
Menning

Kemur siglandi að Hörpu
Helga E. Jónsdóttir leikkona heldur upp á sjötugs afmæli sitt með óhefðbundnum hætti. Hún safnar fé til flóttamanna með því að flytja gjörninginn Trjójudætur á sunnudag með hópi góðra listamanna í tónlistarhúsinu Hörpu.

Hlustið á Egil lýsa frumbernsku sinni
Kemur kannski ekki á óvart en Egill Ólafsson fer á kostum við lestur ævisögu sinnar.

Vaxandi einstaklingshyggja á kostnað samfélagsins
UR_ er ný íslensk ópera eftir Önnu Þorvaldsdóttur í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar sem hefur að undanförnu verið sýnd víða um Evrópu og verður sýnd á Listahátíðinni í Reykjavík þegar vorar.

Slegist um stórvirki Páls Baldvins
Egill Örn Jóhannsson útgefandi segist aldrei hafa upplifað annað eins.

Ég var alveg að tapa mér í nördaskapnum
Ragnheiður Jónsdóttir er í tónmeistaranámi við Konunglega tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn. Þótt námið sé ekki hálfnað hefur hún verið valin sem næsti tónmeistari við Kaupmannahafnarfílharmóníuna, ásamt öðrum nemanda.

Hálfhrunin súla eða flísalagt gólf í náttúrunni
Gallerí 78 er glænýtt gallerí við Suðurgötu 3 í Reykjavík. Myndlistarmaðurinn sem þar reið á vaðið með fyrstu sýningu er Þorbjörg Höskuldsdóttir.

Jólasöngvar, rjúkandi jólasúkkulaði og piparkökur
Árni Harðarson kórstjóri tekur að sér að leysa af Jón Stefánsson sem er fjarri Jólasöngvum Langholtskirkju í fyrsta sinn í áraraðir vegna veikinda. En tónleikarnir eru ómissandi í helgihaldi fjölmargra Íslendinga.

Bókmenntaverðlaunin í sjónvarpið
Þórunn Jarla Valdimarsdóttir rithöfundur sendir ráðamönnum tóninn -- hún telur sjálft orðið eiga í vök að verjast.

Slegist og sæst við sérpantaða Kínverja
Borgarleikhúsið er nú yfirfullt af uppblásnum brúðum sem fá að finna rækilega fyrir því í uppsetningu leikhússins á verkinu Njálu. Nú þegar er búið að slátra nokkrum, skíra fleiri og giftast sumum.

Kvenleikstjórar í útrýmingarhættu
Staða kvenna í kvikmyndum rædd á Jafnréttisþingi.

Leika á ensku en syngja og blóta á íslensku
Gamanleikurinn Kate eftir Agnesi Wild var upprunalega sýndur á leiklistarhátíð í Edinborg. Þar fékk hann frábærar viðtökur og hélt áfram til London en í kvöld verður hann frumsýndur í Tjarnarbíói.

Heimafólk vildi horfa á flugvélar og fylgjast með
Friðþór Eydal hefur sent frá sér bókina Hersetan á Ströndum og Norðurlandi vestra. Það er sjötta bók hans um hernám og hersetu hér á landi. Hana prýða margar góðar myndir.

Það verður smá gaul í kvöld
Barítónsöngvarinn Ólafur Kjartan Sigurðarson er kominn til landsins til að syngja ljúfsáran ljóðaflokk eftir Gustav Mahler á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld.

Óska eftir gestum sem þau gera grín að
Saga Garðarsdóttir og Halldór Halldórsson halda nú suður með sýningu sína. Þeim er ekkert heilagt en þau segjast mest gera grínt hvort að öðru. Þau hafa sett saman lista yfir þá sem þau vilja fá á sýninguna sína á laugardag.

Vísir birtir bóksölulistana í heild sinni: Arnaldur og Yrsa bítast um toppinn enn og aftur
Ekkert lát er á vinsældum glæpasagnakóngs og drottningar meðal íslenskra bókakaupenda.

Eldheimar hljóta Hönnunarverðlaun Íslands
Gosminjasýningin sögð miðla einstökum atburði með framúrskarandi hætti.

Spaugstofan er að rífa þakið af Þjóðleikhúsinu
Brjáluð stemmning á Spaugstofusýningum og fullt uppí rjáfur.

Listaverk og fornmunir í hættu
Innan þess svæðis þar sem hættast er við sjávarflóðum í miðborg Reykjavíkur er að finna ómetanleg listaverk, fornmuni, skjöl og annan safnkost. Úr Hafnarhúsinu þyrfti að flytja þúsundir verðmætra listaverka.

Fleiri en Balti í bíómyndum
Ólafur Gunnarsson hótar því að færa sig alfarið yfir í handritaskrif – nýja skáldsagan var næstum gengin af honum dauðum.

Fæðingin tók um tíu ár
Andrea Sóleyjar og Björgvinsdóttir vinnur að útgáfu bókar um getnað, meðgöngu, fæðingu og sængurlegu. Hún hyggst gefa hana út á Kínamarkaði og uppfæra bókina í gegnum árin, enda hætti fólk aldrei að eignast börn.

Kvikmyndafyrirtæki Simons Cowell tryggir sér skáldsögu Ólafs Jóhanns
Syco Entertainment hyggst gera sjónvarpsþáttaröð eftir skáldsögunni Höll minninganna. Ólafur segir tíðindin hafa komið á óvart.

Góð mamma gæti helst breytt mannkyninu
Mæðginin Hugleikur og Ingibjörg ræða uppvöxtinn, heimsendi og tilveruna.

Lífróður að bjartri framtíð Íslensku óperunnar
Steinunn Birna Ragnarsdóttir óperustjóri rær lífróður fyrir Íslensku óperuna sem hún ætlar stóran hlut í íslensku menningarlífi og kynnir hún hér starfsárið 2016 til 2017.

Skrifar fyrir almenning og fornleifafræðinga
Bjarni F. Einarsson fornleifafræðingur lýsir spennandi uppgrefti að Hólmi í Hornafirði á aðgengilegu máli og með fjölda mynda í nýrri bók, Landnám og landnámsfólk – saga af bæ og blóti.

Vigdís í skotlínu myndlistarmanna
Formaður fjárlaganefndar segir útgjaldaauka ríkisins vegna myndlistarmanna ekki á sínu borði.

Sækir myndefnið í svörð og kletta
Elín Rafnsdóttir myndlistarmaður sýnir málverk í sal Íslenskrar grafíkur, Tryggvagötu 17. Þetta er fyrsta einkasýning hennar en við kennslu í FB hefur hún komið mörgum í kynni við listamanninn í sjálfum sér.

Hinn tvöfaldi höfundur
Áhugaverð hugmynd og framsetning en frekar máttlaus úrvinnsla.

Dönsum á mörkum hrolls og húmors
Dalurinn er dansverk sem þær Rósa Ómarsdóttir og Inga Huld Hákonardóttir frumsýna í kvöld og hafa einnig samið. Það er fyrsta atriðið á þriggja daga danshátíð Reykjavík Dans Festival í Tjarnarbíói.

Sögð vera bæði hlýleg og stórbrotin kona
Ragnhildur Thorlacius hefur skrásett stormasama og stórmerkilega ævi Brynhildar Georgíu Björnsson.

Superman, Debussy, Bítlarnir og Chabrier hljóma í hádeginu
Brasskvintettinn Hexagon spilar í Salnum í Kópavogi.