Viðskipti erlent
Öryggisnetið er komið á Evrusvæðinu en ekki aginn Viðskipti erlent 19.1.2012 09:40 Kodak sækir um greiðslustöðvun Eastman Kodak, fyrirtækið sem fann upp myndavélar eins og þær eru í núverandi mynd, hefur sótt um greiðslustöðvun. Það þýðir að lánadrottnar fyrirtækisins geta ekki sótt um að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta. Fyrirtækið mun því fá gálgafrest til þess að endurskipuleggja fjárhag sinn. BBC fréttastofan segir að fyrirtækið sé hætt, í það minnsta um stundarsakir, að þróa myndavélar og er nú mest í framleiðslu á tölvuprenturum. Fyrirtækið hefur átt í mestu erfiðleikum með að halda í við samkeppnisaðila um að þróa starfræna tækni. Viðskipti erlent 19.1.2012 09:31 Tveir evrópskir stórbankar á hættusvæði Tveir evrópskir stórbankar eru á hættusvæði og talið að þeir nái ekki að uppfylla nýjar reglur um 9% lágmark á eiginfjárhlutfalli evrópskra banka sem tekur gildi á morgun, föstudag, án þess að viðkomandi stjórnvöld dæli í þá fé. Viðskipti erlent 19.1.2012 09:04 Lokað vegna mótmæla Áform Bandaríkjaþings um að tryggja hugverkarétt á netinu gagnrýnd fyrir að ganga of langt. Bandaríkjaforseti hefur tekið undir gagnrýnina. Viðskipti erlent 19.1.2012 08:00 Borgin Detroit á leiðinni í gjaldþrot Góðar líkur eru á að borgin Detroit í Bandaríkjunum lýsi sig gjaldþrota. Ef svo fer verður þetta stærsta borgin í sögu Bandaríkjanna sem fer þá leið. Viðskipti erlent 19.1.2012 07:17 Fulltúrar G20 ræða beiðni AGS um 600 milljarða dollara Fulltrúar G20 landanna hittast í Mexíkó í dag en þar á að ræða beiðni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) um að auk útlánagetu sjóðsins um 600 milljarða dollara. Viðskipti erlent 19.1.2012 06:48 « ‹ 192 193 194 195 196 197 198 199 200 … 334 ›
Gullæði runnið á hóteleigendur í Úkraníu Gullæði er runnið á eigendur hótela og gistihúsa í borgunum Kharkiv og Lviv í Úkraníu þar sem Evrópumeistaramótið í fótbolta fer fram í sumar. Dæmi eru um 4.700% hækkun á gistinóttum. Viðskipti erlent 24.1.2012 07:48
Statoil styrkir sig við Grænland Norski olíurisinn Statoil, þar sem norska ríkið fer með tæplega 70% hlutafjár, hefur keypt 30% hlut í félagi sem hefur leyfi til olíurannsókna við Grænlandsstrendur af Cairn Energy. Frá þessu greint á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC í dag. Viðskipti erlent 23.1.2012 15:24
Lagarde: Verður að afstýra annarri mikilli kreppu Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir að heimurinn standi nú frammi fyrir því að aðgerðir til þess að hindra svipað ástand og skapaðist í kringum 1930, þegar kreppan mikla skall á, verði að veruleika. Viðskipti erlent 23.1.2012 12:29
Vaxandi spenna vegna vanda Grikkja Vaxandi spennu gætir nú meðal þjóðarleiðtoga Evrulandanna vegna efnahagsvanda Grikklands. Fyrirsjáanlegt þykir að Grikkir geti ekki staðið við skuldbindingar sínar í mars næstkomandi þegar 14,4 milljarða evra, tæplega 2.300 milljarðar króna, falla á gjalddaga. Viðskipti erlent 23.1.2012 11:58
Mikill áhugi á olíuleit við Austur-Grænland Grænlensk stjórnvöld hafa boðið út olíuleit við Austur-Grænland en þetta er í fyrsta sinn sem opnað er á olíuleit við austurströnd þessa næsta nágrannalands Íslands. Mikill áhugi er á útboðinu og mættu 70 olíufyrirtæki á kynningarfund Grænlendinga í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði. Viðskipti erlent 23.1.2012 10:48
Framkvæmdastjórar RIM víkja Research In Motion, framleiðandi Blackberry snjallsímanna, tilkynnti í dag að framkvæmdastjórar fyrirtækisins muni víkja á næstu dögum. Fyrirtækið hefur átt afar erfitt uppdráttar í samkeppni við Apple og Google. Viðskipti erlent 23.1.2012 10:04
Ólíklegt að tilboð upp á 1,5 milljarða punda berist í Iceland Vonir fara nú dvínandi um að skilanefndir Landsbankans og Glitnis fái þann einn og hálfan milljarða punda sem þær vilja fyrir Iceland Foods verslunarkeðjuna. Viðskipti erlent 23.1.2012 08:13
Nauðsynlegt að endurskipuleggja Seðlabanka Evrópu Markus C. Kerber, einn virtasti prófessor TU háskólans í Berlín, segir helsta vandamálið í Evrópu snúa að Seðlabanka Evrópu, fremur en evrunni sem slíkri. Nauðsynlegt sé að endurskipuleggja hann. Viðskipti erlent 23.1.2012 08:00
Ljótustu skórnir seljast eins og heitar lummur Ljótustu skór í heimi seljast eins og heitar lummur. Þetta eru crocs skór sem gerðir eru í plasti í mjög skærum litum. Viðskipti erlent 23.1.2012 07:26
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar töluvert Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað töluvert frá því fyrir helgina. Bandarísk léttolían hefur lækkað um 2% og er komin niður í 98 dollara á tunnuna, Brentolían er komin niður í 110 dollara á tunnuna að nýju og hefur lækkað um rúmt prósent. Viðskipti erlent 23.1.2012 07:05
Kína reiðir sig 175,6% á Bandaríkin Gordon Chang, sérfræðingur viðskiptatímaritsins Forbes í málefnum Kína og Asíu, segir að nýjustu tölur um vöruskiptajöfnuð Kína sýna að samband landsins við Bandaríkin sé að verða enn nánara en áður. Viðskipti erlent 23.1.2012 01:39
Besti janúarmánuður í fimmtán ár Það er útlit fyrir að þessi mánuður verði besti janúarmánuður í Kauphöllinni á Wall Street síðustu fimmtán árin. Óstöðugleikinn hefur ekki verið minni á markaðnum síðan í júlí síðastliðnum. Viðskipti erlent 21.1.2012 14:34
Yfir 800 milljarða hagnaður á þremur mánuðum Hagnaður Microsoft, stærsta hugbúnaðarfyrirtækis í heimi, nam 6,64 milljörðum dollara á síðustu þremur mánuðum síðasta árs, eða sem nemur 823 milljörðum króna. Það er örlítil hagnaðarminnkun frá sama tímabili ársins á undan. Viðskipti erlent 20.1.2012 17:56
Obama: Skiljanlegt að hægri og vinstri menn berjist gegn Wall Street Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir að árangur í efnahagsmálum sé ótvíræður en slakinn í efnahagslífinu sé áhyggjuefni. Hann segir mótmælin Occupy Wall Street eigi sér bæði fylgismenn vinstra og hægra megin, og það sé skiljanlegt. Viðskipti erlent 20.1.2012 09:53
Danska bankahrunið að verða stærra en það íslenska Ef einn danskur banki, eða sparisjóður, í viðbót kemst í þrot í Danmörku er danska bankahrunið orðið meira en það íslenska. Þetta kemur fram í umfjöllun danska viðskiptaritsins Ugebrevet A4. Þegar hafa 10 danskir bankar fallið frá hruninu haustið 2008. Viðskipti erlent 20.1.2012 09:04
Skattsvik og fúsk kosta ríkissjóð Dana 150 milljarða á ári Skattsvik danskra fyrirtækja eða mistök þeirra í gerð skattframtala eru talin kosta ríkissjóð landsins um 7 milljarða danskra króna eða um 150 milljarða króna á hverju ári. Viðskipti erlent 20.1.2012 07:59
Allir starfsmenn IKEA í heiminum fá bónus Ingvar Kamprad stofnandi og aðaleigandi IKEA verslunarkeðjunnar segir að allir 126.000 starfsmenn IKEA í heiminum, þar á meðal á Íslandi, eigi að fá bónusa í samræmi við árangur keðjunnar. Viðskipti erlent 20.1.2012 07:39
Einn þingmaður tók Warren Buffett á orðinu Ofurfjárfesturinn Warren Buffett skoraði nýlega á þingmenn Repúblikanaflokksins að gefa hluta af launum sínum í ríkissjóð til að styrkja afleita stöðu sjóðsins. Buffett myndi leggja fram sömu upphæð sjálfur. Einn þeirra tók Buffett strax á orðinu. Viðskipti erlent 20.1.2012 07:06
Markaðir einkenndust af grænum tölum Hlutabréfamarkaðir einkenndust víðast hvar af grænum tölum í dag. Hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum hækkuðu á bilinu 1 til 2 prósent, þar af nam hækkun Nasdaq vísitölunnar 0,67 prósentum. Viðskipti erlent 19.1.2012 21:25
Mótmæli Facebook máttlaus - afhverju loka þeir ekki síðunni í einn dag? Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, birti í gær yfirlýsingu á vefsvæði sínu þar sem hann lýsti andstöðu sinni á tveimur frumvörpum sem eiga að tryggja hugverkarétt á netinu. Viðskipti erlent 19.1.2012 20:30
eBay með methagnað fyrir jól í fyrra Netfyrirtækið eBay skilaði methagnaði á síðustu þremur mánuðum síðasta árs. Heildartekjurnar á fyrrnefndu tímabili námu tæplega tveimur milljörðum dollara, tæplega 260 milljörðum króna, samanborið við 559 milljónir dollara tekjur árið undan, eða sem nemur tæplega 72 milljörðum króna. Tekjurnar því meira en þrefölduðust. Viðskipti erlent 19.1.2012 14:10
4,5 milljónir mótmæltu SOPA hjá Google Tölvurisinn Google segir að fjórar og hálf milljón manna hafi skrifað undir áskorun til þingmanna á Bandaríkjaþingi þess efnis að komið verði í veg fyrir að tvö frumvörp sem tryggja eiga hugverkarétt á Netinu verði samþykkt. Viðskipti erlent 19.1.2012 13:51
Góð sala á ríkisskuldabfréfum hjá Frökkum og Spánverjum Mikil eftirspurn var eftir frönskum og spænskum ríkisskuldabréfum í morgun og lækkaði ávöxtunarkrafa þeirra í flestum tilvika. Viðskipti erlent 19.1.2012 11:01
Indverjar tvöfalda tolla á innflutningi á gulli og silfri Stjórnvöld á Indlandi hafa ákveðið að hækka innflutningstolla á gulli um 90% og á silfri um 100%. Þar sem Indland er annar stærsti innflytjandi heimsins á gulli er talið að þetta muni hafa áhrif til lækkunnar á heimsmarkaðsverði þess. Viðskipti erlent 19.1.2012 09:52
Kodak sækir um greiðslustöðvun Eastman Kodak, fyrirtækið sem fann upp myndavélar eins og þær eru í núverandi mynd, hefur sótt um greiðslustöðvun. Það þýðir að lánadrottnar fyrirtækisins geta ekki sótt um að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta. Fyrirtækið mun því fá gálgafrest til þess að endurskipuleggja fjárhag sinn. BBC fréttastofan segir að fyrirtækið sé hætt, í það minnsta um stundarsakir, að þróa myndavélar og er nú mest í framleiðslu á tölvuprenturum. Fyrirtækið hefur átt í mestu erfiðleikum með að halda í við samkeppnisaðila um að þróa starfræna tækni. Viðskipti erlent 19.1.2012 09:31
Tveir evrópskir stórbankar á hættusvæði Tveir evrópskir stórbankar eru á hættusvæði og talið að þeir nái ekki að uppfylla nýjar reglur um 9% lágmark á eiginfjárhlutfalli evrópskra banka sem tekur gildi á morgun, föstudag, án þess að viðkomandi stjórnvöld dæli í þá fé. Viðskipti erlent 19.1.2012 09:04
Lokað vegna mótmæla Áform Bandaríkjaþings um að tryggja hugverkarétt á netinu gagnrýnd fyrir að ganga of langt. Bandaríkjaforseti hefur tekið undir gagnrýnina. Viðskipti erlent 19.1.2012 08:00
Borgin Detroit á leiðinni í gjaldþrot Góðar líkur eru á að borgin Detroit í Bandaríkjunum lýsi sig gjaldþrota. Ef svo fer verður þetta stærsta borgin í sögu Bandaríkjanna sem fer þá leið. Viðskipti erlent 19.1.2012 07:17
Fulltúrar G20 ræða beiðni AGS um 600 milljarða dollara Fulltrúar G20 landanna hittast í Mexíkó í dag en þar á að ræða beiðni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) um að auk útlánagetu sjóðsins um 600 milljarða dollara. Viðskipti erlent 19.1.2012 06:48