
Lífið

Réttarmorð er ný og æsispennandi hljóðsería hjá Storytel
Réttarmorð eftir Sigurstein Másson er ný og æsispennandi hljóðsería sem fer í loftið hjá Storytel í dag mánudag. Um er að ræða sex þætti sem koma vikulega á Storytel næstu fimm mánudaga.

Stjörnulífið: Auddi Blö og Rakel buðu til veislu í London
Október er genginn í garð. Bleika slaufan, tímamót og utanlandsferðir einkenndu liðna viku hjá stjörnum landsins.

Einhleypan: Með meistaragráðu í að njóta lífsins
Kolbrún Ásta Bjarnadóttir starfar sem flugfreyja hjá Play og segist elska starfið og ævintýrin sem því fylgir. Hún lýsir sjálfri sér sem jákvæðri, opinni og hugmyndaríkri konu sem er með meistaragráðu í að njóta lífsins.

Spennandi nýjungar hjá Sumac
Veitingastaðurinn Sumac við Laugaveg í Reykjavík kynnir þessa dagana nýja og spennandi mat- og vínseðla. Sumac hefur verið einn vinsælasti veitingastaður landsins frá því hann opnaði árið 2017 og víst að fjölmargir reglulegir og nýir viðskiptavinir eru spenntir yfir því sjá útkomuna. Sumac er veitingastaður vikunnar á Vísi.

Stjörnufans á NFL: Taylor Swift mætti á annan leik
Hollywood stjörnur með Taylor Swift saman í broddi fylkingar mættu saman á leik bandarísku ruðningsliðanna Kansas City Chiefs og New York Jets þegar þau mættust á MetLife leikvanginum í New York í gær.

Feimin að eðlisfari en elskar að koma fram
„Fyrstu tónleikarnir mínir voru á Músíktilraunum sem ég tók þátt í þegar ég var fimmtán. Þá var ég einmitt með stutt dansatriði, þannig að ég byrjaði mjög snemma að gera eitthvað út fyrir kassann á sviði,“ segir fjöllistakonan Gugusar. Hún er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

Hreyfingin til bjargar eftir sáran sonarmissi
Daníel Sæberg Hrólfsson segist reyna að gera sitt allra besta til þess að vera þakklátur fyrir litlu stundirnar í lífinu og lifa í núinu eftir að hafa misst fjögurra ára gamlan son sinn af slysförum fyrir tveimur árum. Hann sé gott dæmi um að hægt sé að lifa mjög góðu lífi þrátt fyrir slíka lífsreynslu.

Nýsleginn formaður situr fyrir svörum
Gísli Snær Erlingsson, sem er nýtekinn við sem formaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, mun sitja fyrir svörum og ræða framtíðarsýn stofnunarinnar á opnum fundi með kvikmyndagerðarfólki á morgun, mánudag, klukkan 16 í Norræna húsinu.

Fór í fornfræði og guðfræði en gat ekki flúið örlögin
Sigurður Ingvarsson stefndi á fræðimennsku eftir menntaskóla en gat ekki flúið þau örlög að verða leikari. Hann leikur í nýjustu mynd Baltasars Kormáks, Snertingu, og stígur á svið í rokksöngleiknum Eitraðri lítilli pillu eftir áramót. Í vor fór hann á sjó eftir mönun tengdaföður síns og segir það hafa verið ólýsanlega erfitt.

Var í uppeldisbúðum fyrir ungkommúnista
Lögmaðurinn Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hefur átt viðburðaríka ævi og lengi verið áberandi í íslensku samfélagi. Hann ferðast gjarnan um á mótorhjóli, iðkar jóga af miklum krafti og á einnig heimili á Ítalíu sem hann er duglegur að heimsækja ásamt því að ferðast reglulega víða um heiminn.

Urmull af íslenskum myndum á hvíta tjaldinu um helgina
Kvikmyndahátíðin RIFF stendur nú yfir og mun gera næstkomandi viku. Nú um helgina verða íslenskar kvikmyndir í hávegum hafðar og þónokkrar íslenskar myndir sem ekki hafa verið sýndar áður á Íslandi verða á hvíta tjaldinu um helgina.

Suður-kóresk plötusnælda með eitt stærsta danslag ársins
Plötusnældan og tónlistarkonan Peggy Gou hefur verið að gera öfluga hluti í tónlistarheiminum og troðið upp víðs vegar fyrir fjöldann allan af fólki.

„Reyni helst að vera ekki á rassinum“
Rithöfundurinn og lífskúnstnerinn Kamilla Einarsdóttir segist ekki vita nokkurn skapaðan hlut um tísku en finnst mikilvægast að föt sé þægileg, hlý og örugg. Helsta tískureglan hennar er að vera helst ekki á rassinum og kaupa flíkur sem eru með marga vasa því þeir geri lífið skemmtilegra. Kamilla er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Sólargeislinn Amanda í Holtagörðum
Amanda Rós Zhang hefur unnið í Bónus í tólf ár og er þekkt fyrir glaðværð og þýtt viðmót á kassanum í Holtagörðum, þar sem hún mætir viðskiptavinum ávallt með sólskinsbros á vör. Við mæltum okkur mót við Amöndu á kassanum í Íslandi í dag í fyrradag.

FM957 sigraði í leiknum Leikið um landið
Eftir skemmtilega og fjöruga keppni lauk leiknum Leikið um landið á fimmtudag en þar skoraði starfsfólk Bylgjunnar, FM957 og X977 á hvert annað í skemmtilegum þrautabrautum víða um land.

Hættum ekki fyrr en allir Íslendingar eru orðnir tillitssamir
Fyrsti afrakstur samstarfs Sjónstöðvarinnar, leiðsöguhundadeildar Blindrafélagsins og Hopp Reykjavík leit dagsins ljós í vor þegar ný vesti fyrir leiðsöguhunda voru afhent á formlegri kynningu samstarfsverkefnis.

Fréttakviss vikunnar: Kompás, Borgarlína og NFL
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á fréttakvissinu til þess að komast að því. Sem fyrr er aðeins montréttur að launum fyrir góða frammistöðu.

Verk RAX til sýnis á Victoria and Albert safninu
Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson, betur þekktur sem RAX, sýnir nú verk sín á ljósmyndasýningu á Victoria and Albert safninu í Lundúnum. Safnið er á listum yfir virtustu ljósmyndasöfn heims auk þess sem það er stærsta nytjalista- og hönnunarsafn heims.

Vala Kristín og Hildur Vala verða Anna og Elsa í söngleiknum Frosti
Leikkonurnar Vala Kristín Eiríksdóttir og Hildur Vala Baldursdóttir munu fara með hlutverk systranna og prinsessanna Önnu og Elsu í íslenskri útgáfu á söngleiknum Frozen sem frumsýnd verður í Þjóðleikhúsinu í mars næstkomandi.

Sænskur draumur eftir hvatvísa ákvörðun Ásu og Leos
Ferðaljósmyndarinn og ævintýrakonan, Ása Steinarsdóttir og eiginmaður hennar, Leo Alsved, festu kaup á rómantísku gulu timburhúsi í Svíþjóð.

Eltir gamlan draum og lætur skallann ekki stoppa sig
Ásgrímur Geir Logason, leikari og hlaðvarpsstjórnandi Betri Helmingsins, lét gamlan draum rætast þegar hann skráði sig í hárgreiðslunám hjá Hárakademíunni í september.

„Tónlistin mín er alltaf tilraunakennd“
Söngkonan Ingibjörg Friðriksdóttir, eða Inki eins og hún kallar sig, gaf nýverið út lagið Svífa. Þetta er í fyrsta sinn sem hún semur á íslensku.

Óperudraugurinn: Tekist á um framtíð óperunnar á Íslandi
Stefnt er að því að ný þjóðarópera taki til starfa árið 2025 en hún mun taka við því menningarhlutverki sem Íslenska óperan hefur sinnt hingað til. Ekki eru allir á eitt sáttir við áformin.

„Taktu inn þessa töflu og fáðu flatari maga“
„Konur falla auðvitað fyrir allskonar skilaboðum, eins og taktu þessa töflu og líf þitt breytist. Eða eins og ég sá fyrir skömmu, ef þú tekur þetta inn þá færðu flatan maga,“ segir Sigríður Svöludóttir í hlaðvarpsþættinum Spegilmyndinni sem er í umsjón Marínar Möndu Magnúsdóttur.

Engillinn á afgreiðslukassanum
„Ég bara varð að gera þetta,“ segir Viktor Ólason, markaðsstjóri úr Hafnarfirði og höfundur minningargreinar, sem vakti mikla athygli í síðustu viku. Þar minntist Viktor brosmilds afgreiðslumanns í Krónunni, Jóhannesar Sævars Ársælssonar, sem hafði mikil áhrif á hann. Við kynntumst þeim Viktori og Jóa heitnum í Íslandi í dag í gær.

Nýtt líf Öldu Lóu
Alda Lóa Leifsdóttir er að senda frá sér sína fyrstu heimildamynd: Togolísu. Hún er skilin við mann sinn sósíalistaleiðtogann Gunnar Smára Egilsson, hefur hafið djáknanám og er að taka saman efni í bók um hugvíkkandi efni.

Sjálfið okkar: Eðlilegt þótt það breytist hverjir eru bestu vinir okkar
Það getur verið allur gangur á því hverjir teljast okkar nánustu vinir hverju sinni. Því já, þótt við skiljum ekki við vini okkar eins og stundum gerist í sambúð, geta alls kyns hlutir breyst.

Hlær bara að hrútskýringum
Fjöllistakonan Guðlaug Sóley, jafnan þekkt sem Gugusar, hefur náð miklum árangri sem tónlistarkona á undanförnum árum og meðal annars unnið til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Hún byrjaði fimmtán ára gömul að semja tónlist og pródúsera sjálf en takmarkar sig ekki við einn listmiðil. Gugusar er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

Birkir Bjarna og Sophie Gordon eiga von á barni
Knattspyrnumaðurinn Birkir Bjarnason og franska fyrirsætan Sophie Gordon eiga von á barni saman. Parið tilkynnir þetta með pompi og prakt á samfélagsmiðlinum Instagram.

Hryllingur í Dælunni
Strákarnir í Dælunni ætla að láta reyna á taugarnar í kvöld. Þá munu strákarnir spila hryllingsleikinn Outlast.