

Karla- og kvennalið unnu leiki kvöldsins í Lengjubikarnum í fótbolta örugglega.
Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA í Bestu deild karla, segir leikmannahóp liðsins kláran fyrir komandi tímabil. Rúnar Már Sigurjónsson er að líkindum á leið til félagsins þegar heilsa hans leyfir.
Knattspyrnumaðurinn Aron Jóhannsson hefur framlengt samning sinn við Val og mun því spila með liðinu í Bestu deild karla í knattspyrnu næstu árin.
Formannsframbjóðendur KSÍ voru í Pallborði dagsins á Vísi og í þættinum var birt niðurstaða könnunar íþróttadeildar meðal aðildarfélaga KSÍ. Það er að segja þeirra sem munu kjósa á ársþinginu á laugardag.
Guðni Bergsson, frambjóðandi í formannskosningu Knattspyrnusambands Íslands, svaraði í dag fyrir gagnrýni á störf sín þegar hann var áður formaður KSÍ. Guðni segir að málin sem urðu til þess að hann hafi sagt af sér hafi tekið mikið á sig og sína. Segist hafa tekið ábyrgð með því að hætta sem formaður og að hann sé nú reynslunni ríkari.
Félögin í efstu tveimur deildum karla og kvenna í fótbolta fengu samtals 300 milljónir króna á síðasta ári frá Íslenskum toppfótbolta, hagsmunasamtökum félaganna í þessum deildum.
Pallborðið verður á Vísi klukkan 14.00 í dag og að þessu sinni mæta mennirnir sem berjast um formannsstólinn hjá KSÍ.
Valur og Stjarnan hlutu bæði viðurkenningu KSÍ í ár fyrir háttvísi og prúðmennsku en Drago-stytturnar eru jafnan afhentar í aðdraganda ársþings KSÍ sem fram fer um næstu helgi.
Haukar þurfa enn á ný að sætta sig við það að sjá á eftir ungri stórefnilegri knattspyrnukonu leita annað. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir hefur samið við Val.
Knattspyrnufélögin Berserkir og Mídas hafa staðið saman undanfarin ár en nú leggja þau sínum nöfnum í bili og taka upp nýtt nafn á samstarf sitt.
Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er aftur orðaður við Val. Hann er um þessar mundir án samnings.
Íslands- og bikarmeistarar Víkings R. skoruðu magnað mark í sigri sínum gegn Aftureldingu um helgina, í Lengjubikar karla í fótbolta.
Skotinn Steven Lennon lagði nýverið knattspyrnuskóna á hilluna eftir farsælan feril. Hann situr ekki auðum höndum og nú á þjálfun hug hans allan.
Ljóst er að besta knattspyrnukona Bestu deildarinnar undanfarin ár, Arna Sif Ásgrímsdóttir, verður ekki með meisturum Vals á þessu ári eftir að hún sleit krossband í hné.
Góður vinur einnar stærstu knattspyrnustjörnu heims, Erlings Haaland, gæti átt eftir að standa í vörn Skagamanna þegar þeir snúa aftur í Bestu deildina í sumar.
Margir frábærir framherjar hafa spilað í íslensku deildinni og einn þeirra er kominn yfir hundrað mörk. Tímamót hjá þeim markahæsta kallar á vangaveltur um hver sé sá besti.
Forseti Leikmannasamtaka Íslands segir að meirihluti leikmanna í efstu deildum karla og kvenna vilji sumarfrí yfir hásumarið.
Valur vann öruggan 5-1 sigur á Fylki í Lengjubikarnum í kvöld. Fyrirliðinn Arna Sif Ásgrímsdóttir fór meidd af velli í fyrri hálfleik. Óttast er að um krossbandsslit sé að ræða.
Unnur Ýr Haraldsdóttir hefur spilað sinn síðasta fótboltaleik á ferlinum en hún hefur lagt skóna á hilluna eftir langan og farsælan feril með ÍA.
Skoski knattspyrnumaðurinn Steven Lennon, markahæsti erlendi leikmaður í sögu efstu deildar á Íslandi, er hættur að spila fótbolta og hefur snúið sér að þjálfun.
Brottfall efnilegs íþróttafólks er alltaf mikið áhyggjuefni og ný rannsókn kannaði betur hver þróunin hefur verið í þessum málum.
Hollenski markvörðurinn Guy Smit er genginn til liðs við KR og hefur samið við félagið til eins árs.
Vísir stóð fyrir vali á bestu liðum í íslenskum karlafótbolta undanfarin fjörutíu ár, eða frá 1984 þegar þriggja stiga reglan var tekin upp. Hér má sjá niðurstöður kosningarinnar.
Málfríður Erna Sigurðardóttir er komin aftur heim í Val og ætlar að klára farsælan fótboltaferil sinn á Hlíðarenda í sumar.
ÍA varð Íslandsmeistari með gríðarlegum yfirburðum 1993 og vann bikarkeppnina að auki. Skagamenn jöfnuðu stigamet og fjölga þurfti leikjum um níu til að markamet þeirra yrði slegið. ÍA kórónaði svo frábært tímabil með glæstum sigri á Hollandsmeisturum Feyenoord þar sem Ólafur Þórðarson skoraði frægt skallamark.
FH varð Íslandsmeistari annað árið í röð undir stjórn Ólafs Jóhannessonar. FH-ingar höfðu gríðarlega yfirburði í deildinni, unnu fyrstu fimmtán leiki sína og tryggðu sér titilinn með sigri á sínum helsta andstæðingi. Tryggvi Guðmundsson og Auðun Helgason sneru heim með sannkölluðum glæsibrag og áttu frábært tímabil.
Þrátt fyrir að hafa orðið 38 ára gamall á dögunum hefur Arnór Sveinn Aðalsteinsson ákveðið að taka slaginn með Breiðabliki í Bestu deild karla í knattspyrnu á komandi leiktíð.
Kristrún Rut Antonsdóttir og Íris Una Þórðardóttir munu leika með Þrótti Reykjavík í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Þær koma báðar frá Selfossi sem féll úr deildinni á síðasta ári.
Víkingur vann tvöfalt í annað sinn á þremur árum undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar. Víkingar höfðu gríðarlega yfirburði í deildinni, unnu fyrstu átta leiki sína, fengu bara tvö mörk á sig í þeim og urðu Íslandsmeistarar þegar fjórar umferðir voru eftir. Þeir fengu ellefu stigum meira en næsta lið. Víkingur varð einnig bikarmeistari fjórða sinn í röð.
Yfirmaður knattspyrnusviðs KSÍ gagnrýnir úthlutun úr Afrekssjóði ÍSÍ. KSÍ hefur ekki fengið úthlutað úr sjóðnum á sjöunda ár.