Handbolti

Frakkar hirtu toppsætið | Jafnt hjá Hollendingum og Spánverjum
Tveir leikir fóru fram í milliriðli tvö á Evrópumóti kvenna í handbolta í kvöld. Hollendingar og Spánverjar gerðu jafntefli í fyrri leik kvölsins, 29-29, og Frakkar unnu öruggan átta marka sigur gegn Svartfellingum í toppslag riðilsins, 27-19.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Stjarnan 22-35 | Stjarnan skellti Selfossi í uppgjöri liðanna um miðja deild
Stjarnan vann sannfærandi 22-35 sigur þegar liðið atti kappi við Selfoss í níundu umferð Olísdeildar karla í handbolta í Set-höllinni á Selfossi í kvöld.

Rúnar að snúa gengi Leipzig við
Landsliðsmaðurinn Viggó Kristjánsson var markahæsti maður vallarins með níu mörk er Leipzig vann öruggan tíu marka sigur gegn botnliði Hamm-Westfalen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 33-23. Eftir erfiða byrjun á tímabilinu hefur liðið nú unnið tvo leiki í röð eftir að Rúnar Sigtryggsson tók við liðinu.

Umfjöllun og viðtöl: KA - FH 27-30 | FH-ingar fyrstir til að vinna í KA-heimilinu
FH vann sterkan 27-30 sigur á KA í Olís deild karla í handbolta norður á Akureyri í dag. FH var sjö mörkum yfir í hálfleik en heimamenn gerðu leikinn spennandi í seinni hálfleik.

Sigursteinn: Vissum af þessari statistík og ætluðum að breyta henni
FH bar sigurorð af KA, 27-30, í KA-heimilinu í dag. FH var sjö mörkum yfir í hálfleik en KA saxaði vel á forskotið í seinni hálfleik en FH-ingar náðu þó að klára leikinn með sigri.

Botnliðið lét Fram hafa fyrir sér
Toppbaráttulið Fram þurfti að hafa fyrir hlutunum er liðið heimsótti stigalausa Harðverja í Olís-deild karla í handbolta í dag. Gestirnir unnu þó að lokum nauman eins marks sigur, 31-32, og heldur sér því í öðru sæti deildarinnar.

FH hefur ekki sótt gull í greipar Akureyringa undanfarin ár
KA og FH mætast í Olís-deild karla í handbolta í KA-heimilinu kl. 16:00 í dag. Gestunum hefur gengið einkar illa á Akureyri undanfarin tímabil. Fyrir leik dagsins er KA í 8. sæti á meðan FH er í 4. sæti Olís deildarinnar.

Teitur og félagar stukku upp í þriðja sætið
Teitur Örn Einarsson og félagar hans í Flensburg stukku upp í þriðja sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta er liðið vann góðan tveggja marka sigur gegn HC Erlangen í kvöld, 31-29.

Norðmenn og Danir deila toppsætinu
Noregur og Danmörk deila toppsæti milliriðils eitt eftir leiki kvöldsins á Evrópumóti kvenna í handbolta. Danir unnu öruggan níu marka sigur gegn Króatíu, 26-17, og Norðmenn höfðu betur gegn Svíum, .

„Við drápum leikinn með fyrstu bylgju hraðaupphlaupum“
Hrannar Guðmundsson, þjálfari Stjörunnar, var sáttur með frammistöðu sinna kvenna er þær unnu fimm marka sigur 36-31 á Haukum í Olís-deild kvenna í kvöld. Stjarnan náði forystu strax á fyrstu mínútum leiksins og hélt henni til leiksloka.

Valskonur ekki í vandræðum með HK
Valur vann öruggan átta marka sigur er liðið heimsótti HK í Olís-deild kvenna í handbolta í dag, 20-28.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan-Haukar 36-31| Stjarnan ekki í vandræðum með Hauka
Stjörnukonur tóku á móti Haukum í 6. umferð Olís-deildar kvenna í handbolta í kvöld. Stjarnan tók forystu strax á fyrstu mínútunum og hélt henni út allan leikinn. Stjarnan sigraði að lokum með fimm mörkum 36-31.

Öruggt hjá Fram á Akureyri
Fram gerði góða ferð til Akureyrar í Olís deild kvenna og vann ellefu marka sigur á KA/Þór, lokatölur 24-35.

Umfjöllun: ÍBV - Grótta 34-31 | Rúnar dró vagninn gegn Seltyrningum
Eyjamenn tóku á móti Gróttu í níundu umferð Olís deildar karla en Eyjamenn höfðu fyrir leik tapað tveimur deildarleikjum í röð og unnu síðast í deildinni fyrir meira en mánuði síðan. Leikurinn í dag var leikinn af krafti og endaði með þriggja marka sigri ÍBV, 34-31.

Umfjöllun: ÍBV - Selfoss 32-27 | Eyjakonur unnu síðast í Eyjum í september
ÍBV tók á móti Selfossi í sjöttu umferð Olís deild kvenna en heimaskonur unnu síðast deildarleik í Vestmanneyjum 17. september síðastliðinn. Eyjakonur höfðu betur og unnu fimm marka sigur, 32-27.

Álaborg marði Ribe-Esbjerg án Arons
Íslendingaliðin Álaborg og Ribe-Esbjerg mættust í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Heimamenn voru án Arons Pálmarsson en það kom ekki að sök þar sem þeir unnu eins marks sigur, 29-28.

Hörður kvartar til EHF vegna framkomu lettneska sambandsins
Lið Harðar í Olís deild karla hefur fengið nóg af framkomu lettneska handknattleikssambandsins í sinn garð. Hefur Hörður lagt inn formlega kvörtun til Handknattleikssambands Evrópu, EHF. Frá þessu var greint á Facebook síðu Hattar.

Flautumark tryggði Rúmeníu sigur
Rúmenía vann Spán með minnsta mun í milliriðli Evrópumóts kvenna í handbolta. Sigurmarkið kom í þann mund sem lokaflautið gall. Fyrr í dag vann Þýskaland sannfærðan sigur á Hollandi.

Slóvenía vann stórsigur og Danir kreistu fram sigur gegn Ungverjum
Keppni í milliriðlum Evópumóts kvenna í handbolta hófst í kvöld með tveimur leikjum. Slóvenía vann öruggan átta marka sigur gegn Króötum, 26-18, og Danir þurftu að hafa fyrir hlutunum gegn Ungverjum, en unnu að lokum nauman tveggja marka sigur, 29-27.

Viggó fór á kostum í fyrsta leik Rúnars | Gummersbach hafði betur í Íslendingaslag
Nýliðar Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar og með þá Elliða Snæ Vignisson og Hákon Daða Styrmisson innanborðs, unnu virkilega sterkan tveggja marka sigur er liðið tók á móti Teiti Erni Einarssyni og félögum hans í Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 31-29. Þá fór Viggó Kristjánsson á kostum er Leipzig vann nauman eins marks sigur gegn Wetzlar í fyrsta leik liðsins undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar.

Óðinn fór á kostum í stórsigri meistaranna
Óðinn Þór Ríkharðsson gerði sér lítið fyrir og skoraði 13 mörk fyrir svissnesku meistaranna í Kadetten er liðið vann afar öruggan 14 marka sigur gegn RTV Basel í kvöld, 36-22.

Orðlaus yfir mögnuðum tilþrifum Benedikts
Valsmenn urðu á dögunum fyrsta íslenska liðið í sögunni til að vinna tvo Evrópuleiki í röð þegar liðið vann þriggja marka sigur gegn Benidorm á útivelli. Áður hafði liðið unnið fjögurra marka sigur gegn ungverska liðinu Ferencváros og leikmenn Vals eru farnir að vekja athygli fyrir utan landsteinana.

Fagnaði marki mótherjanna á EM
Enn á ný komu upp stórundarlegar aðstæður á stórmóti í handbolta þegar Spánn og Þýskaland spiluðu í lokaleik sínum í riðlinum á HM kvenna í handbolta í gær.

Njósnamál komið upp á EM kvenna í handbolta
Evrópumót kvenna í handbolta er í fullum gangi en það er mikið hitamál komið upp á milli tveggja þjóða úr gömlu Júgóslavíu.

Elvar allt í öllu þegar Esbjerg-þríeykið lagði landsliðsþjálfarann
Áhugaverður leikur var í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld þar sem Ribe-Esbjerg og Fredericia Håndboldklub mættust. Þrír Íslendingar spila með fyrrnefnda liðinu og einn með því síðarnefnda sem og Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands, er þjálfari Fredericia.

Stórleikur Gísla Þorgeirs dugði ekki til
Þýskalandsmeistararnir í Magdeburg náðu aðeins jafntefli á heimavelli gegn Rhein Neckar Löwen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Þá vann Melsungen góðan sex marka sigur á Göppingen á útivelli.

Frakkland hirti toppsætið | Spánn í milliriðil
Frakkland og Holland mættust í leik um fyrsta sæti C-riðils á Evrópumóti kvenna í handbolta í kvöld. Franska liðið fór með sigur af hólmi og fer því með fjögur stig í milliriðla. Spánn lagði Þýskaland í D-riðli og tryggði sér þar með sæti í milliriðli.

Svartfjallaland áfram með fullt hús stiga
Svartfjallaland flaug inn í milliriðil á EM kvenna í handbolta eftir þriggja marka sigur á Póllandi, 26-23. Svartfellingar hafa unnið alla þrjá leiki sína og eru til alls líklegar.

Ætlaði alls ekki að verða þjálfari en er nú tekinn við uppeldisfélaginu
Þótt Haukar hafi áður leitað til Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar segir hann að nú hafi hann ekki getað sagt nei við uppeldisfélagið.

Ásgeir Örn tekur við Haukum
Ásgeir Örn Hallgrímsson hefur verið ráðinn þjálfari Hauka í Olís-deild karla til 2025. Hann tekur við liðinu af Rúnari Sigtryggssyni.