
Körfubolti

Fógetinn farinn frá Hlíðarenda
Valsmenn hafa ákveðið að segja skilið við bandaríska leikmanninn Sherif Ali Kenney sem leikið hefur með liðinu í vetur.

Mega hætta á Facebook og bjóða sig fram
Það gekk á ýmsu undir lok félagsskiptagluggans í Bónus deild karla í körfubolta sem lokaði á föstudagskvöld. Sífellt stærri prófílar koma hingað til lands að spila og erlendir leikmenn sjaldan, ef einhvern tíma, verið eins margir í efstu deild. En hvenær á að segja stopp?

Passar inn í framtíðarsýn og menningu Dallas að losa sig við Luka
Nico Harrison, framkvæmdastjóri NBA-liðsins Dallas Mavericks, tók í gikkinn á einum ótrúlegustu skiptum í sögu deildarinnar þegar Luka Dončić var skipt til Los Angeles Lakers. Harrison segir skiptin passa inn í framtíðarsýn og menningu Dallas-liðsins.

Körfuboltakvöld: Tilþrif 16. umferðar
Sextánda umferð Bónus-deildar karla í körfubolta fór fram um liðna helgi. Þar sýndu leikmenn listir sínar og að sjálfsögðu fór Körfuboltakvöld yfir bestu tilþrif umferðarinnar.

Pétur stígur til hliðar hjá Keflavík
Pétur Ingvarsson er hættur sem þjálfari Keflavíkur í Bónus deild karla í körfubolta. Frá þessu greinir Keflavík á samfélagsmiðlum sínum.

„Vita allir að þetta er ömurlegt trade fyrir Dallas“
Aðalmálið í Lögmálum leiksins í dag er að sjálfsögðu risaskiptin á milli Dallas Mavericks og LA lakers, á þeim Luka Doncic og Anthony Davis, og eru sérfræðingarnir ekki alveg sammála um hversu galin þau séu.

Aþenustelpur hafna því alfarið að vera beittar ofbeldi
Leikmenn körfuboltaliðs Aþenu í efstu deild kvenna hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þær hafna því alfarið að vera beittar ofbeldi af hálfu þjálfara síns Brynjars Karls Sigurðssonar.

Keflavík bætti Callum Lawson við á síðustu stundu
Breski körfuboltamaðurinn Callum Lawson er genginn aftur til liðs við Keflavík og mun leika með liðinu það sem eftir er af tímabilinu í Bónus deild karla.

Pabbi Doncic: „Luka á þetta ekki skilið“
Sasa Doncic, pabbi Luka Doncic, er ekki síður en allir aðrir furðu lostinn yfir þeirri ákvörðun forráðamanna Dallas Mavericks að láta einn allra besta leikmann heims fara.

„Andlegur styrkur“ einkennir topplið Tindastóls
Sigtryggur Arnar Björnsson var stigahæsti leikmaður Tindastóls sem vann toppslaginn gegn Stjörnunni. Hann segir andlegan styrk einkenna liðið og líst vel á lokasprettinn sem framundan er.

Uppgjörið: Haukar - Þór Þorl. 99-100 | Fyrsti útisigur Þórs í þrjá mánuði
Þórsarar unnu Hauka í bráðfjörugum leik. Eftir þrjá leikhluta benti lítið til þess að Haukar myndu koma til baka en heimamenn komust yfir þegar innan við mínúta var eftir og úr varð æsispennandi leikur. Þórsarar unnu að lokum með minnsta mun 99-100.Þetta var fyrsti sigur Þórs Þorlákshafnar á útivelli síðan 24. október á síðasta ári.

Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 82-90 | Tindastóll tyllti sér á toppinn
Tindastóll vann sterkan átta stiga sigur er liðið heimsótti Stjörnuna í toppslag Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld, 82-90.

Tryggvi og félagar aftur á sigurbraut
Tryggvi Snær Hlinason og félagar hans í Bilbao unnu langþráðan 16 stiga sigur er liðið tók á móti Forca Lleida í spænsku ACB-deildinni í körfubolta í dag.

Deildarmeistaratitillinn undir í kvöld: Dagur Sig á skjá og Dúllubar opinn
Tvö efstu lið Bónus deildar karla í körfubolta mætast í Umhyggjuhöllinni í Garðabæ í kvöld. Þetta eru tvö efstu lið deildarinnar og þetta er því hálfgerður úrslitaleikur um deildarmeistaratitilinn.

Martin í fjórða sæti í stoðsendingum í EuroLeague
Íslenski landsliðsbakvörðurinn Martin Hermannsson hefur verið duglegur að finna liðsfélaga sína í EuroLeague deildinni í vetur.

Gefur Los Angeles Lakers A í einkunn en Dallas fær falleinkunn
Dallas Mavericks og Los Angeles Lakers komu öllum á óvart með einum stærstu leikmannaskiptum sögunnar í NBA deildinni þegar liðin skiptust á súperstjörnum í nótt. Það sem meira er Dallas Mavericks var tilbúið að láta frá sér leikmann sem flest félög dreymir um að byggja lið sín í kringum.

Ein stærstu og óvæntustu skipti sögunnar
Los Angeles Lakers og Dallas Mavericks hafa snúið NBA-heiminum á hvolf með skiptum sem senda Luka Doncic til Lakers og Anthony Davis til Mavericks.

Grátlegt tap í framlengdum leik
Styrmir Snær Þrastarson og félagar hans í Belfius Mons máttu þola grátlegt þriggja stiga tap gegn Den Helder í sameiginlegri deild Belgíu og Hollands í körfubolta í kvöld.

Tólf stig Elvars dugðu ekki til í botnslagnum
Elvar Már Friðriksson og félagar hans í Maroussi máttu þola fimm stiga tap er liðið tók á móti Aris í botnslag grísku úrvalsdeildarinnar í körfubolta í dag, 73-78.

„Ég trúi því ekki að þetta sé að fara að gerast“
Grískir bræður munu spila saman í Tindastólsbúningnum í Bónus deild karla í körfubolta í vetur og það var ekki að sjá annað á frammistöðu Giannis Agravanis í síðasta leik að hann væri kátur með að vera að fá stóra bróðir í liðið.

Gaf sautján stoðsendingar og Ármannsstelpur áfram einar taplausar
Ármann fagnaði ellefta sigri sínum í röð í 1. deild kvenna í körfubolta í gærkvöldi þegar Laugardalsliðið vann fimmtíu stiga stórsigur á b-liði Keflavíkur.

Booker ekki valinn og vill breyta stjörnuleiknum
Devin Booker var ekki valinn til að taka þátt í stjörnuleik NBA deildarinnar. Hann telur tímabært að stækka stjörnuleikinn þannig að bæði stjörnuliðin megi hafa fimmtán leikmenn, líkt og liðum í deildinni hefur verið leyft undanfarin fjögur tímabil.

„Áhugaverð vegferð að vera með tvo Njarðvíkinga að dæma“
Pétur Ingvarsson, þjálfari Keflavíkur, var hvorki sáttur við spilamennsku leikmanna né störf dómaranna þegar liðið laut í lægra haldi fyrir KR í Bónus-deild karla í körfubolta í Vesturbænum í kvöld.

Búbbluhausinn verður í banni
Isaiah Stewart hefur verið dæmdur í eins leiks bann, án launa, í NBA deildinni eftir að hafa safnað upp sex óíþróttamannslegum villum á sig á tímabilinu. Hann mun taka bannið út í kvöld, á sama tíma og Detroit Pistons mun gefa búbbluhaus í hans mynd.

Uppgjör og viðtöl: KR - Keflavík 97-93 | Dýrmætur sigur fyrir Vesturbæinga
KR vann dýrmætan fjögurra stigur, 97-93, þegar liðið tók á móti Keflavík í 16. umferð Bónus deildar karla. Keflvíkingar lentu mest sautján stigum undir en tókst að jafna í fjórða leikhluta, KR bar þó af þegar allt kom til alls. Liðin voru jöfn að stigum fyrir leik en KR hefur nú safnað sextán stigum.

Lekur úr lofti og leik Hauka og Þórs frestað
Leik Hauka og Þórs Þorlákshafnar sem átti að fara fram í 16. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld hefur verið frestað. Leikurinn er kominn á dagskrá sunnudaginn 2. febrúar kl. 17:00.

Keflvíkingar bæta við sig
Körfuboltamaðurinn Nigel Pruitt, sem lék með Þór Þ. í fyrra, er genginn í raðir Keflavíkur og mun klára tímabilið með liðinu.

Nashville vill fá WNBA lið og nefna í höfuðið á frægum þjálfara
Stjórnarformaður NHL liðsins Nashville Predators og eiginkona hans vinna nú að því að fá WNBA til Kantrýborgarinnar.

Einn nýliði í landsliðinu
Benedikt Guðmundsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, hefur valið tólf leikmanna hóp fyrir síðustu tvo leikina í undankeppni EM 2025.

Stólarnir svara með bombu á lokadegi gluggans
Tindastóll hefur tryggt sér krafta gríska landsliðsmannsins Dimitris Agravanis. Óhætt er að segja að um gríðarlegan liðsstyrk sé að ræða og afar áhugaverða viðbót við leikmannaflóruna í Bónus-deildinni í körfubolta.