Áhugi á íslenskri list, bæði hér heima og heiman, virðist vera að aukast. Undanfarin misseri hafa íslensk listaverk selst sem aldrei fyrr og svo virðist sem mikill kraftur sé í framboði og eftirspurn. Áhugi Íslendinga á svokölluðum listaverkalánum, sem var samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Kauþings, gallería á höfuðborgarsvæðinu og listamanna, er til merkis um þetta. Svo mikil var eftirspurnin eftir þeim lánum að peningarnir sem lagðir voru í verkefnið voru uppurnir þegar árið var rétt hálfnað.
Fjölmörg íslensk fyrirtæki hafa í gegnum tíðina sankað að sér miklu magni listaverka. Nokkur dæmi eru um það að fyrirtæki vilji nú fríska upp á umhverfi sitt og geri það meðal annars með því að skipta verkum gömlu meistaranna út fyrir nýrri og ferskari list.
Einfaldleiki og forysta að leiðarljósi
Böðvar segir að með þessu móti sé einfaldlega verið að koma þessari eldri klassísku myndlist til þeirra sem hafa áhuga á henni. "Allt er þetta gert með fullri virðingu fyrir klassískri list. Þetta er bara spurningin um hvaða skilaboð við viljum senda. Við erum að skerpa frekar á léttleika og einfaldleika. Fyrir vörumerki skiptir svona lagað mjög miklu máli." tíu milljónir í listaverk á árinu

Nú í ár hefur Sjóvá þegar fjárfest, bæði í formi þess að kaupa verk og styrkja verkefni, fyrir um tíu milljónir króna í gegnum menningarsjóð sinn. Sjóvá hefur ekki bara verið að kaupa verk fyrir veggi eigin rýmis heldur var meðal annars einn af styrktaraðilum sýningarinnar Eilands í Gróttu í sumar. "Okkur þótti þetta áhugaverð hugmynd enda varð þetta ein mest sótta sýning á landinu í sumar. Samningur okkar gekk út á að styðja verkefnið en í framhaldi af því höfum við verið að kaupa verk af listamönnunum sem tóku þátt í því." Böðvar segir félagið rétt að byrja og það stefni að því að styðja áfram við samtímalist.
Tryggvi Páll Friðriksson, listmunasali og uppboðshaldari hjá Gallerí Fold, segist þekkja þess dæmi frá útlöndum að fyrirtæki stundi það að kaupa verk eftir unga listamenn og selja þau aftur þegar þeir verða þekktari og verðmæti verkanna eykst. Þetta segir hann óskandi að myndi gerast hér enda myndi það hafa afar hvetjandi áhrif á kaup og sölu listaverka. Hann telur aðgerðir Sjóvár að sama skapi jákvæðar, ekki síst ef fleiri fyrirtæki tækju sér þetta til fyrirmyndar. Hann telur þó ólíklegt að eigendur stórra safna listaverka á borð við bankana hafi nokkuð þessu líkt á prjónunum. Þeir hafi, að því er hann best veit, heldur áhuga á að efla safn sitt jafnt af yngri sem eldri verkum.
Sala heyrir til undantekninga
Listaverkasafn Landsbankans er hið stærsta í eigu og umsjón einkafyrirtækis á Íslandi. Upplýsingar þaðan styðja þessi orð Tryggva. Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfs Guðmundssonar, stjórnarformanns Landsbankans, segir það heyra til algerra undantekninga að bankinn selji verk í sinni eigu. "Það er skýr stefna Landsbankans að viðhalda listaverkasafni sínu. Það þýðir hvort tveggja að keypt eru ný verk í safnið og eldri verkum haldið við. Með listaverkasafni sínu vill bankinn halda til haga listasögu þjóðarinnar frá stofnun bankans."
Landsbankinn á um 1.500 listaverk frá hinum ýmsu tímabilum. Ásgeir segir erfitt að leggja mat á verðmæti þeirra þar sem markaðsverð einstakra listaverka er breytilegt. Þá sé ekki talin ástæða til að meta og endurmeta einstaka listaverk frá ári til árs.
Landsbankinn styður við samtímalistamenn með því annars vegar að kaupa verk þeirra og hins vegar með stuðningi við viðburði á þeirra vegum. Styður bankinn meðal annars við myndlistarhátíðina Sequences sem haldin er í Reykjavík um þessar mundir, listamannahús SÍM og hefur átt aðild að myndlistarverðlaunum Myndstefs, auk margvíslegs stuðnings við einstaka listamenn og verkefni á þeirra vegum. Að sögn Ásgeirs hefur Landsbankinn aukið verulega stuðning sinn við samtímalist á síðustu árum og muni vafalaust auka hann frekar á næstu árum.
Kaupþing á líka stórt safn listaverka eins og þekkt er. Þær upplýsingar fengust hjá Benedikt Sigurðssyni, blaðafulltrúa Kaupþings, að engar áætlanir séu uppi um að selja eitthvað af þeim fjölda verka sem bankinn á. Bankinn álíti það eitt af hlutverkum sínum að styðja við íslenska menningu og undanfarin ár hafi hann heldur verið að auka við kaup af verkum samtímalistamanna. "Við eigum mikið af verkum eftir eldri listamenn en líka töluvert eftir nýja. Hve mikið liggur ekki fyrir eða hvert verðmætið er, annað en að þetta er töluvert safn."
Mikið framboð og eftirspurn