Tónlist

Tileinkar föður sínum plötuna
Trommuleikarinn Einar Scheving hefur gefið út sína aðra sólóplötu, sem nefnist Land míns föður. Hún er óður til Íslands og á henni eru lög Einars við texta nokkurra af þjóðarskáldunum, auk vel þekktra íslenskra þjóðlaga.

Vinsælasta hljómsveit Íslands
Hljómsveitin Of Monsters and Men á bæði vinsælustu plötuna og vinsælasta lagið á Íslandi. Nýtt lag er væntanlegt sem heitir King and Lionheart.

Númer tíu frá Korn
Tíunda hljóðversplata Korn, The Path of Totality, kemur út 5. desember. „Titillinn The Path of Totality vísar í þá staðreynd að til að sjá sólmyrkva þarf að vera á hárréttum stað á hárréttum tíma. Þannig varð platan til. Ég held að upptökustjórarnir séu á sama máli. Ég er viss um að þessi plata gæti aldrei verið endurtekin,“ sagði söngvarinn Jonathan Davis

Bloc Party leitar að nýjum söngvara
Meðlimir hljómsveitarinnar Bloc Party hafa staðfest að næsta plata verðin tekin upp án söngvarans Kele Okereke.

Óútreiknanleg St. Vincent
Þriðja sólóplata bandarísku tónlistarkonunnar St. Vincent kom út fyrir skemmstu. Gagnrýnendur eru flestir sammála um að þar sé á ferðinni mikið meistarastykki. St. Vincent gaf fyrr í mánuðinum út sína þriðju sólóplötu, Strange Mercy. Gagnrýnendur hafa hlaðið hana lofi og telja mikið spunnið í þessa bandarísku tónlistarkonu.

Sviti frá Jónsa í kaupbæti
Bútar úr fötum sem meðlimir Sigur Rósar klæddust á tónleikum í London fylgja með viðhafnarútgáfu af væntanlegri tónleikaplötu þeirra, Inni.

Nóra gefur út nýtt lag
Hljómsveitin Nóra hefur sent frá sér nýtt lag sem heitir Bringsmalaskotta og er forsmekkurinn af því sem koma skal.


Útgáfutónleikar hjá Felix
Felix Bergsson heldur fyrri útgáfutónleika sína af tvennum í Salnum í Kópavogi í kvöld. Felix gaf nýverið út plötuna Þögul nóttin en þar syngur hann ný lög við ástarljóð Páls Ólafssonar. Meðal lagahöfunda á disknum eru Jón Ólafsson og Magnús Þór Sigmundsson en sérstakir gestir á tónleikunum verða þær Valgerður Guðnadóttir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir.

Kynnir EP-plötu í kirkju
Tónlistarkonan Ólöf Arnalds heldur hinn 24. nóvember tónleika í lítilli kirkju í London sem nefnist St. Pancras Old Church. Tónleikarnir verða haldnir til kynningar á nýrri EP-plötu hennar, Ólöf Sings, sem kemur út 7. nóvember. Hún hefur að geyma útgáfur Ólafar á lögum eftir tónlistarmenn á borð við Bob Dylan, Neil Diamond og Arthur Russell. Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason, sem býr í London, ætlar að hita upp fyrir Ólöfu. Hann gaf nýverið út sína aðra sólóplötu, Winter Sun. Önnur sólóplata, Ólafar, Innundir skinni, kom út fyrir ári.

Radiohead aftur af stað
Thom Yorke, söngvari Radiohead, hefur staðfest að hljómsveitin ætli að eyða næsta ári í tónleikahald. Radiohead hefur aðeins spilað einu sinni á tónleikum eftir að platan King of Limbs kom út fyrr á þessu ári og því ættu hinir fjölmörgu aðdáendur hljómsveitarinnar að gleðjast.

Prýðilegt pabbarokk Wilco
Áttunda hljóðversplata bandarísku hljómsveitarinnar Wilco kemur út í næstu viku. Jeff Tweedy og félagar gefa plötuna út sjálfir og eru á leiðinni í tónleikaferð til Evrópu.


Mills alltaf velkominn
Mike Mills úr R.E.M. kom til Íslands með konu sinni í ágúst og söng með Bítladrengjunum blíðu á skemmtistaðnum Ob-la-di Ob-la-da við Frakkastíg.

Slegist um að koma landsmönnum í jólaskapið í ár
Laugardagurinn 3. desember verður jólatónleikadagurinn mikli á höfuðborgarsvæðinu. Í Háskólabíói stíga sprelligosarnir síkátu í Baggalúti á svið á sínum árlegu aðventutónleikum en í Laugardalshöll verður öllu meira umstang; þar býður Björgvin Halldórsson landsmenn velkomna á Jólagesti sína, en meðal þeirra eru Paul Potts og Robin Gibb. Í Hörpunni þetta sama kvöld hefst síðan Frostrósamaraþonið mikla þegar fyrstu tónleikarnir af átta fara fram.

Tveir til liðs við Dimmu
Rokksveitin Dimma ætlar að hljóðrita tónleika sína á Gauki á Stöng á fimmtudagskvöld og gefa út á stuttskífu ásamt glænýju efni í október.

Nýtt myndband frá Singapore Sling
Hljómsveitin Singapore Sling frumsýnir í kvöld myndband við titillag nýútkominnar plötu sinnar, „Never Forever“.

Sissel Kyrkjebø aftur til Íslands
Einn heppinn drengjasópran fær að syngja með norsku stórsöngkonunni Sissel Kyrkjebø á Frostrósar-tónleikum í Hörpu 10. desember. Haldnar verða sérstakar áheyrnarprufur um miðjan október þar sem strákar geta látið ljós sitt skína. Að sögn Samúels Kristjánssonar tónleikahaldara er ekki enn orðið ljóst hvert lagið verður sem hinn útvaldi fær að syngja.

Grúskarar með plötu
Fyrsta plata Grúsks er komin út og er það Zonet sem dreifir. Á plötunni eru ellefu lög eftir Einar Oddsson sem einnig gerir textana ásamt Magnúsi Þór Sigmundssyni. Tvö laganna eru við ljóð eftir Þórarin Eldjárn og Davíð Stefánsson.

Engar undankeppnir í Eurovision
„Við viljum gefa þjóðinni tækifæri til að segja hvaða lagahöfunda hún vill fá," segir Þórhallur Gunnarsson. Landsmönnum gefst í fyrsta skipti kostur á því að tilnefna þann tónlistarmann sem þeir vilja sjá í Söngvakeppni Sjónvarpsins en Þórhallur fer fyrir nefnd sem er að endurskoða hana.

Sömdu glænýtt lag um Ben Stiller
Félagarnir Atli Fannar og Haukur Viðar fóru á kostum eins og venjulega í útvarpsþættinum Laugardagskaffinu á X-inu á laugardaginn. Meðal þess sem þeir félagar buðu upp á var stórskemmtilegt og glænýtt lag um Ben Stiller.

Halda upp á lífið
Weirdcore-raftónlistarkvöld verður haldið á Bakkusi í kvöld. Einnig verður fagnað nýrri plötu Bix, Animalog, sem kom út 7. september. Fram koma Bix, DJ Delarosa, PLX og Futuregrapher.

Kemur í nóvember
Tónleikamynd og -plata Sigur Rósar, Inni, kemur í verslanir 7. nóvember. Platan verður tvöföld og á henni verða fimmtán lög, þar á meðal Lúppulagið sem hljómar í lok myndarinnar en var áður óútgefið.

Brostinn strengur frá Lay Low
Þriðja sólóplata Lovísu Elísabetar Sigrúnardóttir, betur þekkt sem Lay Low, hefur fengið nafnið Brostinn strengur.

Grugguppvakningar vilja endurlífga handboltarokkið
Bush er ekki vinsælasta hljómsveit heims. Hún er ekki heldur sú besta né sú virkasta. Það hafa samt allir heyrt lög með Bush og sama hvað þér finnst um harpix-klístrað handboltarokkið þá er komin ný plata frá Bretunum sem allir halda að séu Kanar.

Of Monsters and Men selja grimmt í forsölu
„Of Monsters and Men hefur tekist að safna stórum aðdáendahópi víðs vegar um heiminn án þess að hafa lagt í tónleikaferðir eða unnið með kynningarstofum,“ segir Haraldur Leví Gunnarsson, framkvæmdastjóri útgáfufyrirtækisins Records Records.

Rihanna syngur á nýju plötu Coldplay
Breska hljómsveitin Coldplay hefur tekið upp dúett með bandarísku söngkonunni Rihönnu. Lagið heitir Princess of China og verður að finna á plötunni Mylo Xyloto sem kemur út 24. október.

Fönguðu kraftinn á einni helgi
Önnur plata Hellvar, Stop That Noise, kemur út á miðvikudaginn. „Við tókum hana „live“ upp á einni helgi í desember. Aron Arnarsson var á tökkunum og þetta var hugmynd frá honum. Hann hafði verið á tökkunum hjá okkur á Airwaves og sagðist vilja fanga kraftinn hjá okkur. Það var alveg hárrétt ákvörðun hjá honum,“ segir Elvar Geir Sævarsson.

Fyrsta platan frá Two Step Horror
Dúóið Two Step Horror, sem er skipað Þórði Grímssyni og Önnu Margréti Björnsson, hefur gefið út sína fyrstu plötu, Living Room Music. Parið samdi plötuna veturinn 2008 til 2009 í stofunni heima hjá sér. Hún kom út í Bretlandi í maí hjá óháðu bresku útgáfunni Outlier Records. Platan er núna fáanleg í 12 Tónum, Smekkleysu og Lucky Records.

Gylfi Ægis heldur upp á 65 ára afmælið
Tónlistarmaðurinn Gylfi Ægisson heldur upp á 65 ára afmælið sitt með því að flytja bestu lögin sín í bland við gamanmál í Salnum í Kópavogi 12. nóvember.