
Lífið

Ferðast um heiminn eins og alvöru Barbie dúkka
Ástralska leikkonan, framleiðandinn og bomban Margot Robbie fer með hlutverk sögulegu dúkkunnar Barbie í samnefndri mynd. Handrit og leikstjórn þessarar nýstárlegu útgáfu af sögu Barbie er í höndum Gretu Gerwick og kemur hún út hérlendis 19. júlí. Robbie hefur nú verið á ferðalagi um heiminn að kynna kvikmyndina og virðist taka hlutverkinu alvarlega í raunheimum, þar sem hún klæðist oftar en ekki bleikum fötum frá fínustu tískuhúsum heimsins.

Kjólatískan í brúðkaupum sumarsins
Brúðkaupstímabilið stendur sem hæst um þessar mundir. Fjöldi fallegra mynda af brúðhjónum og gestum hafa verið áberandi liðnar vikur á samfélagsmiðlum. Kjólaval fyrir veisluhöldin getur reynst vandasamt.

„Í dag máttu vera allt og ég vil fagna því“
„Mig langaði að finna persónulegri nálgun við það að velja fólk á ljósmyndasýningu og á sama tíma gefa fjölbreyttum hópi fólks tækifæri til þess að taka þátt,“ segir tískuljósmyndarinn Kári Sverrisson, sem opnar sýninguna The Art of Being Me, eða Listin að vera ég, í miðbænum á Menningarnótt. Blaðamaður tók púlsinn á Kára.

Fjör með Bylgjulestinni á Írskum dögum
Bylgjulestin heimsótti bæjarhátíðina Írska daga á Akranesi síðasta laugardag en hátíðin fór fram þar síðustu helgi.

Nína Dögg leikur Vigdísi
Tillaga um að veita leikhópnum Vesturporti styrk vegna framleiðslu á leikinni sjónvarpsþáttaröð um Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Nína Dögg Filippusdóttir mun fara með hlutverk Vigdísar.

Þvertaka fyrir að hjónabandinu sé lokið
Kyle Richards segir að orðrómur um skilnað hennar og eiginmanns hennar Mauricio Umansky sé ekki á rökum reistur. Hún segir þó að undanfarið ár sé búið að reyna á hjónabandið sem aldrei fyrr.

Enn eitt Love Island parið í valnum
Enn eitt parið úr bresku raunveruleikaþáttunum Love Island er hætt saman. Að þessu sinni eru það þau Ron Hall og Lana Jenkins sem byrjuðu saman fyrir þremur mánuðum síðan í vetrarútgáfu raunveruleikaþáttanna vinsælu.

Vel heppnað golfmót FM957
Árlegt golfmót FM957 var haldið síðasta föstudag á Hamarsvellinum, skammt fyrir utan Borgarnes.

Eva María Daníels er látin
Kvikmyndaframleiðandinn Eva María Daniels er látin, 43 ára að aldri.

Fer frá Barbie til Narníu
Netflix ætlar að koma fantasíunni Narníu aftur á stóra skjáinn og hefur leikstjórinn Greta Gerwig gert tveggja mynda samning við streymisveiturisann. Hún er nýbúin að leikstýra Barbie sem kemur út seinna í mánuðinum.

Brúðkaupsundirbúningur Katrínar Eddu og Markusar í hámarki: „Honum finnst allt flott sem ég vel“
Samfélagsmiðlastjarnan og verkfræðingurinn Katrín Edda Þorsteinsdóttir gengur að eiga unnusta sinn Markus Wasserbaech innan örfárra daga. Brúðkaupið fer fram á Íslandi en gestir streyma allstaðar að.

Skilin eftir tuttugu og sjö ára hjónaband
Bandaríska leikkonan Kyle Richards og Mauricio Umansky eru að skilja en tuttugu og sjö ár eru liðin síðan þau giftust. Þrátt fyrir að hjónabandið sé að taka enda þá búa þau ennþá saman á meðan þau finna út úr næstu skrefum.

Sumar, sól og stuð hjá íbúum Skálatúns
Í dag fögnuðu íbúar Skálatúns því að Mosfellsbær hafi tekið yfir þjónustu klasans. Voru grillaðar pylsur handa gestum og tóku íbúarnir vel á móti fréttastofu.

Heimiliskötturinn gaf eigendur sína saman
Bandaríska parið Amanda Terry og Steve Terry gekk í hjónaband fyrir skömmu en óhætt er að segja að athöfnin hafi farið fram með óvenjulegum hætti. Vígsluvotturinn var nefnilega heimiliskötturinn þeirra.

Tvöfaldir heimsmeistarar á tveimur dögum: „Ég er hálf orðlaus“
Íslenskir dansarar frá DansKompaní í Reykjanesbæ unnu tvenn gullverðlaun á heimsmeistaramótinu í dansi í dag. Skólastjóri DansKompaní segir að dugnaður og liðsheild sé galdurinn á bakvið þennan magnaða árangur.

Nítján ára dóttursonur Roberts De Niro látinn
Leandro De Niro Rodriguez, barnabarn Óskarsverðlaunaleikarans Roberts De Niro er látinn, nítján ára að aldri. Móðir hans Drena De Niro greindi frá þessu á samfélagsmiðlum í gær og minnist sonar síns.

Leifur Welding orðinn afi
Hönnunar- og framkvæmdamaðurinn Leifur Welding er orðinn afi. Hann birtir gleðitíðindin á samfélagsmiðlum sínum og segist hlakka til að brasa og bralla með afastráknum.

Eigandi Íslensku auglýsingastofunnar selur slotið í Garðabæ
Þormóður Jónsson, eigandi Íslensku auglýsingastofunnar, og eiginkona hans Sigríður Garðarsdóttir hafa sett fallegt einbýlishús sitt við Sunnuflöt í Garðabæ til sölu.

Fjóla úr Eigin konum á von á barni
Fjóla Sigurðardóttir, fyrrum stjórnandi hlaðvarpsins Eigin konur, og Ívar Örn Árnason, knattspyrnumaður, eiga von á sínu fyrsta barni í byrjun næsta árs.

„Líkurnar á átröskun margfaldast eins og maurar á hálfétinni samloku“
Ragnhildur Þórðardóttir, sálfræðingur og einkaþjálfari, betur þekkt sem Ragga Nagli, talar um mikilvægi þess hvernig fullorðnir tala um líkama sinn og mat, sérstaklega í návist barna, í pistli á samfélagsmiðlunum Facebook.

Stjörnulífið: Glæsibrúðkaup fegurðardrottningar og „heitasti rassinn í sumarfrí“
Liðin vika einkenndist af sumarfríi landsmanna, ekki síst hjá stjörnum landsins. Sólríkar myndir af erlendum slóðum eru áberandi á samfélagsmiðlum þessa dagana. Tískudrottningin Elísabet Gunnarsdóttir fór í fjölskyldufrí til Spánar og leikkonan Kristín Pétursdóttur til Ítalíu.

Hlutum gefið framhaldslíf í garðsölu í Hlíðunum
Íbúar í Hlíðahverfi í Reykjavík nýttu veðurblíðuna og gáfu notuðum hlutum framhaldslíf á hverfismarkaði þar sem kenndi ýmissa grasa. Skipuleggjandinn vonast til að viðburðurinn verði haldinn árlega hér eftir.

Okkar eigið Ísland: Allt það helsta úr annarri seríu
Önnur þáttaröð af Okkar eigið Ísland lauk göngu sinni hér á Vísi síðustu helgi þegar Garpur I. Elísabetarson fór í Merkúrker í lauflétt ævintýri.

Öll batterí búin: „Ég ákvað að gera þetta á fimmtudegi þegar Friðrik væri farinn til vinnu“
Hún er rétt rúmlega fimmtug og hefur nú þegar afrekað ótrúlega margt. Byrjaði með manninum sínum aðeins 16 ára, menntaði sig sem leikskólakennari og elskaði það starf, en rak hinn geysivinsæla veitingastað Friðrik V um árabil með eiginmanninum.

„Við hættum að sjá hvers virði mannleg hæfni er“
Advania og Myndlistaskólann í Reykjavík fóru í samstarf þar sem nemendur skólans endurgerðu auglýsingar fyrirtækisins sem gervigreind hafði skapað. Halldór Baldursson, kennari við MíR, horfir óttablöndnum augum til gervigreindarframtíðar en nemendur hans eru bjartsýnni.

Það var eins og okkur væri ætlað að vera saman
Þau Hilda Michelsen og Kristján Ólafsson kynntust fyrst í New York þrátt fyrir að hafa bæði verið búsett í Los Angeles um margra ára skeið. Nú tíu árum síðar eiga þau saman fjögur börn, nokkur óvenjuleg gæludýr og eru með ótal járn í eldinum.

Hefur myndað Eyjar í sjötíu ár: „Þá sá ég að þeir voru að fara með jarðýtuna á húsið mitt“
Vestmanneyingar halda brátt upp á að 50 ár séu frá goslokum í Heimaey. Enginn hefur fest Heimaeyjargosið eða sögu Vestmannaeyja undanfarin 70 ár betur á filmu en Sigurgeir Jónasson ljósmyndari.

Fer óhrædd inn í framtíðina
„Einhverjir hafa spurt mig hvort lagið fjalli um að vera foreldri og ég held að það sé að einhverju leyti rétt. Ég fékk allavega innblástur úr móðurhlutverkinu,“ segir tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, jafnan þekkt sem GDRN. Hún var að senda frá sér lagið Parísarhjól en lagið kom nýtt inn á Íslenska listann á FM í dag.

Veðrið leikur við gesti á Írskum dögum á Akranesi
Veðrið leikur við gesti á Írskum dögum á Akranesi sem settir voru í tuttugasta og fjórða sinn á fimmtudaginn og nær hápunkti í kvöld. Formaður bæjarráðs segir hátíðarhöld hafa gengið vel, bærinn sé fullur af fólki og tjaldsvæðið fullt.

„Karlmenn voru með særandi athugasemdir og reyndu við mig á niðrandi hátt“
Dansarinn Bjartey Elín elskar að leika sér með ólíkar týpur þegar það kemur að klæðaburði og rugla aðeins í norminu. Hún er óhrædd við að fara eigin leiðir í fatavali og rannsaka hvernig framkoma annarra getur breyst eftir því hverju hún klæðist. Bjartey Elín er viðmælandi vikunnar í Tískutali.