Sport

KR vann fertugasta Reykjavíkurmeistaratitilinn annað árið í röð
Óskar Hrafn Þorvaldsson er búinn að skila fyrsta titlinum í hús sem þjálfari KR. KR varð Reykjavíkurmeistari eftir 3-0 sigur á Valsmönnum í úrslitaleiknum í gær.

Keflvíkingar bæta við sig
Körfuboltamaðurinn Nigel Pruitt, sem lék með Þór Þ. í fyrra, er genginn í raðir Keflavíkur og mun klára tímabilið með liðinu.

Nashville vill fá WNBA lið og nefna í höfuðið á frægum þjálfara
Stjórnarformaður NHL liðsins Nashville Predators og eiginkona hans vinna nú að því að fá WNBA til Kantrýborgarinnar.

UFC-bardagakappi sagði að Hitler hefði verið fínn gaur
Bryce Mitchell, sem berst í UFC, kom sér í mikið klandur með ummælum í hlaðvarpi sínu. Þar sagði hann að Adolf Hitler hefði verið fínn gaur og afneitaði Helförinni.

Orri og Elías í einvígi um að mæta ensku stórliði
Íslendingaliðin Real Sociedad og Midtjylland mætast í umspilinu um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta. Dregið var í dag.

Tveir íslenskir Nökkvar í Rotterdam
Landsliðsmaðurinn Kristian Nökkvi Hlynsson fær vonandi að sjást meira á fótboltavellinum á næstu mánuðum eftir að hafa verið lánaður frá Ajax til Sparta Rotterdam út leiktíðina. Hann hittir þar fyrir annan Íslending.

City mætir Real Madrid í umspilinu
Manchester City mætir Real Madrid í umspili um sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Dregið var í umspilið í dag.

Einn nýliði í landsliðinu
Benedikt Guðmundsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, hefur valið tólf leikmanna hóp fyrir síðustu tvo leikina í undankeppni EM 2025.

Stólarnir svara með bombu á lokadegi gluggans
Tindastóll hefur tryggt sér krafta gríska landsliðsmannsins Dimitris Agravanis. Óhætt er að segja að um gríðarlegan liðsstyrk sé að ræða og afar áhugaverða viðbót við leikmannaflóruna í Bónus-deildinni í körfubolta.

Dagur gæti gert það sem enginn þjálfari hefur afrekað í handboltasögunni
Dagur Sigurðsson er einum sigri frá sögulegum þjálfarasigri eftir að hann kom króatíska landsliðinu í úrslitaleik HM í gærkvöldi.

Hákon búinn að fórna miklu: „Ég stefni bara á meira og enn hærra“
Hákon Arnar Haraldsson hefur fengið verðskuldað lof fyrir frammistöðu sína með franska liðinu Lille í bestu deild Evrópu. Hákon er orðaður við mörg stórlið í álfunni en lætur sjálfur sögusagnirnar ekki hafa áhrif á sig og einblínir fremur á það að gera betur, stefna hærra.

Anton fær liðið sem tapar varla leik: „Hollt fyrir þær að fá eitthvað nýtt og ferskt“
„Þetta verður ekki auðvelt,“ segir Anton Rúnarsson sem í sumar verður nýr þjálfari hins sigursæla kvennaliðs Vals í handbolta. Þetta verður fyrsta starf Antons sem aðalþjálfari.

Aldrei borgað meira fyrir fótboltakonur en á síðasta ári
Leiester City keypti íslensku landsliðskonuna Hlín Eiríksdóttur í gær og það er alltaf að aukast peningaflæðið í kvennafótboltanum.

Veðjaði 403 sinnum á leiki í eigin deild
Sænskur knattspyrnumaður hefur verið dæmdur í keppnisbann í næstu átján mánuði vegna veðmála sinna.

Liverpool ótrúlega nálægt hundrað milljónum en náði þeim ekki
Liverpool vann deildarkeppni Meistaradeildarinnar þrátt fyrir tap í lokaleiknum sínum. Tapið hafði ekki áhrif á lokaröð liðsins en hafði aftur á móti áhrif á tekjurnar.

Kristianstad um söluna á Hlín: Hefði ekki gerst fyrir fjórum til fimm árum
Hlín Eiríksdóttir er orðinn leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Leicester City eftir að enska liðið keypti hana í gær frá sænska liðinu Kristianstad.

Hreiðar Levý um skrif Víðis: Að líkja þessu við landráð er pistlahöfundi til skammar
Hreiðar Levý Guðmundsson, fasteignasali og fyrrverandi landsliðsmaður Íslands í handbolta, gefur ekki mikið fyrir skrif Víðis Sigurðssonar hjá Morgunblaðinu þar sem hann ræðir aðkomu Gunnars Magnússonar að sigri Króatíu á Íslamdi á HM í handbolta.

„Ég gæti ekki verið ánægðari“
Dagur Sigurðsson var að sjálfsögðu mjög ánægður eftir frábæran sigur króatíska landsliðsins á því franska í undanúrslitaleik heimsmeistaramótsins í gærkvöldi.

Magnaðar móttökur fyrir utan höllina kveiktu í strákunum hans Dags
Dagur Sigurðsson kom króatíska landsliðinu í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í handbolta í gærkvöldi eftir að liðið vann sigur á Frökkum í undanúrslitaleiknum.

Dagskráin í dag: Dregið í Meistara- og Evrópudeildinni og stórleikur í Vesturbænum
Það er að venju nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag.

KR Reykjavíkurmeistari eftir öruggan sigur á Val
KR er Reykjavíkurmeistari karla í knattspyrnu árið 2025. KR lagði Val 3-0 í úrslitaleik sem fór í Egilshöll fyrr í kvöld.

Lærisveinar Solskjær úr leik
Lærisveinar Ole Gunnar Solskjær í Besiktas eru úr leik í Evrópudeild karla í knattspyrnu eftir 1-0 tap fyrir Twente í kvöld. Topplið Lazio tapaði sínum leik einnig en endaði þó á toppi deildarinnar.

„Ég er mjög vonsvikinn að við leyfum okkur þetta“
Njarðvíkingar byrjuðu leikinn í kvöld gegn Valsmönnum á fleygiferð en virtust svo algjörlega missa móðinn eftir því sem leið á en Valsmenn unnu að lokum nokkuð öruggan 88-76 sigur þegar liðin mættust í Bónus-deild karla.

„Sem betur fer spilum við innanhúss”
Álftanes mætti í Breiðholtið í kvöld þar sem þeir mættu ÍR í Bónus deild karla. Álftanes vann leikinn 75-94 en þrátt fyrir 19 stiga mun var leikurinn gríðarlega jafn lengi vel. Justin James leikmaður Álftanes átti stórleik þar sem hann gerði 34 stig, fimm fráköst og níu stoðsendingar.

„Eins og formaðurinn sé að draga okkur inn á parketið“
Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var sár og svekktur með hugarfar og orkustig leikmanna sinna þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Stjörnunni í leik liðanna í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld. Jóhann Þór segir að lægðin sem hafi látið á sér kræla í nóvember sé enn til staðar hjá liðinu.

Dagur og lærisveinar hans í úrslit
Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í Króatíu eru komnir í úrslit HM karla í handbolta eftir frækinn sigur á Frökkum.

Martin með tvöfalda tvennu í sigri Alba
Martin Hermansson skoraði 11 stig og gaf jafn margar stoðsendingar í sjaldséðum sigri Alba Berlín í Evrópudeildinni í körfubolta.

Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 87-108 | Stjarnan átti í litlum vandræðum með Grindavík
Stjarnan fór með afar sannfærandi sigur af hólmi þegar liðið sótti Grindavík heim í Smárann í Kópavogi í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu 87-108 toppliði deildarinnar, Stjörnunni í vil.

Leikmaður Ravens sakaður um óviðeigandi hegðun
Justin Tucker, 35 ára gamall leikmaður Baltimore Ravens, hefur verið sakaður um óviðeigandi kynferðislega hegðun gagnvart allt að sex nuddurum. Hann neitar ásökununum.

Rauðu djöflarnir áfram taplausir
Manchester United lagði FCSB 2-0 þegar liðin mættust í Rúmeníu. Sigurinn gulltryggði sæti Rauðu djöflanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildar karla í knattspyrnu. Þrátt fyrir að enda í 3. sæti deildarkeppninnar eru lærisveinar Rúben Amorim eina taplausa liðið í keppninni.