Tónlist

Klara Elias frumflutti Þjóðhátíðarlagið 2022
Söngkonan Klara Elias er höfundur og flytjandi Þjóðhátíðarlagsins í ár. Lagið, sem heitir Eyjanótt, kom út fyrr í dag á allar helstu streymisveitur og var frumflutt í Brennslunni á FM957 í morgun.

„Undirmeðvitundin er stundum svo mikið með á nótunum að hún er langt á undan manni“
Tónlistarmaðurinn Benni Hemm Hemm gefur út breiðskífu miðvikudaginn 8. júní. Platan, sem ber titilinn Benni Hemm Hemm & the Melting Diamond Band III, er þriðja platan sem kemur út úr samstarfi hljómsveitarinnar við Mengi Records. Hún kemur út á stafrænu formi og á vínyl en einnig eru gefin út vídeóverk með öllum tónverkunum. Útgáfu plötunnar verður fagnað með tónleikum í Mengi samdægurs, miðvikudagskvöldið 8. júní. Blaðamaður tók púlsinn á Benna.

Kínverjar herja á KK á Spotify: „Ég heyri bara í Jóni Gunnarssyni, hann er duglegur að henda útlendingum út“
Tónlistarmaðurinn Kristján Kristjánsson, betur þekktur sem KK, kannast ekkert við þrjú nýjustu lögin sem hann er skráður fyrir á Spotify. Kannski ekki skrítið, því lögin eru kínversk hiphop lög, ekki beint sá tónlistarstíll sem KK er þekktur fyrir.

„Blanda af sumar fíling og því að fylgja hjartanu“
Plötusnúðurinn og tónlistarmaðurinn Doctor Victor situr í áttunda sæti íslenska listans þessa vikuna með nýjasta lagið sitt Falling. Lagið hefur verið á siglingu upp á við á undanförnum vikum. Blaðamaður tók púlsinn á Victori.

Nýtt lag frá Júníusi Meyvant: „Gúrúar syndandi í villtum kenningum“
Tónlistarmaðurinn Júníus Meyvant sendi frá sér nýtt lag í dag sem ber nafnið Guru. Lagið er af væntanlegri plötu og segja má að þetta sé það fyrsta nýja frá honum í 3 ár á heimsvísu, að undanskildum þeim tveimur íslensku lögum sem komu út aðeins á Íslandi á síðasta ári.

Vona að þetta setji tóninn fyrir bjart og skemmtilegt sumar
Tónlistarmaðurinn JóiPé var að senda frá sér lagið FACE, sem er fyrsti síngúll af væntanlegri plötu sem verður hans fyrsta sólóplata. Með Jóa á laginu er vinur hans Páll Orri Pálsson sem gengur undir listamannsnafninu PALLY en þetta er fyrsta útgáfa hans undir þessu nafni. Blaðamaður tók púlsinn á Jóa og fékk að heyra nánar frá laginu og lífinu.

Herbert heiðrar látinn vin með endurútgáfu plötu Kan
Platan „Í ræktinni“ með hljómsveitinni Kan er loks komin á Spotify og aðrar tónlistarveitur. Hingað til hefur platan eingöngu verið til á vínyl en tónlistarmaðurinn Herbert Guðmundsson, lét nútímavæða plötuna í minningu gítarleikarans Magnúsar Hávarðarsonar.

Tónleikum TLC í Laugardalshöll aflýst
Tónleikum hljómsveitarinnar TLC sem áttu að fara fram þann 17. júní næstkomandi hefur verið aflýst. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Reykjavík Live sem stefndu á að sjá um tónleikana.

„Það gerast alltaf einhverjir töfrar á milli okkar þegar við komum fram“
Hljómsveitin Kælan Mikla blæs til útgáfutónleika nú á laugardagskvöldið 4. júní á Gauknum, í tilefni af plötunni Undir köldum norðurljósum sem kom út í nóvember síðastliðnum.

Vísur Vatnsenda-Rósu í Flamenco kjól
Ný útgáfa af Vísum Vatnsenda-Rósu er að vekja athygli. Reynir Hauksson, íslenskur Flamenco gítarleikari búsettur í Madríd, tók upp myndband við lagið þekkta ásamt einum af fremstu Flamenco-gítarleikurum heims.

Harry Styles nær toppnum og stefnir á tónleikaferðalag
Harry Styles situr á toppi íslenska listans þessa vikuna með nýjasta lagið sitt As It Was. Lagið hefur verið á stöðugri siglingu upp á við undanfarnar vikur og hefur náð gríðarlegum vinsældum víða um heiminn.

Frumsýning á tónlistarmyndbandi Reykjavíkurdætra
Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á nýju tónlistarmyndbandi frá hljómsveitinni Reykjavíkurdætrum.

Klara Elias er höfundur og flytjandi Þjóðhátíðarlagsins í ár
Höfundur og flytjandi Þjóðhátíðarlags Vestmannaeyja 2022 er Klara Elias söngkona og lagahöfundur. Aðeins einu sinni áður hefur hið opinbera þjóðhátíðarlag verið samið og flutt af konu og var það lagið og var það lagið Sjáumst þar eftir Röggu Gísla árið 2017.

Reykjavíkurdætur frumsýna nýtt tónlistarmyndband á Lífinu á Vísi á morgun
Lífið á Vísi mun frumsýna nýtt tónlistarmyndband frá hljómsveitinni Reykjavíkurdætrum á morgun, 27. maí, klukkan 12:00.

Iceland Airwaves kynnir fleiri listamenn til leiks
Iceland Airwaves tilkynni í dag um fleiri atriði sem munu koma fram á hátíðinni í nóvember. Íslenska deildin kemur þar sterk inn ásamt erlendu tónlistarfólki úr ólíkum áttum.

Júníus Meyvant fylgir Kaleo á tónleikaferðalagi um Evrópu
Tónlistarmaðurinn Júníus Meyvant mun hita upp fyrir íslensku hljómsveitina Kaleo á tónleikaferðalagi þeirra um Evrópu. Ævintýrið hefst 4. júní í Berlín og endar í Aþenu 6. júlí. Blaðamaður sló á þráðinn og tók púlsinn á Júníusi.

Ultraflex sendir frá sér Rhodos: „Sömdum lagið þegar við þráðum að djamma“
Hljómsveitin Ultraflex, skipuð hinni íslensku Special-K (Katrín Helga Andrésdóttir) og norsku tónlistarkonunni Farao, var að senda frá sér nýtt partý lag sem ber nafnið Rhodos.

Breska Eurovision stjarnan mætt á íslenska listann
TikTok stjarnan Sam Ryder sló í gegn í Eurovision í ár þar sem hann keppti fyrir hönd Bretlands og hreppti annað sætið. Lagið hans Space Man skýst beint í sjötta sætið á íslenska listanum sína fyrstu viku á lista.

KUSK og Óviti gefa út lagið Elsku vinur: „Samið í einu góðu útrásarkasti í stúdíóinu“
Tónlistarfólkið Kolbrún og Hrannar, jafnan þekkt sem KUSK og Óviti, sendu frá sér lagið Elsku vinur í dag. Þetta er í annað sinn sem þau sameina krafta sína en áður hafa þau gefið út lagið Flugvélar. Blaðamaður hafði samband við þau og fékk að forvitnast um nýja lagið.

Fleiri listamenn bætast við dagskrá Þjóðhátíðar
Dagskráin fyrir Þjóðhátíð í Eyjum í ár er að verða klár. Þjóðhátíðarnefnd kynnti í dag að Aron Can mun koma fram á stóra sviðinu í Herjólfsdal.

„Gæti haldið tónleika á hverjum degi“
Söngkonan Bríet ætlar að endurtaka leikinn og halda stórtónleika í Eldborg í Hörpu á laugardag. Við tókum púlsinn á söngkonunni sem er á fullu að undirbúa tónleikana.

Konfettí, reykur og vindvél á Kötlugosi um helgina
Kvennakórinn Katla er tíu ára um þessar mundir og verður haldið uppá þann áfanga með kórleikhúsi í Tjarnarbíó.

Taylor Swift fékk doktorsgráðu frá New York University
Söngkonan Taylor Swift hélt ræðu í gær fyrir útskriftarnema New York University. Í leiðinni tók hún við sérstakri heiðursdoktorsgráðu í listum frá skólanum.

Vala gefur út vögguvísuplötu: „Vonandi hefur þetta róandi áhrif á alla“
Útvarpskonan Vala Eiríksdóttir var að gefa út plötuna Ró. Um er að ræða tíu vögguvísur og þrjár barnasögur sem söngkonan Vala skrifaði sjálf, las og hljóðskreytti.

Óli Dóri er plötusnúður mánaðarins
Dansþáttur þjóðarinnar, PartyZone, útnefnir plötusnúð mánaðarins sem setur saman eitt eða fleiri „mixteip“ með danstónlist. Hann hefur frjálsar hendur og setur saman sett með tónlist sem hann er með í spilun þá stundina og einkennir hann eða hana tónlistarlega.

Systur voru í tíunda sæti á þriðjudaginn
Nú hefur verið opinberað hvernig kosningin var í undankeppnum Eurovision. Systur, sem fluttu framlag Íslands í ár, voru í tíunda sæti á þriðjudag. Tíu lönd komust áfram.

Fullkominn flutningur hjá Systrum
Systur voru landi og þjóð til sóma á Eurovision sviðinu í kvöld. Atriðið heppnaðist mjög vel, alveg eins og á öllum æfingum.

Framlög Úkraínu, Noregs og Hollands klífa alþjóðlegan vinsældarlista hjá Spotify
Lokakeppni Eurovision fer fram í Tórínó í kvöld og munu 25 lög keppa um gler hljóðnemann. Eins og vænta má eru lögin mörg hver orðin gífurlega vinsæl, bæði í Evrópu og sum um allan heim.

Mætt á toppinn og verður því „Aldrei toppað“
Lagið „Aldrei toppað“, flutt af FM95Blö og Aroni Can, skipar fyrsta sæti íslenska listans þessa vikuna. Tíu ára afmælishátíð FM95Blö fór fram með pomp og prakt í gærkvöldi og hefur lagið verið á stöðugri siglingu upp á við að undanförnu.

Eurovisionvaktin: Sögulegur sigur Úkraínu á úrslitakvöldi Eurovision
Úrslitakvöld Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2022 verður haldið í PalaOlimpico-höllinni í Tórínó í kvöld. Eurovisionvaktin á Vísi fylgist náið með þar til yfir lýkur.