mæta áskorunum hnattvæðingarinnar.Í umræðunni komu skýrt fram ólík sjónarmið vinstri- og hægrimanna gagnvart því hvernig bregðast skuli við áskorunum hnattvæðingarinnar. Nýi sænski forsætisráðherrann, Fredrik Reinfeldt, lagði til að stofnað yrði norrænt ráð um hnattvæðinguna, sem starfi með hliðstæðum ráðum í þjóðlöndunum. Bauðst hann til að leiða skipulagsstarf fyrir slíkt ráð. Hann lagði í máli sínu áherzlu á það sem hann kallar neikvæðar afleiðingar velferðarkerfisins, en það væri að of margir stæðu utan við atvinnulífið og væru þar með svo gott sem útilokaðir frá virkri þátttöku í samfélaginu. Fulltrúar vinstrisósíalista, svo sem Norðmaðurinn Jan-Henrik Frederiksen, tóku annan pól í hæðina. Að þeirra sögn verði Norðurlandaþjóðirnar að standa vörð um velferðarkerfin gegn áhrifum hnattvæðingarinnar. Steingrímur Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, spurði hvort það væri hinni nýju samkeppnismenningu að kenna að svo margir stæðu nú utan vinnumarkaðarins.Sænski jafnaðarmaðurinn Sven-Erik Österberg, fulltrúi sænsku stjórnarandstöðunnar í umræðunni, sagði norræna velferðarkerfið hafa veitt Norðurlandabúum öryggi sem hafi styrkt stöðu þeirra í hinni alþjóðlegu samkeppni.Siv Jensen, leiðtogi norska Framfaraflokksins, hrærði aðeins upp í umræðunni með því að tala máli einkavæðingar í umönnunarþjónustu. Hún sló því föstu að opinberi geirinn væri allt of stór á Norðurlöndunum og það stæði þeim fyrir þrifum í alþjóðasamkeppninni.Færeyjar í brennidepliEn eins og fyrr segir voru það frekar ýmis hliðarmál sem vöktu meiri athygli á þessu Norðurlandaráðsþingi. Allsnörp umræða varð um stöðu samkynhneigðra og jafnréttismála í Færeyjum.Í nýrri tölfræðihandbók Norðurlanda kemur meðal annars fram sláandi misræmi milli atvinnuþátttöku kvenna og hlutfalls þeirra á þingi. Þessi munur er langmestur í Færeyjum, þar sem yfir 88 prósent kvenna stunda atvinnu, en aðeins 12,5 prósent fulltrúa á færeyska Lögþinginu eru konur. Hvernig staðan er í þessum málum á öllum Norðurlöndunum má lesa betur út úr súluritunum hér á síðunni.Jógvan á Lakjuni, þingmaður íhaldsmanna á færeyska Lögþinginu og samstarfsráðherra Norðurlanda í færeysku landstjórninni, brást ókvæða við því að vakið væri máls á meintri mismunun samkynhneigðra í Færeyjum, en Rannveig Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, var ein þeirra sem það gerði. Honum fannst einnig að sér vegið þegar Jónína Bjartmarz, samstarfsráðherra Íslands, innti hann eftir því hvað færeysk yfirvöld hefðu aðhafst til að framfylgja vestnorrænni jafnréttisáætlun, sem samþykkt var árið 1999. Hann svaraði gagnrýninni með því að vísa til þess að tölfræðin sýndi aðrar mjög jákvæðar hliðar á færeysku samfélagi; til dæmis væru fóstureyðingar og hjónaskilnaðir hvergi færri.Óháð þessu lýstu margir þingfulltrúar, þar á meðal þeir íslenzku, yfir stuðningi við sjálfstæða aðild Færeyja og hinna norrænu sjálfstjórnarsvæðanna, Grænlands og Álandseyja, að Norðurlandaráði. Þjóðréttarleg atriði eru helzta hindrunin fyrir því að þetta gangi eftir.Finnar ósáttirAnnað mál sem talsverð fjölmiðlaumræða spannst um var hvernig staðið var að vali á næsta framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar. Finnum fannst greinilega freklega framhjá sínum manni gengið er forsætisráðherrarnir tilkynntu á þriðjudagsmorgun að þeir hefðu ákveðið að Íslendingurinn Halldór Ásgrímsson tæki við stöðunni er Svíinn Per Unckel lætur af henni um áramótin. Jan-Erik Enestam, sem er umhverfisráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda í finnsku ríkisstjórninni, hafði líka sótzt eftir stöðunni.Hann er einn fremsti stjórnmálamaður Finnlands-Svía, en það skýrir hvers vegna viðbrögðin við vali Halldórs skyldu vera mun harðari í sænskumælandi pressunni í Finnlandi en hinni finnskumælandi. Í Hufvudstadsbladet, elzta starfandi dagblaði Finnlands og helzta málgagni sænskumælandi minnihlutans, var Vanhanen forsætisráðherra sagður hafa látið undan „baktjalda-yfirgangi Íslendinga“, en viðlíka orðbragð var ekki að finna í Helsingin Sanomat eða öðrum helztu fjölmiðlum Finnlands. En í öllum finnskum miðlum var lýst áhyggjum af því að Finnar bæru skarðan hlut frá borði í norrænu samstarfi og ef áhugi þeirra á samstarfinu ætti ekki að minnka enn frekar en orðið er yrði að bæta úr þessu.Svo fór að lokum að á fundi menningarmálaráðherranna var ákveðið að nýrri norrænni menningarmálaskrifstofu, KulturkontaktNord, yrði fundinn staður í Sveaborg við Helsinki. Danir beittu sér fyrir því að þessi skrifstofa yrði í Kaupmannahöfn, og Íslendingar, Grænlendingar og Færeyingar höfðu óskað sér að hún yrði til húsa á sama stað og vestnorræna menningarmiðstöðin á Norðurbryggju.
Erlent Mest lesið Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Innlent Vaktin: Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Innlent „Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Innlent Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Innlent Hringvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Innlent Yfirgáfu salinn þegar Netanjahú hóf ræðu sína Erlent Gat ekki lengur lesið en sagði engum frá því Innlent Telja dagana frá síðasta innbroti Innlent Anna ljósa fallin frá Innlent Táningsstúlkur dæmdar fyrir að flytja inn efni sem var ekki bannað Innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi aðstoðarmaður forseta dæmdur fyrir njósnir Yfirgáfu salinn þegar Netanjahú hóf ræðu sína Tekinn af lífi fyrir að myrða stúlkubarn við „særingu“ Comey hvergi banginn þrátt fyrir ákæru Ekki hægt að staðfesta drónaflug við Álaborgarflugvöll Bandaríkjamenn sagðir vilja Tony Blair við stjórnvölinn á Gasa Segist ekki munu leyfa Ísrael að innlima Vesturbakkann Lofthelgi aftur lokað í Álaborg vegna drónaflugs James Comey ákærður vegna Rússarannsóknar Segir NATO og ESB hafa lýst yfir stríði við Rússland Boðar alla herforingjana á fordæmalausan skyndifund Enn lítið vitað um leyniskyttuna og tilefni árásarinnar í Dallas Hóta Demókrötum með umfangsmiklum uppsögnum Fimm ára fangelsi fyrir að taka við fúlgum fjár frá Gaddafi Keppast við að ákæra Comey Trump krefst rannsóknar á „þríþættu skemmdarverki“ hjá SÞ Drónaflug í Danmörku: „Fjölþáttaógnin er að raungerast“ Leikskóli heimtar tugi þúsunda fyrir „listaverk“ barnanna Ætlar sér að koma böndum á sjónvarpsstöðvar Macron telur Trump ekki fylgjandi innlimun Vesturbakkans Sést til dróna við fjóra flugvelli í Danmörku Flugvellinum í Álaborg lokað vegna drónaflugs Segja árásina hafa beinst gegn ICE Pútín auki einfaldlega stríðsreksturinn verði hann ekki stöðvaður Sprenging í Osló talin tengjast sænsku glæpagengi Þrír skotnir af leyniskyttu við byggingu ICE í Dallas Biðjast afsökunar á „svörtum kafla“ í sögu Danmerkur og Grænlands Kenna Trump-liðum um bæði rúllustigann og textavélina Ekki staðfest hvort það hafi verið drónar sem röskuðu flugumferð í Osló Ekki pappírstígur heldur alvöru björn Sjá meira