Viðskipti

Bein útsending: Samál boðar sókn í loftslagsmálum
Útflutningstekjur álvera á Íslandi námu 208 milljörðum í fyrra og þar af nam innlendur kostnaður 93 milljörðum, að því er fram kemur á ársfundi Samáls í dag.

Bein útsending: Með allt í fanginu - hegðun viðskiptavina stórmarkaða
Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskiptadeild, flytur þriðjudagsfyrirlestur HR og Vísis um kauphegðun. Fyrirlesturinn hefst klukkan 12.

Högnuðust um 2,52 milljarða á metári hjá Bónus og Hagkaup
Vöxtur var í veltu hjá Bónus, Hagkaup, Útilíf og Zara síðastliðið ár og áttu matvörukeðjurnar sín stærstu rekstrarár frá upphafi. Smásölukeðjan Hagar hagnaðist um 2,52 milljarða króna á síðasta rekstrarári en félagið hagnaðist um 3,05 milljarða króna rekstrarárið á undan.

Sex sinnum fleiri brottfarir erlendra farþega í apríl
Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 5.800 í aprílmánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Eru það sex sinnum fleiri brottfarir en í apríl 2020, þegar brottfarir voru tæplega eitt þúsund.

Þóra fer frá Icelandair yfir til Play
Þóra Eggertsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play. Mun hún bera ábyrgð á að byggja upp fjármálasvið flugfélagsins sem og að leiða skráningu Play á Nasdaq First North Iceland markaðinn.

Segir búið að „dauðadæma Vefjuna“ vegna ummæla Reynis
Sólveig Ýr Sigurjónsdóttir, annar eigandi veitingastaðarins Vefjunnar, segir fólk búið að dauðadæma fyrirtækið vegna ummæla sem Reynir Bergmann, hinn eigandi Vefjunnar og barnsfaðir hennar, lét falla fyrir helgi um mál Sölva Tryggvasonar fjölmiðlamanns.

Búast ekki við að anna eftirspurn út 2022
Forsvarsmenn Sony vöruðu nýverið hóp greinenda við því að fyrirtækið myndi ekki anna eftirspurn eftir PlayStation 5 út árið 2022. Vandræðin má bæði rekja til mikillar eftirspurnar og skorts, meðal annars á hálfleiðurum.

Mikill áhugi á Svansvottuðum íbúðum
Fyrstu Svansvottuðu fjölbýlishúsin á íslenskum markaði eru risin í Urriðaholti.

Maríjon snýr aftur í einkageirann
Maríjon Ósk Nóadóttir hefur verið ráðin til almannatengslafyrirtækisins Kvis og kemur til með að sinna fjölmiðla- og lögfræðiráðgjöf hjá fyrirtækinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kvis.

Vilja ná sömu dreifingu um heiminn og Covid-19
„Það er ekki hægt að verða stærri en stærsti fiskurinn í sjónum nema vera með góðan grunn og okkur hefur nú þegar tekist að sanna að fólk vill nota vöruna. Það sem þarf hins vegar að gerast núna er varan þarf að sanna sig á mörkuðum utan landsteinanna og hún þarf að geta dreift sér sjálf, manna á milli, nokkurn veginn eins og kórónuveiran,“ segir Ásgeir Vísir, einn eigenda Smitten stefnumótaappsins sem kynnt var til sögunnar laust fyrir síðustu jól.

Íslendingar berjast um nýja staðsetningarflögu Apple
Tæknirisinn Apple setti í mánuðinum nýja vöru á markað, Apple AirTag.

„Vigdís Finnbogadóttir kom til okkar strax á fyrsta ári“
„Við vorum búnir að hugsa fyrir öllu. Matseðilinn, andrúmsloft staðarins, staðsetninguna og þann viðskiptavinahóp sem við vildum ná til. Draumurinn var að fá Frú Vigdísi Finnbogadóttur til okkar, því ef hún kæmi væri það staðfesting á því að við værum að búa til góðan stað,“ segir Jakob Jakobsson þegar hann rifjar upp stofnun Jómfrúarinnar árið 1996. „Vigdís var líka hetjan okkar. Hún hafði farið fram gegn karlaveldinu, ekkert ólíkt okkur sjálfum,“ segir Jakob og bætir við: „Og þetta tókst því Vigdís Finnbogadóttir kom til okkar strax á fyrsta ári.“

Eitt sinn alltaf dragúldinn á morgnana, sérstaklega á mánudögum
Þórarinn Ævarsson segist ekki vita hvort hann eigi að titla sig sem framkvæmdastjóri, pizzubakara eða Spaðakónginn því allir eiga þessir titlar við. Þórarinn er fréttafíkill sem eitt sinn vaknaði alltaf sem dragúldinn B-týpa á morgnana. En nú er öldin önnur því í dag vaknar Þórarinn um áttaleytið og sendir uppúr því lykilstarfsmönnum sínum hrós og ábendingar.

180 fermetra skjár frumsýndur á rafíþróttamóti í Laugardalshöll
Tæknifyrirtækin Luxor og SmartSignage hafa fest kaup á 180 fermetra risaskjá sem notaður verður í fyrsta skipti á rafíþróttamóti sem fer nú fram í Laugardalshöll.

Seldi í Marel fyrir 168 milljónir króna
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, hefur selt 190.000 hluti í félaginu á genginu 885 krónur á hlut og nemur salan því 168,2 milljónum króna.

Sigurður nýr forstöðumaður hjá Landsvirkjun
Sigurður Markússon hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns nýsköpunardeildar á Viðskiptaþróunar- og nýsköpunarsviði Landsvirkjunar.

Fimm ráðin til Arnarlax
Arnarlax ráðið þau Jón Garðar Jörundsson, Kjersti Haugen, Johnny Indergård, Hjörtur Methúsalemsson og Rúnar Inga Pétursson til starfa innan félagsins.

Fjölmiðlastyrkirnir afgreiddir með breytingartillögum
Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar hefur skilað áliti sínu á fjölmiðlafrumvarpi menntamálaráðherra. Lagt er til að umsóknarfrestur verði til 31. maí og lögin taki þegar gildi.

35 prósent starfsfólks á Íslandi í basli með líf sitt
„Einna áhugaverðast er að rannsóknir tengdar bókinni styðja það enn og aftur að ein áhrifaríkasta leiðin til skapa heilbrigt starfsumhverfi og hafa jákvæð áhrif á starfsfólk er að gefa fólki tækifæri til að vaxa og nýta styrkleika sína í starfi, að sinna verkefnum sem því fellur vel að inna af hendi og hæfileikar þess nýtast,“ segir Marta Gall Jörgensen sérfræðingur hjá Gallup um nýútkomna bók, Wellbeing at Work: How to Build Resilient and Thriving Teams, eftir Jim Clifton stjórnarformann og framkvæmdastjóra Gallup á heimsvísu og Jim Harter, yfirrannsóknarstjóra.

Vegan lasagna innkallað vegna skorts á hveitimerkingu
Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir hveiti við Vegan lasagna frá PreppUp sem Mealprep ehf. framleiðir.

Afkoma þriggja banka 24 milljörðum betri en á sama tíma í fyrra
Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn hafa nú allir skilað uppgjöri fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins. Samanlagður hagnaður þeirra er 17,2 milljarðar króna samanborið við sjö milljarða tap á sama tíma í fyrra. Landsbankinn skilar mestum hagnaði eða 7,6 milljörðum, Arion banki 6 milljörðum og Íslandsbanki 3,6 milljörðum króna.

Grjótharður KR-ingur verður framkvæmdastjóri hjá Play
Georg Haraldsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs flugfélagsins Play. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu þar sem segir að hann taki til starfa á næstu vikum.

Óli Jóns kominn yfir til Birtingahússins
Ólafur Jónsson hefur verið ráðinn til Birtingahússins þar sem hann mun sinna ráðgjöf og þróunarvinnu í tengslum við netmarkaðsmál fyrir viðskiptavini félagsins.

Fyrsta íslenska fyrirtækið til að fá Alþjóðlegu líftækniverðlaunin
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Algalíf hefur hlotið Alþjóðlegu líftækniverðlaunin 2021 (e. Biotechnology Awards) sem besti framleiðandi á afurðum úr náttúrulegu astaxanthíni.

ÍAV vilja fá 3,8 milljarða eftir að þeim var úthýst á Kirkjusandi
Íslenskir aðalverktakar (ÍAV) fara fram á að 105 Miðborg slhf. og Íslandssjóðir hf. greiði félaginu 3,8 milljarða króna í tengslum við deilur um uppbyggingu á svokölluðum Kirkjusandsreit.

Kristín Hrefna til Origo
Kristín Hrefna Halldórsdóttir hefur verið ráðin til Origo þess að leiða teymi gæðalausna hjá fyrirtækinu.

Ingibjörg til liðs við KOM
Ingibjörg Hjálmfríðardóttir hefur verið ráðin til KOM sem verkefnastjóri hjá nýrri ráðstefnudeild KOM ráðgjafar.

Bein útsending: Kynning vegna hlutafjárútboðs Síldarvinnslunnar
Kynningarfundur um hlutafjárútboð Síldarvinnslunnar hf. verður haldinn í Silfurbergi í Hörpu í dag klukkan 8:30.

Alcoa sendir fólk utan í nám
„Þó að stór hluti starfseminnar séu framleiðslustörf þá krefst starfsemin fjölbreyttra þekkingar og menntunar á fjölmörgum fagsviðum. Sum þeirra eru kennd í okkar háskólum hér á landi en önnur höfum við þurft að sækja erlendis, til dæmis til Noregs og Bretlands. Að auki þjálfum við okkar starfmenn reglulega innan fyrirtækisins,“ segir Ásgrímur Sigurðsson, framkvæmdastjóri viðhalds og áreiðanleika hjá Fjarðaráli.

Íslandsbanki hagnaðist um 3,6 milljarða á fyrsta ársfjórðungi
Íslandsbanki hagnaðist um 3,6 milljarða á fyrsta ársfjórðungi 2021 og arðsemi eigin fjár var 7,7 prósent. á sama fjórðungi árið 2020 tapaði bankinn 1,4 milljarði og arðsemi eigin fjár var neikvæð um þrjú prósent.