

Janus Daði Smárason og Ómar Ingi Magnússon léku stórt hlutverk í liði Magdeburg er liðið vann afar öruggan 15 marka sigur gegn Melsungen í Íslendingaslag í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 39-24.
Bikarmeistarar Aftureldingar eru úr leik í Powerade-bikar karla í handbolta eftir sjö marka tap á útivelli gegn ÍBV í dag, 34-27.
Gummersbach vann tveggja marka sigur þegar liðið mætti Eisenach í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik.
Fram vann stórsigur á Stjörnunni þegar liðin mættust í Olís-deild kvenna í Garðabæ í kvöld.
Danska liðið Frederecia sem Guðmundur Guðmundsson þjálfari mátti sætta sig við tap gegn GOG á heimavelli í dag.
Haukur Þrastarson og félagar hans í Kielce eru komnir aftur á topp pólsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir öruggan ellefu marka útisigur gegn Azoty-Pulawy í dag, 28-39.
Ólafur Stefánsson stýrði Aue til sigurs í þýsku B-deildinni í handbolta í kvöld. Liðið vann gríðarlega mikilvægan fjögurra marka sigur á Ludwigshafen. Þá stóð Sveinbjörn Pétursson vaktina í marki liðsins.
Valur styrkti stöðu sína á toppi Olís deildar kvenna enn frekar með sterkum sigri gegn ÍBV á Hlíðarenda. Eftir jafnan og spennandi fyrri hálfleik tók Valur algjörlega fram úr í þeim seinni, lokatölur 33-24.
Handboltaþjálfarinn Dagur Sigurðsson er hættur þjálfun japanska karlalandsliðsins sem hann hefur stýrt frá árinu 2017, þrátt fyrir að samningur hans hafi náð fram yfir Ólympíuleikana í sumar.
Kristján Örn Kristjánsson, Donni, hefur ekki æft handbolta frá því á EM vegna meiðsla í öxl. Félag hans PAUC í Frakklandi stendur frammi fyrir því að verða dæmt niður um deild en það kemur ekki að sök fyrir Donna sem rær á ný mið í sumar.
FH lagði botnlið Selfoss í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Þá unnu Haukar góðan sigur á Víking.
Aldís Ásta Heimisdóttir og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir áttu stórleik þegar Skara vann öruggan tíu marka sigur á Hallby í sænsku úrvalsdeild kvenna í handbolta.
Handknattleiksþjálfarinn Erlingur Richardsson er hættur sem þjálfari karlalandsliðs Sádi-Arabíu, sem hann tók við í ágúst síðastliðnum.
Stjarnan tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Powerade-bikar kvenna í handknattleik eftir fimm marka sigur á Gróttu í kvöld.
Afturelding vann sigur á HK þegar liðin mættust í Kórnum í Olís-deildinni í handknattleik í kvöld. Afturelding fer upp í þriðja sæti deildarinnar með sigrinum.
Ómar Ingi Magnússon og Janus Daði Smárason voru í liði Magdeburg í kvöld sem vann góðan útisigur á Kiel í þýska handboltanum. Þá var íslenskur þjálfaraslagur í leik Hannover-Burgdorf og Gummersbach.
Grótta gerði góða ferð til Vestmannaeyja í dag því liðið gerði jafntefli við ÍBV í Olís-deild karla í handknattleik. Þá vann Stjarnan sigur á KA í Garðabæ.
Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar í danska handboltanum styrktu stöðu sína í öðru sæti deildarinnar með sigri í kvöld. Halldór Jóhann Sigfússon og lið hans Nordsjælland mátti hins vegar sætta sig við stórt tap.
Dagur Sigurðsson gæti orðið næsti landsliðsþjálfari Króatíu í handbolta, og þar með fyrsti útlendingurinn til að stýra liðinu. Hann er sagður í viðræðum við króatíska handknattleikssambandið.
Toppliðin í Olís-deild kvenna, Valur og Haukar, mættust í átta liða úrslitum Poweradebikars kvenna nú í kvöld. Leikið var á Hlíðarenda þar sem heimakonur sigruðu 32-28 í spennandi leik og tryggðu sig í leiðinni í bikarhelgina sem fer fram í næsta mánuði.
Í kvöld fór fram fyrsti leikur 15. umferð Olís-deildar karla þegar Fram fékk Val í heimsókn. Völtuðu Valsarar yfir heimamenn í leiknum. Lokatölur 28-36.
Valur vann í kvöld stórsigur á Fram í Úlfarsárdal í fyrsta leik 15. umferðar Olís-deildar karla, 28-36 lokatölur.
ÍR tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Powerade-bikars kvenna í handbolta með tíu marka sigri gegn HK, 21-31.
Selfoss tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Powerade-bikars kvenna í handbolta með nítján marka stórsigri gegn KA/Þór, 34-15.
Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hefur samþykkt tillögur stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ að úthlutun Afrekssjóðs ÍSÍ fyrir árið 2024 en styrkveitingar ÍSÍ til sambandsaðila nema alls rúmlega 512 milljónum króna.
Kvennahandboltaliðið Vipers frá Kristiansand í Noregi hefur unnið Meistaradeildina undanfarin þrjú tímabil en mikilvægasta barátta félagsins í dag er kannski utan vallar.
Franska handboltakonan Lucie Granier skoraði magnað mark í Meistaradeildinni um helgina og mark sem fékk um leið samfélagsmiðla til að rifja upp frábært mark íslenska landsliðsmannsins Óðins Þór Ríkharðssonar frá því á EM í Þýskalandi.
Sandra Erlingsdóttir, landsliðskona í handbolta, varð strax óróleg yfir stöðu sinni hjá þýska félaginu Metzingen eftir að hún komst að því að hún væri ólétt. Ýmsar sögur eru af því að félög komi illa fram við óléttar íþróttakonur en áhyggjur Söndru virðast hafa reynst óþarfar.
Stjórnvöld hafa lýst yfir stuðningi sínum við umsókn sameiginlegs framboðs Íslands, Danmerkur og Noregs um að halda HM í handbolta karla 2029 eða 2031.
Stjórnvöld hafa lýst yfir stuðningi sínum við umsókn sameiginlegs framboðs Íslands, Danmerkur og Noregs um að halda HM í handbolta karla 2029 eða 2031.