
Lífið

Kjaftæði að það sé ekki hægt að gera betur: „Við höldum áfram að berjast“
Í lokaþættinum af Spjallið með Góðvild ræðir Sigurður Hólmar Jóhannesson framkvæmdastjóri Góðvildar um verkefnið við Ásdísi Örnu Gottskálksdóttur formann félagsins.

Priscilla Presley er alsæl með myndina um kónginn Elvis sem hlaut tólf mínútna lófatak
Fyrrverandi eiginkona kóngsins, Pricilla Presley hefur vart undan að hrósa myndinni um líf hans úr smiðju Baz Luhrmann sem var forsýnd í Cannes. Líf Elvis Presley var viðburðaríkt áður en hann lést aðeins 42 ára gamall og því á mörgu að taka.

„Hélt að líf mitt væri búið þegar ég hætti að drekka“
Þær Bryndís Morrison og María Kaldalón eiga það sameiginlegt að hafa hætt að drekka og hafa þær báðar komist að því að lífið var þá ekki búið, þvert á það sem þær héldu að myndi gerast. Saman halda þær úti hlaðvarpinu Taka tvö og er það um edrúmennskuna.

„Ég hef marg oft upplifað gjaldfellingu á mér sem leikara af því að ég er hinsegin“
Leikarinn Bjarni Snæbjörnsson segist hafa óskað sér þess að vera ekki samkynhneigður, þóst hafa áhuga á stelpum og bælt niður tilfinningar sínar í langan tíma áður en hann kom út úr skápnum.

Becca og Thomas trúlofuð: „HANN SAGÐI JÁ!“
Bachelor in Paradise parið Becca Kufrin og Thomas Jacobs eru trúlofuð. Becca bað hans fyrir nokkru síðan en nú eru þau tilbúin að deila fréttunum. Thomas sagði í færslu að það hljómaði vel að hún ætlaði að halda sér á tánum til lífstíðar.

Hjónin eiga von á sínu öðru barni
Modern Family leikarinn Jesse Tyler Ferguson og eiginmaður hans leikarinn Justin Mikita eiga von á sínu öðru barni. Jesse deildi gleðifréttunum á samfélagsmiðli sínum en fyrir eiga þeir tæplega tveggja ára son.

Hélt að Dóri hefði verið í ástarsambandi við hálfsystur sína
Skítamix fór af stað á nýjan leik á dögunum og er um að ræða þáttaröð númer tvö. Í þættinum í gær fór Halldór heim til tónlistarkonunnar Bríetar sem er einn vinsælasti listamaður landsins.

Stjörnulífið: Sólardagar, útskriftir og Írafár
Sólin gladdi Íslendinga um helgina en margir eru þó á faraldsfæti. Áhrifavaldaferð í spilavíti í Tallin, Írafárstónleikar, sólarmyndir og útskriftir tóku yfir samfélagsmiðlana síðustu daga.

„Eftir ár þá fann ég að þetta var kannski ekki alveg fyrir mig“
Þráinn Kolbeinsson, er einn vinsælasti ævintýraljósmyndari landsins. Hann flakkar um landið og fangar fegurð þess á sinn einstaka hátt.

Stökkið: „Í byrjun voru ófáir dagar þar sem ég var á barmi þess að gefast upp“
Förðunarfræðingurinn Auður Sif Jónsdóttir flutti upphaflega til Los Angeles árið 2013 til þess að stunda nám við fagið. Eftir að hafa fallið fyrir borginni og faginu fór hún aftur út í nám árið 2016 og starfar þar í dag sem sjálfstætt starfandi förðunarfræðingur.

George Shapiro látinn
George Shapiro, umboðsmaður, framleiðandi og annar stofnanda umboðsskrifstofunnar Shapiro/West & Associates, er látinn 91 árs að aldri.

Lúsmýið mætt í partýið
Þó svo að landinn taki sumrinu fagnandi þessa dagana, eftir strembinn vetur, er stemmning ekki alveg jafn mikil fyrir öllu sem þessari annars dásamlegu árstíð fylgir. Lúsmýinu!

„Finn alltaf mikinn mun á mér eftir gott deit kvöld með kærastanum“
Anna Fríða Gísladóttir er lífskúnstner sem hefur látið til sín taka í atvinnulífinu á undanförnum árum. Hún starfar forstöðumaður markaðsmála hjá flugfélaginu PLAY, elskar kaffi og segir sjaldan nei við góðri steik. Anna Fríða er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum.

Fréttakviss vikunnar #70: Síðustu spurningar fyrir sumarfrí
Hversu vel fylgist þú með fréttum og líðandi stund? Taktu þátt í Fréttakvissi sem er í boði á Vísi á laugardögum.

Voru á góðum stað áður en þau opnuðu hjónabandið
Hjónin Þórhildur Magnúsdóttir og Kjartan Logi Ágústsson hafa valið sér óhefbundið sambandsform sem kallað er fjölástir. Þau kjósa að vera ekki einkvæn sem þýðir að þau geta átt í tilfinninga- og kynferðislegu sambandi við aðra einstaklinga utan hjónabandsins.

Mark Zuckerberg sýnir myndir frá Íslandsreisunni
Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, virðist hafa notið dvalarinnar á Íslandi vel ef marka má myndir sem hann deildi á samfélagsmiðlinum í kvöld.

Írafár fær tvöfalda platínuplötu
Fyrsta plata hljómsveitarinnar Írafár hlaut viðurkenningu fyrir sölu á yfir 20.000 eintök. Platan „Allt sem ég sé“ kom út árið 2002 og hafa lögin á henni notið gríðarlegra vinsælda í gegnum tíðina.

Lady Zadude krýnd dragdrottning Íslands
Dragdrottningin Lady Zadude, eða öðru nafni Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson, söng sig inn í hug og hjörtu áhorfenda og dómara í Tjarnarbíó í gær og hlaut titilinn dragdrottning Íslands.

Mamma mia! ABBA heldur tónleika í fyrsta skipti í fjörutíu ár
ABBA stimplar sig inn í framtíðina og heldur sína fyrstu tónleika í rúmlega fjörutíu ár með aðstoð tækninnar í formi sýndarveruleikatónleika. Meðlimir hljómsveitarinnar þau Agnetha, Anni-Frid, Benny og Björn komu öll saman opinberlega við frumsýningu tónleikanna.

„Verð ekki stressaður, ég er vanur sjónvarpsmaður“
Fréttir með Finnboga hafa slegið í gegn á Instagram. Eva Laufey hitti fólkið á bakvið miðilinn, Finnboga og Melkorku, í Íslandi í dag á Stöð 2 á miðvikudagskvöldið og fékk að kynnast þeim báðum.

„Bless“
Spjallþáttastjórnandinn Ellen DeGeneres hefur nú kvatt þáttinn sinn í síðasta skipti eftir nítján þáttaraðir. Hún bauð Jennifer Aniston velkomna sem síðasta gest þáttarins en hún var einnig fyrsti gesturinn þegar þættirnir hófu göngu sína árið 2003.

„Annars deyr maður út af þessu“
Róbert Jóhannsson, fréttamaður og þjálfari, greindist með krabbamein í ristli og við endaþarm undir lok síðasta árs. Valdimar Högni Róbertsson, sonur hans er aðeins níu ára og byrjaði með hlaðvarpið „Að eiga mömmu eða pabba með krabba“ til þess að hjálpa sér og öðrum að komast í gegnum veikindin.

„Þá opnaði ég bara orðabók undir M og leitaði að einhverju sniðugu“
Tónlistarmaðurinn Magnús Thorlacius hefur gert garðinn frægann undir listamannanafninu Myrkvi og einnig með hljómsveitinni Vio en nú er komið nýtt lag frá honum sem heitir Villt fræ.

Trommari Yes er fallinn frá
Breski tónlistarmaðurinn Alan White, sem var trommari í rokksveitinni Yes, er látinn, 72 ára að aldri. Hann lést á heimili sínu í Bandaríkjunum í gær eftir glímu við veikindi.

Andrew Fletcher látinn sextugur að aldri
Andrew Fletcher, hljómborðsleikari og stofnmeðlimur bresku raftónlistarsveitarinnar Depeche Mode er látinn. Hljómsveitin tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum í gær en Fletcher var sextíu ára að aldri.

Ray Liotta látinn
Stórleikarinn Ray Liotta er látinn 67 ára að aldri.

„Ungir strákar eru oft að verða gerendur án þess að átta sig á því“
Aktívistinn Sólborg Guðbrandsdóttir, einnig þekkt undir listamannanafninu Suncity, segir fólk oft ekki átta sig á því hvað felst í kynfræðslu og tengi það aðeins við kynferðislegar athafnir en hún leggur til að fræðslan fari fram á öllum skólastigum.

Leikari afhjúpaður fyrir að leika nýja persónu í hverju viðtali
Allt er þegar þrennt er, eins og sannast í máli Hákonar Jóhannessonar leikara sem var „afhjúpaður“ í Íslandi í dag fyrir að setja upp sakleysislegan en fjölbreyttan leikþátt í hvert sinn sem fjölmiðlamaður gerist svo óheppinn að beina að honum hljóðnema.

Björg og Tryggvi eiga von á barni
Fjölmiðlakonan Björg Magnúsdóttir og auglýsingahönnuðurinn Tryggvi Þór Hilmarsson eiga von á barni. Frá þessu greinir Björg á Instagram.

Höddi Magg til liðs við RÚV
Sparkspekingurinn Hörður Magnússon verður álitsgjafi á RÚV í umfjöllun ríkisútvarpsins um Mjólkurbikarinn, deildarkeppni karla og kvenna í knattspyrnu.