Tónlist

Innblásinn af píanói úr Góða hirðinum
Ástsælu tónlistarmennirnir JóiPé og Valdimar sameinuðu krafta sína við gerð á nýju lagi sem ber nafnið Herbergi. Tónlistarmyndband við lagið var frumsýnt í dag og er í leikstjórn Tómasar Sturlusonar sem segir það meira en bara hefðbundið tónlistarmyndband: „Fyrir mér er þetta miklu frekar heildstætt listaverk.“

Ólafur Kram treystir ekki fiskunum
Hljómsveitin frumlega Ólafur Kram gefur út breiðskífan Ekki treysta fiskunum á föstudaginn. Hljómsveitin kom sá og sigraði Músíktilraunir á síðasta ári.

Gefa út vögguvísur fyrir fullorðna
Fjölmiðla- og tónlistarkonan Vala Eiríksdóttir var að senda frá sér plötuna Værð ásamt Stefáni Erni Gunnlaugssyni. Platan sækir í gömul íslensk dægurlög sem fullorðið fólk getur tengt við æsku sína. Blaðamaður tók púlsinn á Völu.

Stærstu poppstjörnur landsins kvaddar í herinn
Poppstjörnurnar í suður-kóresku hljómsveitinni BTS hafa verið kvaddar í herinn munu á næstunni sinna herskyldu í suður-kóreska hernum.

Bríet í fyrsta sæti Íslenska listans
Íslenska stórstjarnan Bríet situr á toppi Íslenska listans í þessari viku með ábreiðu af laginu Dýrð í dauðaþögn en lagið hefur verið á leið upp listann að undanförnu.

Lag sem leitar að tilgangi lífsins
Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi við lag sem ber nafnið Nýr heimur. Lagið er titillag fjórðu seríu ÉG BÝÐ MIG FRAM, sem verður frumsýnd 11. nóvember í Tjarnarbíói. Laginu er lýst sem léttu og skemmtilegu danslagi sem þó er innihalds- og áhrifaríkt og fjallar um að finna tilgang lífsins.

„Konur geta verið allt sem þær vilja án þess að gefa afslátt af kynþokkanum“
Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi við lagið Pamela með söngkonunni Heíu sem heitir réttu nafni Helga Soffía Ólafsdóttir. Blaðamaður tók púlsinn á Heíu og fékk að heyra nánar frá innblæstrinum á bak við myndbandið.

JFDR skrifar undir samning við breskt útgáfufyrirtæki
Tónlistarkonan Jófríður Ákadóttir, einnig þekkt sem JFDR var að skrifa undir samning við breska útgáfufyrirtækið Houndstooth. Hún var einnig að gefa út smáskífuna „The Orchid“ en laginu fylgir nýtt myndband.

Vinátta í Eurovision leiddi til tónleika í Hörpu
Portúgalska Eurovision söngkonan Maro kemur fram í Hörpu næstkomandi mánudagskvöld á tónleikum Systra í Kaldalóni. Vinskapurinn myndaðist á keppninni í Torino í vor og segjast Systur spenntar að taka á móti henni.

„Lagið er algjör ástarjátning“
Söngkonan Kristín Sesselja gaf út lagið Rectangular Bathroom Tiles síðastliðinn föstudag. Í laginu sækir hún meðal annars innblástur í ástina, samtöl við fyrrverandi kærastann sinn og hornréttar baðherbergis flísar. Blaðamaður tók púlsinn á henni og fékk að heyra nánar frá tónlistinni og lífinu.

Tónleikaferðalag og ný plata á leiðinni
Bandaríska popp-pönk hljómsveitin Blink-182 ætlar sér á tónleikaferðalag á næsta ári til að fagna útgáfu nýrrar plötu sem kemur út á næstunni. Hljómsveitin gefur út nýtt lag á föstudaginn.

Ást, dauði og sálfræðingar á fyrstu breiðskífu Kvikindis
Rafpoppþríeykið Kvikindi var að senda frá sér plötu síðastliðinn föstudag. Þetta er þeirra fyrsta breiðskífa og ber titilinn Ungfrú Ísland.

Armensk Eurovision söngkona slær í gegn
Söngkonan Rosa Linn keppti fyrir hönd Armeníu í Eurovision síðastliðið vor með lagið Snap en það situr í fjórða sæti Íslenska listans þessa vikuna, tæpum fimm mánuðum eftir keppnina.

Skapa ævintýralegan heim með nýrri plötu
Hljómsveitin Sycamore Tree er skipuð Gunna Hilmarssyni og Ágústu Evu Erlendsdóttir. Þau voru að senda frá sér plötuna Colors en hún hefur verið í bígerð í yfir þrjú ár. Blaðamaður tók púlsinn á Gunna.

Er komin til að vera og halda hlutunum áhugaverðum
Tónlistarkonan Tara Mobee var að senda frá sér sína fyrstu plötu sem ber nafnið Weird Timing. Tara semur öll lög plötunnar sjálf ásamt textum og Eyþór Úlfar Þórisson stýrði upptökunum. Tara ætlar að kryfja hvert einasta lag plötunnar á Instagram síðu sinni í næstu viku en blaðamaður tók púlsinn á henni og fékk smá forskot á sæluna.

Ræddu um að breyta textanum og byrja að syngja um sveppi
Hljómsveitin SSSÓL hitar nú upp fyrir væntanlega 35 ára afmælistónleika sem fara fram í Háskólabíó 15.október 2022.

„Ég kannski ýki ákveðna bresti sem ég er með“
Örfáir vita hver tónlistarmaðurinn Hugó er en það mun koma í ljós í samnefndri þáttaröð á Stöð 2. Herra Hnetusmjör er einn af teyminu í kringum Húgó en eitt af því sem það hugsaði mikið um var útlit og ímynd.

SSSÓL hleypir lesendum Vísis á æfingu
Hljómsveitin SSSÓL hitar upp fyrir væntanlega afmælistónleika í beinni á Vísi í dag. Sent verður út frá æfingu þeirra í Stúdíó Sýrlandi klukkan 14.

Raftónlistarhátíð í Reykjavík um helgina
Tónlistarhátíðin Extreme Chill fer fram dagana sjötta til níunda október í Reykjavík en þetta í þrettánda sinn sem hátíðin er haldin.

SSSÓL æfir í beinni útsendingu á Vísi
Hljómsveitin SSSÓL heldur afmælistónleika í Háskólabíó á laugardaginn eftir viku. Það er uppselt á seinni tónleikana og miðasala í fullum gangi fyrir fyrri tónleika kvöldsins.

Nýtt tónlistarmyndband frá Ásgeiri Trausta
Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi Ásgeirs Trausta við lagið Borderland. Myndbandinu var leikstýrt af Einari Egilssyni en lagið er hluti af væntanlegri plötu sem kemur út í lok október og ber nafnið Time on my hands.

„Meira shit“ frá Issa
Tónlistarmaðurinn Issi tók lagið sitt Meira Shit í beinni útsendingu í seríu frá útvarpi 101 og Stúdíó Sýrlandi sem ber nafnið 101 sessions.

Ábreiða Bríetar af lagi Ásgeirs Trausta slær í gegn
Bríet skipar sjöunda sæti íslenska listans þessa vikuna með einstaka ábreiðu sína af laginu Dýrð í Dauðaþögn sem Ásgeir Trausti gaf út fyrir tíu árum síðan af samnefndri plötu.

Hildur Guðnadóttir eigi möguleika á að slá met hljóti hún tilnefningu
Íslenska tónskáldið Hildur Guðnadóttir er sögð eiga möguleika á því að vera tilnefnd til tveggja Óskarsverðlauna á komandi hátíð. Bæði fyrir tónlist sína í kvikmyndinni „Tár“ og „Women Talking.“

Landsmenn minnast Prins Póló
Samúðarkveðjum og minningum sem tileinkaðar eru tónlistarmanninum Svavari Pétri Eysteinssyni, betur þekktum sem Prins Póló, hafa fyllt samfélagsmiðla í dag eftir að fregnir bárust af andláti hans. Svavar lést 45 ára eftir baráttu við krabbamein.

„Var næstum því hætt við að gefa út plötuna mína“
Maðurinn á bak við Húgó verður afhjúpaðir í nýrri þáttaröð á Stöð 2 sem hófst í gær.

Lizzo spilaði á kristalsflautu James Madison
Tónlistarkonan Lizzo hlaut þann heiður fyrr í vikunni að fá að spila á þverflautu sem var í eigu James Madison fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Ekki er hægt að flautan sé hefðbundin, hún var búin til árið 1813 og er úr kristal.

„Hafnfirskar stelpur rokka“
Hafnfirskar stelpur rokka! er tónlistar vinnusmiðja sem unnin er í tengslum við Appolo listahátíð í Hafnarfirði. Ungar sís og trans stelpur, trans strákar, kynsegin og intersex ungmenni á aldrinum 13-25 ára eru öll velkomin og á vinnusmiðjan sér stað yfir tvær helgar í október.

„Starstruck“ í vinnunni í fyrsta skipti
Ingimar Davíðsson er staddur í Los Angeles þar sem hann er að fara vera einn af tæknistjórum á minningartónleikum Taylor Hawkins í The Forum. Um er að ræða 18.000 manna minningartónleikum og er Ingimar einn af fjórum tæknistjórum viðburðarins.

Skrifstofu Sony á Íslandi lokað
Skrifstofa Sony Music á Íslandi hættir formlega störfum þann 31. október næstkomandi vegna stefnubreytingar hjá Sony Music Entertainment. Dreifing á íslenskum útgáfum verður þá í höndum Sony í Kaupmannahöfn.