Viðskipti erlent

Flugfélagið Air Berlin gjaldþrota
Flugfélagið mun fá lán til að geta haldið starfseminni áfram tímabundið.

Álverð gæti hækkað á næstunni
Heimsmarkaðsverð á áli hefur ekki verið jafn hátt síðan í nóvember 2014.

Soundcloud rambaði á barmi þrots
Hlutafjáraukning bjargaði tónlistarveitunni Soundcloud frá þroti á síðustu stundu.

Hlutabréf í Snapchat í sögulegri lægð
Gengi Snap er nú um 12 dollarar en var 17 dollarar þegar félagið var skráð á markað í mars síðastliðnum.

Snap. Inc. í frjálsu falli
Uppgjör annars ársfjörðungs Snap Inc,. sem á samfélagsmiðlafyrirtækið Snapchat, olli vonbrigðum.

Padda missir starfið hjá Lego
Búið er að finna fullkominn eftirmann framkvæmdastjórans.

Legoland færir út kvíarnar
Rekstrarhagnaður af Lego-skemmtigörðunum nam 700 milljónum danskra króna á fyrri hluta ársins. Það jafngildir átta milljörðum íslenskra.

Dollarinn tekið dýfu í forsetatíð Donalds Trump
Á miðvikudaginn náði dollarinn fimmtán mánaða lægð samtímis því að Dow Jones hlutabréfavísitalan náði methæð.

Tekjur Teslu meira en tvöfölduðust á milli ára
Tekjur rafbílaframleiðandans Teslu námu 2,8 milljörðum Bandaríkjadala, sem jafngildir 290 milljörðum íslenskra króna, á öðrum fjórðungi ársins og meira en tvöfölduðust á milli ára.

Áhyggjur af áhrifum Brexit
Seðlabankastjóri Bretlands, Mark Carney, varaði við því í gær að óvissa vegna væntanlegrar úrgöngu ríkisins úr Evrópusambandinu væri nú þegar farin að hafa alvarleg áhrif á efnahag ríkisins. Lét Carney þau ummæli falla í kjölfar þess að seðlabankinn lækkaði hagvaxtarspár sínar.

Hundar ástæða íbúðakaupa hjá ungu fólki
Time greinir frá því að ný könnun SunTrust Mortgage sýni að þriðjungur þeirra sem tilheyra þúsaldarkynslóðinni og keyptu nýverið fyrsta heimili sitt hafi gert það vegna hunda sinna. Fleiri nefna hund sem ástæðu íbúðakaupa en hjónaband eða barneignir.

Atvinnuleysi minnkar í evrulöndum
Atvinnuleysi er þó enn mikið á Grikklandi, 21,7 prósent og á Spáni,17,1 prósent.

Dow Jones nær methæðum
Dow Jones hlutabréfavísitalan hefur farið yfir 22 þúsund stig í fyrsta sinn.

Fjársvikamál Shkreli lagt í dóm
Hataðasti maður internetsins, Martin Shkreli, bíður nú dóms í fjársvikamáli. Hann gæti átt yfir höfði sér fangelsisvist verði hann fundinn sekur.

Bezos tekur fram úr Gates sem ríkasti maður heims
Jeff Bezos, stofnandi Amazon, er nú ríkari en Bill Gates, stofnandi Microsoft, eftir að hlutabréf í netversluninni tóku kipp í morgun.

Paint verður áfram til staðar
Microsoft er hætt við að henda MS Paint eftir að mikil sorg braust út á samfélagsmiðlum. Forritið verður áfram aðgengilegt ókeypis í vefverslun Windows þó að það verði ekki hluti af nýjum uppfærslum á Windows 10-stýrikerfinu.

Viðsnúningur hjá Grikkjum
Grísk stjórnvöld hafa áform um að sækja sér fé á alþjóðlegum fjármálamörkuðum í fyrsta sinn í meira en þrjú ár. Þau hafa ráðið sex banka til þess að sjá um skuldabréfaútgáfuna, en gefin verða út skuldabréf til fimm ára.

Microsoft eyðir Paint
Microsoft stefnir að því að eyða forritinu Paint í næstu uppfærslu á stýrikerfinu Windows 10.

AGS spáir minni hagvexti á Bretlandi og í Bandaríkjunum
Minni umsvif á fyrsta ársfjórðungi eru ástæða þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur lækkað hagvaxtarspá sína fyrir Bretland og Bandaríkin á þessu ári.

Notendur Netflix yfir 100 milljónir
Samkvæmt nýjum tölum frá Netflix eru notendur þjónustunnar núna 104 milljónir. BBC greinir frá því að fyrirtækið reki fjölgun áskrifenda til fjárfestingar í nýjum þáttum og kvikmyndum.

Google "Facebook-væðir“ viðmót sitt
Fréttaveitan mun til að mynda birta fréttir, myndbönd og tónlist sem allt verður sérvalið á grundvelli leitarorða sem viðkomandi notandendur hafa áður slegið inn í leitarvélina

Ný Tinder-uppfærsla gerir notendum kleift að sjá fyrir fram hverjir „svæpa“ til hægri
Tinder býður notendum að sjá lista yfir fólk sem hefur rennt til þeirra hýru auga í smáforritinu, áður en notendurnir gera sjálfir upp hug sinn. Aðeins verður þó boðið upp á uppfærsluna gegn greiðslu.

Fjárfestar óttast slæmt gengi Snapchat
Skráning móðurfélags samfélagsmiðilsins Snapchat á markað var ein stærsta hlutabréfafrétt í Bandaríkjunum á þessu ári.

Hugsanaflutningur mögulegur fyrr en okkur grunar
Stofnandi fyrirtækisins Openwater segir að eftir um 8 ár geti fólk lesið og skipst á hugsunum.

Microsoft segir upp þúsundum starfsmanna
Sölumenn Microsoft, aðallega utan Bandaríkjanna, byrjuðu að fá uppsagnarbréf í hendur í dag. Hugbúnaðarrisinn stefnir að því að breyta því hvernig það selur vörur sínar.

Frakkar munu banna alla bensín- og dísilbíla fyrir 2040
Umhverfisráðherra Frakklands kynnti í dag nýja aðgerðaáætlun franskra stjórnvalda sem miðar að því að gera landið kolefnishlutlaust fyrir árið 2050.

ESB og Japan ná saman um fríverslunarsamning
Evrópusambandið og Japan hafa náð saman um fríverslunarsamning eftir um fjögurra ára samningaviðræður.

Ítalska ríkið tekur yfir elsta banka í heimi
Ítalska ríkið tók í dag formlega yfir þriðja stærsta banka Ítalíu, Monte dei Paschi di Siena.

Framkvæmdastjóri Fox Sports rekinn
Jamie Horowitz, framkvæmdastjóri Fox Sports, hefur verið látinn taka poka sinn.

Ódýrari útgáfa af Teslu væntanleg á föstudag
Fyrstu eintökin af Model 3-rafbílnum frá Teslu koma úr verksmiðjunni á föstudag og í hendur eigenda sinna fyrir mánaðamót, að sögn Elons Musk, forstjóra rafbílaframleiðandans.