Lífið

Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart
Sextán liða úrslitin í Kviss héldu áfram á laugardagskvöldið þegar Framarar og Sindri mættust.

Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði
Lisa Marie Presley, söngkona og eina dóttir Elvis og Priscillu Presley, geymdi lík sonar síns, Benjamin Keough tónlistarmanns, á heimili sínu í Calabasa í Kaliforníu, í tvo mánuði eftir andlát hans og hlúði á því.

Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu
Gulli Helga fylgist með íslenskum hjónum taka sín fyrstu skref í því að kaupa sér hús á Sikiley á Ítalíu í áttundu þáttaröðinni af þáttunum Gulli byggir á Stöð 2.

Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni
Hlauparinn Arnar Pétursson og Sara Björk Þorsteinsdóttir, förðunarfræðingur og ljósmyndari, eiga von á dreng. Parið tilkynnti gleðitíðindin á samfélagsmiðlum.

Heyrði varla í bónorðinu fyrir látum
„Ég hef fengið að vera veislustjóri í nokkrum brúðkaupum og veislum svo ég hlakka til að fá núna að vera í hlutverki brúðarinnar,“ segir hin nýtrúlofaða Berglind Jónsdóttir. Berglind, sem starfar hjá breska sendiráðinu og sem danskennari, er búin að vera í sambandi með Halldóri Arnarssyni sálfræðingi í þrettán ár og þurfti ekki að hugsa sig tvisvar um þegar hann bað hennar í Eistlandi á dögunum.

Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið
Haustið er mætt í allri sinni dýrð með gulum veðurviðvörunum og ljúfum stundum innandyra. Árstíðin er oft talin sú rómantískasta þar sem kertaljós og notalegheit ræður ríkjum. Þá er tíminn til að huga að ástinni.

Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“
Spurning barst frá lesenda svo hljóðandi: „Er einhleypur og orðinn þreyttur á stefnumótaöppum! Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“- 35 ára karl

Gullmoli í Giljalandi
Við Giljaland í Fossvogsdal er finna fallegt 235 fermetra raðhús. Húsið var byggt árið 1968 og teiknað af Kjartani Sveinssyni. Ásett verð er 172 milljónir.

Hafi enn verið hreinn sveinn
Lisa Marie Presley segir að tónlistarmaðurinn Michael Jackson hafi sagt sér að hann væri hreinn sveinn þegar þau byrjuðu saman árið 1994. Hann var þá 35 ára en hún 25 ára. Jackson lést árið 2009.

Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London
Skemmtilegt mynd náðist af handboltagoðsögninni Loga Geirssyni og fyrrum forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni í London á dögunum, nánar tiltekið á flugvellinum Heathrow.

Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta
Hjónin Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, og Hanna Katrín Friðriksdóttir, þingflokksformaður, hugsa sér til hreyfings og kveðja Þverholtið.

Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“
Tónlistarmaðurinn Aron Kristinn Jónasson og viðskiptafræðingurinn Lára Portal fagna tíu ár af ást í dag. Hjúin eru enn ástfangin upp fyrir haus eftir áratug saman og segir Aron að hann fái að vakna með bestu manneskju í heimi á hverjum morgni.

Harry og Meghan séu ekki að skilja
Frægustu hjón veraldar, hertogahjónin Harry og Meghan, eru ekki að skilja jafnvel þó að athygli hafi vakið að þau séu nú farin að gera hluti meira í sitthvoru lagi. Þetta segir Guðný Ósk Laxdal, sérlegur sérfræðingur í málum konungsfjölskyldunnar.

Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti
„Allt tal um kynlíf var mikið tabú þá og ég þorði ekki að fara á móti straumnum,“ segir kynlífsmarkþjálfinn Kristín Þórsdóttir sem vissi frá unglingsaldri að hún hefði áhuga á því að vera kynfræðingur. Hún rekur í dag fyrirtækið Eldmóður og stendur fyrir námskeiðinu Kveiktu á þér fyrir þig. Blaðamaður ræddi við Kristínu um kynlífsmarkþjálfunina og tilveruna.

Móðir Whitney Houston látin
Bandaríska söngkonan Cissy Houston, Grammy-verðlaunahafi og móðir tónlistarkonunnar Whitney Houston, er látin, 91 árs að aldri. Hún átti farsælan feril sem söngkona og kom meðal annars fram með stórstjörnunu, Arethu Franklin og Elvis Presley.

Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu
Nýjasta skáldaga Halldórs Armands, Mikilvægt rusl, kemur út fimmtudaginn 10. október. Bókin fjallar um sorphirðumenn í Hruninu og er gefin út af nýstofnaðri útgáfu Halldórs sem heitir Flatkakan útgáfa.

Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu
Rapparinn Kanye West og arkitektinn Bianca Censori eru sögð vera á barmi skilnaðar eftir tveggja ára hjónaband. Ekki hefur sést til hjónanna saman meðal almennings í tvær vikur.

Vann til verðlauna fyrir götubitann
Atli Snær matreiðslumeistari, eigandi Komo veisluþjónustu, stóð uppi sem sigurvegari á evrópsku götubitaverðlaunum liðna helgi.

Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði
Mynd- og rithöfundurinn Bergrún Íris Sævarsdóttir og kærastan hennar, Kolbrún Ósk Skaftadóttir bókastjóri hjá Bókabeitunni, festu kaup á fallegri hæð við Breiðvang í Hafnarfirði.

Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein
Ný sjónvarpsauglýsing fyrir Bleiku slaufuna 2024 var frumsýnd um helgina. Bleika slaufan er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins, tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Auglýsingar Bleiku slaufunnar hafa vakið verðskuldaða athygli í gegnum árin og snert hugi og hjörtu fólks, enda mikið í þær lagt.

Gátu ekki talað saman fyrir syngjandi þjónum
Í fyrsta þættinum af 1 stjarna skelltu þeir Dóri DNA og Steindi Jr. sér til Amsterdam til að prófa hluti sem fá skelfilega einkunn á vefnum. Ein heimsókn á veitingastað byrjaði vel en svo fóru hlutirnir að gerast.

„Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“
Margir nota svokallaða fýlustjórnun í samböndum sem lýsir sér meðal annars í því að fólk fer í fýlu frekar en að tjá sig og ræða saman og vinna í erfiðleikum eða konfliktum.

Fanney Dóra og Aron gáfu syninum nafn
Fanney Dóra Veigarsdóttir, förðurnarfræðingur og áhrifavaldur, og unnusti hennar Aron Ólafsson rafvirkjanemi nefndu son sinn um helgina. Drengurinn fékk nafnið Veigar Óli.

Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið
Stórstjarnan Madonna birti einlæga færslu á Instagram síðu sinni í gærkvöldi þar sem hún minnist bróður síns Christopher Ciccone sem féll nýverið frá eftir baráttu við krabbamein. Hún segir meðal annars að þau systkinin hafi ekki talað saman í einhver ár en hafi þó náð sáttum eftir að Christopher veiktist.

Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi
Afmælisfögnuður, barnalán og sólríkir haustdagar einkenndu liðna viku hjá stjörnum landsins. Gummi kíró minnir fólk til dæmis á að við erum öll einstök eins og við erum, sama hvernig við lítum út.

Eins og þruma úr heiðskíru lofti
Dag einn í nóvember árið 2020 fékk Gunnar Theodór Gunnarsson skilaboð á facebook frá ókunnugri konu í Noregi. Umrædd kona var að leita að afkomendum ákveðins íslensks manns, nánar tiltekið föður Gunnars. Þegar líða tók á samtalið kom í ljós að Gunnar hafði í 53 ár átt systur úti í heimi án þess að vita nokkuð um það.

Sláturgerð, Sherry og súkkulaði á Hellu
Eitt af haustverkum margra heimila er að taka slátur til að eiga í kistunni í vetur og myndast oft skemmtileg stemming við sláturgerðina. Á hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu er alltaf tekið slátur þar sem heimilismenn eru í aðalhlutverki.

Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið
Ljósmyndasýningin „Upprisa“ sem er unnin af sálfræðingnum Evu Gunnarsdóttur og ljósmyndaranum Richard Shutt opnaði í Núllinu í Bankastræti á föstudag og stendur yfir helgina.

Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi
Bandaríski stórleikarinn Al Pacino segist hafa verið nær dauða en lífi árið 2020 þegar hann var smitaður af Covid-19.

Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu
Bandaríska söngkonan Dolly Parton tilkynnti á föstudag að hún ætlar að gefa eina milljón Bandaríkjadala í hjálparstarf vegna fellibylsins Helenu sem reið yfir Bandaríkin í síðustu viku.