Veiði

Varstu að veiða hrunárið 1984?
Það er búið að skrifa mikið og líklega ræða ennþá meira um hina slöku veiði á þessum sumri í flestum ánum en er ástandið jafn slæmt og háværar raddir innan veiðisamfélagsins vilja meina?

Opinn veiðidagur í Hlíðarvatni 24. ágúst
Stangaveiðifélögin sem eru með aðstöðu við Hlíðarvatn í Selvogi bjóða gestum að koma og veiða án endurgjalds í vatninu sunnudaginn 24. ágúst næstkomandi.

177 laxar komnir úr Affallinu
Affallið er ein af litlu ánum þar sem veiði er haldið uppi með hafbeit og þrátt fyrir litlar smálaxagöngur víða um land hafa göngur í Affallið verið alveg prýðilegar.

Kveðja til veiðikvenna við Langá
Í gær hóf hópur veiðikvenna veiðar í Langá á Mýrum (Kvennadeild SVFR). Í Veiðimanninum, tölublaði 198 sem kemur út í vikunni, er kveðja til þeirra frá Tiggy Pettifer, en hún er AAPGAI Advanced Salmon Instructor og eins og titilinn ber með sér kennir hún veiðimönnum að kasta, þó einkum konum og börnum.

Þrír risar á sömu stöngina á Nessvæðinu
Það er ótrúlegt að heyra meðalþyngdina í Laxá í Aðaldal á þessu ári en hver stórlaxinn á fætur öðrum hefur verið dreginn á þurrt þar í sumar.

Erlendir veiðimenn uggandi yfir líklegu eldgosi
Samkvæmt nýjustu fréttum frá jarðvísindamönnum Veðurstofunnar er líklegt að kvika sé að brjóta sér leið upp við Bárðarbungu og að eldgos gæti hafist næstu daga.

Eystri Rangá fer líklega fyrst yfir 2000 laxa í sumar
Í gærkvöldi var búið að bóka 1738 laxa í Eystri Rangá og miðað við veiðina í henni síðustu daga verður hún líklega fyrsta áin yfir 2000 laxa í sumar.

Svalbarðsá komin yfir 300 laxa
Veiðin í Svalbarðsá hefur verið frábær í sumar og áin er komin yfir veiðina í fyrra sem þó þótti afbragðs veiðiár.

Stefnir í eitt versta árið í Soginu
Veiðin í Soginu er búin að vera afleit í sumar og veiðimenn vona að hinar árlegu haustgöngur skili einhverju í bækurnar til að laga veiðitölurnar aðeins.

110 sm lax úr Laxá í Aðaldal í morgun
Á sama tíma og veiðimenn eru áþreifanlega varir við skort á smálaxi er líklega eitt besta stórlaxa ár margra ánna að gerast einmitt í sumar.

Hrun í smálaxastofninum er ekki einsdæmi á Íslandi
Það hrun sem hefur orðið í smálaxagöngum hér á landi er ekki einsdæmi því svo til allar laxveiðiár í Evrópu glíma við sama vandamál.

Skoðaðu göngutölur laxa á netinu
Laxateljarar eru víða í ám á Íslandi en það sem kannski færri vissu er að nokkrir þeirra eru komnir á netið þar sem hægt er að skoða tölur yfir göngur.

"Laxlaus eftir 9 daga í lax í sumar, hættur þessu! "
Það er nokkuð mikið rætt um ástandið í ánum á milli veiðimanna í dag og það eru margir sem hafa töluverðar áhyggjur veiðileyfasölu á komandi ári.

Eystri Rangá komin í 1520 laxa
Veiðin heldur áfram að vera með besta móti í Eystri Rangá þetta sumarið og miðað við að Blanda fari að detta á yfirfall verður toppslagurinn milli Rangánna þetta sumarið.

Stórlax á hitch úr Ytri Rangá
Það hefur alltaf verið sagt að eina leiðin til að veiða vel í Ytri Rangá sé að nota þungar túpur, sökktauma og veiða djúpt en annað er nú að koma í ljós.

120 laxar komnir úr Korpu og um 100 úr Brynjudalsá
Í öldudal veiðitalna úr laxveiðiánum gleymist oft og iðullega að horfa á litlu árnar sem eru minna þekktar en geta oft gefið fína veiði.

Fékk fjóra laxa og alla yfir 90 sm í Víðidalsá
Víðidalsá er þekkt stórlaxaá og þangað fara margir veiðimenn reglulega til þess eins að eiga möguleika á slag við stórlax.

Er leiguverð laxveiðiánna komið á endastöð?
Umræðan í veiðiheiminum þessa dagana er nokkuð hávær um að nú þurfi landeigendur að sýna vilja og styrk með því að lækka leiguverðið á ánum.

Laxá á Ásum er besta á sumarsins
Það er ekki hægt að hafa önnur orð um veiðina í Laxá á Ásum en að hún sé búin að vera hreint út sagt frábær í sumar.

14119 fiskar veiðst í Veiðivötnum í sumar
Veiðin í Veiðivötnum hefur verið upp og ofan í sumar en er þó orðin betri heldur en hún var allt tímabilið í fyrra.

Fín veiði í Úlfljótsvatni
Bleikjan á Þingvöllum er komin í hrygningarbúning og safnast saman á grynningum til að hrygna og eins og við höfum greint frá er það oft mikið sjónarspil.

Eystri Rangá með flesta veidda laxa í vikunni
Blanda er ennþá á toppnum yfir fjölda veidda laxa en það er ljóst að það líklega strax í næstu viku verður Eystri Rangá komin á toppinn.

Aflatölur laxveiðiánna í liðinni viku
Nýjar veiðitölur yfir stöðuna í laxveiðiánum gefa ekki tilefni til sérstakrar bjartsýni yfir því að ástandið eigi eftir að batna mikið í þeim ám sem verst standa.

Mikið af bleikju í Steinsmýrarvötnum og birtingurinn mættur
Steinsmýrarvötn virðast vera komin í gang á hárréttum tíma en holl sem var þar um liðna helgi gerði fína veiði.

Róleg veiði en margir við bakkann
Elliðavatn er uppeldisstöð fyrir marga veiðimenn og víst er að þarna við bakkana hafa margir veitt sína fyrstu silunga á veiðiferlinum.

Er þetta flottasta veiðimyndin í sumar?
Þrátt fyrir rólega veiði í mörgum ánum er Facebook fullt af myndum af laxveiðimönnum með stóra laxa í fanginu og það er ekki annað en bros að sjá á þessum myndum.

Veiðin í Laxá í Ásum heldur áfram að vera frábær
Það er engin laxveiðiá á Íslandi sem nær því að skáka Laxá í Ásum við hvað varðar fjölda laxa á stöng.

48 laxar veiddust fyrir hádegi í Ytri Rangá
Það er alveg óhætt að segja að það sé kominn góður kippur í veiðina í Ytri Rangá og það sést auðvitað best á hækkandi veiðitölum.

Eystri Rangá komin í 1136 laxa
Í gær þegar veiðin af síðdegisvaktinni í Eystri Rangá var bókuð voru komnir 1136 laxar á land en samtals skilaði dagurinn 69 löxum.

Góð veiði í Steinsmýrarvötnum
Steinsmýrarvötn hafa lifnað vel við og það hefur veiðst vel þar um helgina bæði sjóbirtingur og bleikja.