Körfubolti

Heimsmeistararnir tryggðu sér Evrópumeistaratitilinn
Spánverjar eru nú bæði heims- og Evrópumeistarar í körfubolta eftir átta stiga sigur gegn Frökkum í úrslitaleik Evrópumótsins í kvöld, 88-76. Var þetta fjórði Evrópumeistaratitill Spánverja á seinustu þrettán árum.

Þjóðverjar tryggðu sér bronsið
Þjóðverjar unnu til bronsverðlauna á Evrópumótinu í körfubolta er liðið vann 13 stiga sigur gegn Pólverjum í dag, 82-69.

Schröder til Lakers á ný og Westbrook gæti sest á bekkinn
Leikstjórnandinn Dennis Schröder hefur samið við Los Angeles Lakers um að leika með liðinu á næstu leiktíð í NBA deildinni í körfubolta. Lakers staðfesti skiptin skömmu eftir að Schröder skoraði 30 stig í tapi Þýskalands gegn Spáni í undanúrslitum EuroBasket, Evrópumóts karla í körfubolta.

Heimsmeistararnir mæta Frökkum í úrslitum
Spánn og Frakkland mætast í úrslitum EuroBasket, Evrópumóts karla í körfubolta. Frakkland vann stórsigur á Póllandi fyrr í dag en nú í kvöld vann heimsmeistarar Spánar fimm stiga sigur á Þjóðverjum, lokatölur 96-91 og Spánverjar komnir í úrslit.

Frakkar flugu í úrslit með risasigri
Frakkar tryggðu sér farseðilinn í úrslit Evrópumótsins í körfubolta með afar öruggum 41 stigs sigri gegn Pólverjum í dag, 95-54.

Treyja Jordans orðin verðmætasti íþróttaminjagripur sögunnar
Chicago Bulls keppnistreyja sem Michael Jordan klæddist í úrslitum NBA árið 1998 varð í nótt dýrasti íþróttaminjagripur sögunnar þegar hún seldist á uppboði fyrir 10,1 milljón dollara.

Liðið orðið klárt hjá KR-ingum
KR-ingar eru orðnir fullmannaðir fyrir komandi keppnistímabil í Subway-deild karla í körfubolta, að sögn Helga Más Magnússonar þjálfara liðsins. Síðasti púslbitinn er frá Lettlandi.

Isabella aftur í Breiðablik
Breiðablik tilkynnti í dag að félagið hefði endursamið við Isabellu Ósk Sigurðardóttur og mun hún leika með Blikum á komandi tímabili í Subway-deild kvenna.

Evrópumeistararnir úr leik
Pólverjar gerðu sér lítið fyrir þegar liðið sló Evrópumeistara Slóvena úr leik í 8-liða úrslitum EuroBasket í kvöld, 90-87.

Frakkar áfram í undanúrslit eftir sigur í framlengdum leik gegn Ítölum
Frakkar eru komnir áfram í undanúrslit EuroBasket eftir átta stiga sigur á Ítalíu eftir framlengdan leik, 93-85.

Sektaður um einn og hálfan milljarð fyrir kvenhatur og rasisma
Robert Sarver, eigandi Phoenix Suns í NBA-deildinni í körfubolta, hefur verið dæmdur í ársbann af deildinni og sektaður um himinháa fjárhæð eftir rannsókn á meintu kvenhatri og rasisma.

Haukum spáð sigri en ÍR falli
Haukum er spáð sigri í Subway-deild kvenna í körfubolta í vetur en Íslandsmeisturum Njarðvíkur er spáð 2. sæti. Nýliðum ÍR er spáð falli.

Þjóðverjar í undanúrslit eftir öruggan sigur gegn Grikkjum
Þjóðverjar eru komnir í undaúrslit Evrópumóts karla í körfubolta eftir öruggan ellefu stiga sigur gegn Grikkjum í kvöld, 107-96.

Spánverjar komu til baka og fara í undanúrslit
Spánverjar eru komnir í undanúrslit á Evrópumóti karla í körfubolta, EuroBasket, eftir 100-90 sigur á Finnum í 8-liða úrslitum í Berlín í dag. Þeir mæta annað hvort Þýskalandi eða Grikklandi í undanúrslitunum.

Gaf leikmönnum kreditkortið í sigurvímunni á EM
Átta liða úrslitin á EM karla í körfubolta hefjast í dag. Gleðin virtist hvergi meiri en hjá Ítölum með að komast svo langt í keppninni og þjálfari liðsins sagðist hafa látið leikmenn fá kreditkortið sitt til að fagna að vild.

Sutt í Vesturbæinn
KR hefur samið við Saimon Sutt um að leika með liðinu í Subway deild karla í körfubolta á komandi leiktíð. Um er að ræða fjölhæfan 27 ára gamlan leikmann sem kemur frá Eistlandi.

Grikkir síðastir inn í 8-liða úrslitin
Grikkir keyrðu yfir Tékkana þegar mest á reyndi í síðasta leik 16-liða úrslitanna á EM í körfubolta.

Serbar óvænt úr leik á EM
Ítalir gerðu sér lítið fyrir og skelltu firnasterku liði Serba í 16-liða úrslitum EM í körfubolta.

Stórleikur Markkanen skilaði Finnum í 8-liða úrslit
Finnland vann átta stiga sigur á Króötum í 16-liða úrslitum EuroBasket í dag, 94-86.

Úkraína á heimleið af EuroBasket
Pólland sló nágranna sína frá Úkraínu úr leik í 16-liða úrslitum á EuroBasket í körfubolta í dag með átta stiga sigri í sveiflukenndum leik, 94-86.

Dramatíkin allsráðandi í 16-liða úrslitum EM í körfubolta
Fjögur lið tryggðu sig inn í 8-liða úrslit Evrópukeppninnar í körfubolta í dag.

Belgar réðu ekki við Doncic
Luka Doncic skoraði tæplega helming stiga Slóvena þegar sótti enn einn sigurinn fyrir Evrópumeistara í 16 stiga sigri Slóvena á Belgíu í 16-liða úrslitum EuroBasket í dag, lokatölur 88-72.

Endurkoma Frakka tryggði þeim sæti í 8-liða úrslit
16-liða úrslit EuroBasket gátu varla hafist á meira spennandi leik þegar Frakkar unnu Tyrki með einu stigi eftir framlengdan leik, 87-86.

Sárafáir dæmi til að fá ellefu þúsund krónur
Útborguð laun dómara fyrir leik í Subway-deildunum í körfubolta eru rétt rúmar ellefu þúsund krónur. Dómarar þurfa meðal annars að mæta á leikstað klukkutíma fyrir leik og starfinu fylgja ýmsar aðrar kvaðir sem ekki er greitt aukalega fyrir.

Þjóðverjar léku sér að Ungverjum og mæta Svartfjallalandi í 16-liða úrslitum
Þjóðverjar unnu 35 stiga stórsigur á Ungverjum í lokaleik B-riðils á EuroBasket, 106-71.

Frakkar réðu ekki við Doncic | Belgar í 16-liða úrslit
Luka Doncic hoppaði upp í annað sæti yfir flest stig skoruð í einum leik í sögu EuroBasket er hann setti 47 stig á töfluna í sex stiga sigri Slóveníu á Frökkum í B-riðli EuroBasket í dag.

Beverley um að spila með LeBron og Davis: „Þeir eru að spila með mér“
Það verður seint sagt að nýjasti leikmaður Los Angeles Lakers í NB deildinni í körfubolta , sé ekki með munninn fyrir neðan nefið. Patrick Beverley benti Anthony Davis og LeBron James góðfúslega á að hann hefði farið í úrslitakeppnina á síðustu leiktíð en ekki þeir.

Litáen vann úrslitaleikinn og fer áfram | Spánn vann A-riðil
Tveir leikir voru á dagskrá á Evrópumóti karla í körfubolta, EuroBasket, fyrri hluta dags. Spánn fagnaði sigri í A-riðli og Litáen tryggði sæti sitt í 16-liða úrslitum.

Doncic kom meisturunum aftur á sigurbraut | Jókerinn atkvæðamestur í sigri Serba
Fjórum seinustu leikjum kvöldsins á Evrópumótinu í körfubolta er nú lokið. Luka Doncic dró vagninn fyrir ríkjandi meistara Slóvena er liðið vann átta stiga sigur gegn Þjóðverjum, 88-80, og Nikola Jokic var atkvæðamestur í liði Serba er liðið vann 11 stiga sigur gegn Ísrael, 89-78.

Giannis fór mikinn í stórsigri Grikkja
Nóg var um að vera fyrri hluta dags á Evrópumóti karla í körfubolta, EuroBasket, sem fram fer í Tékklandi, Georgíu, Ítalíu og Þýskalandi. Línur tóku að skýrast fyrir framhaldið.