Lífið

Mætti haldast í lokuðu Facebook hópunum
Sverrir Þór Sverrisson segist ekki nenna að pæla í því þegar hann fær á sig neikvæða umræðu fyrir grín sem fólki finnst fara yfir strikið. Sveppi, sem er gestur í podcasti Sölva Tryggvasonar, segir aðalatriðið að konan hans og börnin séu sátt við hann. Í þættinum rifjar Sveppi upp hvernig hann byrjaði fjölmiðlaferilinn á því að ganga hringinn í kringum Ísland.

Guðmundur í Brim nældi í treyjuna
Knattspyrnukonan Glódís Perla Viggósdóttir, nýkjörinn íþróttamaður ársins, seldi áritaða treyju sína úr 3-0 sigrinum á Þýskalandi síðasta sumar til útgerðarmannsins Guðmundar Kristjánssonar, oft kenndur við Brim.

Stjörnulífið: Áramót, kossaflens og þakklátar stjörnur
Nýtt ár er gengið í garð 2025 og virðist það falla vel í kramið hjá stjörnum landsins ef marka má færslur þeirra á samfélagsmiðlum síðastliðna daga. Tímamótatilkynningar, heilsusamleg markmið og þakklætispistlar þar sem farið er yfir liðið ár eru áberandi ásamt fallegum myndum.

Hafdís leitar að húsnæði
Einkaþjálfarinn og samfélagsmiðlastjarnan Hafdís Björg Kristjánsdóttir leitar nú að nýju húsnæði fyrir sig og strákana sína. Hún og Kristján Einar Sigurbjörnsson betur þekktur sem Kleini eru hætt saman.

Zaldana, Brody, Moore og Culkin meðal sigurvegara kvöldsins
Það var mikið um dýrðir þegar Golden Globe verðlaunahátíðin fór fram í gær en meðal sigurvegara kvöldsins voru Demi Moore, Zoe Saldana, Adrien Brody og Kieran Culkin.

Asninn að baki Asna allur
Asninn Perry sem var fyrirmyndin að Asna í myndunum um Shrek er dauður en hann varð 30 ára.

Stjörnufans á afmælistónleikum Gunnars Þórðarsonar
Mikill stjörnufans var á 80 ára afmælistónleikum Gunnars Þórðarsonar, eins ástsælasta tónlistarmanns þjóðarinnar, sem fóru fram í gær við góðar undirtektir.

Sleppti gallabuxunum þegar hann giftist sinni drottningu
Norski skákmeistarinn Magnus Carlsen og Ella Victoria Malone létu gefa sig saman í náinni athöfn í Holmenkollen-kapellunni í Osló síðdegis í gær.

Brenton Wood er látinn
Sálarsöngvarinn Brenton Wood er látinn, 83 ára að aldri. Tónlistarmaðurinn, sem hét Alfred Jesse Smith, var þekktastur fyrir smellinn The Oogum Boogum Song sem kom út árið 1967.

„Bara það að fá að taka þátt er ómetanlegt“
„Þetta er alltaf tengt föðurhlutverkinu einhvern veginn, okkur líður eins og við séum fyrir og það er engin þörf fyrir okkur,“ segir 32 ára íslenskur faðir.

Draumurinn langþráði kostaði hana hjónabandið
Kona sem kyssti tónlistarmanninn Romeo Santos á tónleikum með bandarísku hljómsveitinni Aventura í Dómeníska lýðveldinu segir að atvikið hafi bundið enda á hjónaband sitt.

Krakkatían: Þrettándinn, stjörnukerfið og barnaefni
Krakkatían er mætt aftur á nýju ári! Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Krakkatíunni!

Bráðum verður hún frú Beast
YouTube-stjarnan James Donaldson, sem er mun betur þekktur sem MrBeast, og Thea Booysen eru trúlofuð.

Heimili Walter White til sölu eftir áralangan ágang aðdáenda
Einbýlishús sem gerði garðinn frægan sem heimili efnafræðikennarans og fíkniefnabarónsins Walters White í sjónvarpsþáttunum Breaking Bad er nú komið á sölu. Eigendur hússins hafa um árabil þurft að sætta sig við þá miklu athygli sem húsið vekur meðal aðdáenda þáttanna, og þurft að gera ýmsar öryggisráðstafanir.

Jeff Baena eiginmaður Aubrey Plaza látinn
Bandaríski kvikmyndagerðarmaðurinn Jeff Baena, eiginmaður leikkonunnar Aubrey Plaza, er látinn, 47 ára að aldri.

„Þurfti að berjast við tárin“ þegar Vigdís mætti í settið
„Það var eiginlega eitt það magnaðasta sem ég hef upplifað á ferlinum mínum,“ segir Nína Dögg Filippusdóttir leikkona um daginn sem Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands heimsótti settið við tökur á þáttaröðinni Vigdísi sem nú er í sýningu.

Fréttatían: Áramótin, Kryddsíld og útlönd
Fréttatían er mætt aftur á nýju ári! Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Sem fyrr er aðeins montréttur að launum fyrir góða frammistöðu.

Kynntist eiginkonunni á swingklúbbi
Það eru fáir sem kunna að lifa lífinu eins og Atli Steinn Guðmundsson blaðamaður Morgunblaðsins sem um árabil hefur fært Íslendingum magnaðar fréttaskýringar frá Noregi þar sem hann er búsettur. Atli gifti sig í síðustu viku við Miklagljúfur en það sem vakti hve mesta athygli við ráðahaginn var að kærasta þeirra hjóna gaf þau saman.

Léttir að heyra öskrið í dóttur sinni
Skaðræðisöskur eins árs stúlku var gífurlegur léttir fyrir unga móður eftir snjóflóðin í Neskaupstað í desember 1974. Fólk sem lifði af mannskæð snjóflóð í Neskaupstað árið 1974 hugsar til fjölskyldu og vina í fámenna plássinu.

Ekkert einvígi í Söngvakeppninni 2025
Ekkert einvígi verður í Söngvakeppninni 2025 heldur mun stigahæsta lagið í úrslitum bera sigur úr býtum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu þar sem fram kemur að keppnin fari fram þrjár helgar í febrúar.

Mætti á undan Katrínu Tönju til landsins og kom henni á óvart
Katrín Tanja Davíðsdóttir, tvöfaldur heimsmeistari í Crossfit, og Brooks Laich, fyrrverandi hokkíleikmaður, trúlofuðu sig þann 16. desember síðastliðinn, eftir þaulskipulagt bónorð Brooks. Katrín deildi trúlofunarsögunni í einlægri færslu með fylgjendum sínum á Instagram.

Bak við tjöldin í Kryddsíldinni 2024
Kryddsíld Stöðvar 2 var á sínum stað á Gamlársdag líkt og síðustu þrjátíu og fjögur ár. Með sanni má segja að þátturinn hafi verið sérstaklega fjörugur í þetta skiptið en Hulda Margrét ljósmyndari tók myndir af hamagangnum á bak við tjöldin.

Kúkakallinn í Kópavogi rataði aftur í Kviss ársins
Kviss ársins var aftur á ferðinni á Stöð 2 milli jóla og nýárs. Þá var árið 2024 gert upp á skemmtilegum nótum. Tvö lið og mikið hlegið.

Aron Kristinn og Lára eiga von á barni
Tónlistarmaðurinn Aron Kristinn Jónasson og viðskiptafræðingurinn Lára Portal eiga von á sínu fyrsta barni. Frá þessu greinir Aron í færslu á Instagram.

Anný Rós og Guðlaugur sjóðheitt par
Anný Rós Guðmundsdóttir öldrunarlæknir og Guðlaugur Ingi Guðlaugsson fasteignasali hjá Eignamiðlun eru nýtt og sjóðandi heitt par.

Snúin aftur á Instagram og kynnir nýjan þátt á Netflix
Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex, og Netflix hafa opinberað nýja þætti hennar sem frumsýndir verða í mánuðinum. Af því tilefni sneri hún aftur á samfélagsmiðla á nýrri síðu á Instagram.

Bjarni sveiflaði servíettunni af gleði
Flestir landsmenn virðast telja Sjálfstæðisflokkinn halda bestu partýin. Formaður Framsóknarflokksins telur landsmenn vanmeta stuðið hjá flokknum.

Margir rugli saman áramótaheitum og markmiðum
Of margir ruglast á áramótaheitum og markmiðum. Margir setja sér ekki nægilega sértæk markmið um áramótin, sem eru ekki heldur endilega besti tíminn fyrir slíkt þrátt fyrir allt.

„Það eru fleiri með köggla en þú“
Inga Sæland spennti tvíhöfðana í Kryddsíldinni og sagði fleiri vera með köggla en Sigmundur Davíð þegar rætt var um litla þingflokka. Sigurður Ingi sagði Sigmund ekkert þurfa að mæta á þingið fyrst Miðflokkurinn væri kominn með átta þingmenn.

Lúxusíbúð Kára og Erlu til Bandaríkjamanna
Lúxusíbúð Kára Knútssonar lýtalæknis og Erlu Ólafsdóttur fyrrverandi bankastarfsmanns við Bryggjugötu í Reykjavík hefur verið seld. Hún var keypt af bandarísku hjónunum Tracy Hancock og Kenneth Matthew Hancock.