
Golf

Jason Day í forystu | Níu jafnir í öðru sæti og Tiger í fínum málum
Fyrsta hringnum á PGA-meistaramótinu í golfi lauk nú seint í kvöld og er Bandaríkjamaðurinn Jason Day með eins höggs forystu á þá níu sem eru jafnir í öðru sæti mótsins.

Ólafía Þórunn leiðir eftir fyrsta hring
Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir leiðir á Íslandsmótinu í golfi eftir fyrsta hring mótsins.

Enginn atvinnukylfingur í efstu þremur sætunum
Atvinnukylfingarnir Axel Bóasson, Andri Þór Björnsson og Haraldur Franklín Magnús eru ekki meðal efstu þriggja kylfinga eftir fyrsta hringinn á Íslandsmótinu í golfi.

Átján ára strákur deilir efsta sætinu á Íslandsmótinu í golfi
Keppni stendur yfir á fyrsta degi á Íslandsmótinu í golfi á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ og það hefur fjölgað í hópi þeirra kylfinga sem hafa lokið leik.

McIlroy um titlaþurrðina: „Heldur ekki fyrir mér vöku“
Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy segir að sex ára bið eftir sigri á risamóti leggist ekki þungt á sálina.

Ólafía Þórunn getur orðið Íslandsmeistari á vellinum þar sem hún byrjaði í golfi
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir keppir á sínu fyrsta Íslandsmóti í golfi í fjögur ár og það á þýðingarmiklum velli fyrir hennar feril.

Guðrún Brá stefnir á sigur þriðja árið í röð
Íslandsmótið í golfi hefst á morgun. Guðrún Brá Björgvinsdóttir gæti þar með unnið sinn þriðja Íslandsmeistaratitil í röð. Það verður nýr Íslandsmeistari í karlaflokki þar sem ríkjandi meistari tekur ekki þátt í ár.

Tiger um áhorfendaleysið: Skref út í óvissuna
Tiger Woods hefur fulla trú á því að hann geti unnið PGA-meistaramótið í fyrsta sinn síðan 2007.

Eru fyrst og fremst fegin og glöð að fá að halda mótið
Ágúst Jensson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Mosfellsbæjar, segist fyrst og fremst vera feginn og glaður að fá að halda Íslandsmótið í golfi.

Haraldur Franklín vann Einvígið
Haraldur Franklín Magnús úr GR vann golfmótið Einvígið á Nesinu í dag.

Justin Thomas sigraði St. Jude Invitational
Justin Thomas er orðinn efstur á heimslistanum í golfi eftir sigur á St. Jude Invitational mótinu í gær.

Einvígið á Nesinu fer fram á mánudag | Ekki tókst að fá styrktaraðila
Líkt og með Íslandsmótið í golfi þá verður engin frestun á hinu árlega golfmóti Einvígið á Nesinu sem fram fer á Seltjarnarnesi á frídegi verslunarmanna.

Engin frestun á Íslandsmótinu í golfi
Íslandsmótið í golfi mun fara fram á tilsettum tíma þann 6. til 9. ágúst í Mosfellsbæ.

Heiðruðu minningu dóttur Villegas á mótinu
Kylfingar á PGA-mótinu í Memphis eru margir með regnbogalitaðan borða til að minnast dóttur Camilo Villegas, Miu, sem lést á sunnudag aðeins 22 mánaða gömul.

Koepka í miklum ham í aðdraganda fyrsta risamótsins
Nú þegar vika er í fyrsta risamót ársins í golfi virðist Bandaríkjamaðurinn Brooks Koepka óárennilegur en þrátt fyrir meiðsli í hné fór hann á kostum á fyrsta hring móts í Memphis í gær.

Algjör óvissa um Íslandsmótið í golfi - „Búið að gera miklar ráðstafanir“
„Auðvitað förum við bara eftir þeim tilmælum sem okkur eru veitt,“ segir Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands. Íslandsmótið í golfi átti að fara fram 6.-9. ágúst en nú ríkir algjör óvissa um mótið.

Beygði af í viðtali eftir sigurinn á 3M Open: „Get ekki beðið eftir því að faðma son minn og konuna mína“
Engum duldist hversu mikilvægur sigurinn á 3M Open mótinu í golfi var fyrir Michael Thompson.

Thompson stóð uppi sem sigurvegari á 3M Open
Bandaríkjamaðurinn Michael Thompson sigraði 3M Open golfmótið á PGA-mótaröðinni en lokahringurinn fór fram í dag.

Tveir Bandaríkjamenn leiða fyrir lokahringinn í dag
Michael Thompson og Richy Werenski eru efstir fyrir lokahringinn á 3M Open mótinu. Mótið er hluti af PGA og fer lokahringurinn fram í dag.

Rahm í fótspor Ballesteros - Minntist ömmu sinnar eftir að hafa náð á toppinn
Jon Rahm vann Memorial-mótið á PGA-mótaröðinni í gær og kom sér með því upp fyrir Rory McIlroy í efsta sæti heimslistans í golfi.

Hákon Örn stóð uppi sem sigurvegari eftir spennandi keppni
Hákon Örn Magnússon, úr Golfklúbbi Reykjavíkur, sigraði í Hvaleyrarbikarnum í golfi á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði í dag eftir nokkrar sviptingar.

Guðrún Brá sigraði örugglega á Hvaleyrarvelli
Íslandsmeistarinn úr Keili, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, sigraði í Hvaleyrarbikarnum í golfi á Hvaleyrarvelli í dag.

Hákon Örn og Guðrún Brá leiða eftir fyrri átján á Hvaleyrinni
Hákon Örn Magnússon, úr GR, og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, úr GK, leiða eftir fyrri hringinn á Hvaleyrabikarnum sem er spilaður á Keili í Hafnarfirði.

Rahm með góða forystu fyrir lokahringinn
Spænski kylfingurinn Jon Rahm hélt uppteknum hætti á þriðja degi Memorial mótsins.

Erfiður lokahringur hjá Guðmundi og Haraldi
Kylfingarnir Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús voru meðal keppenda á lokadegi Euram Bank Open sem fór fram í dag en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni sem og Áskorendamótaröðinni.

Hvaleyrabikarinn verður allur spilaður á morgun eftir aðra frestun í dag
Aftur þurfti að fresta Hvaleyrabikarnum í golfi í dag vegna veðurs.

Tiger með herkjum í gegnum niðurskurðinn
Tiger Woods rétt slapp í gegnum niðurskurðinn en það er langt í efstu menn.

Haraldur kominn upp fyrir Guðmund
Guðmundur Ágúst Kristjánsson náði engum takti á Euram Bank golf mótinu sem fer fram í Austurríki þessa daganna en Haraldur Franklín Magnús er kominn upp fyrir Guðmund.

McIlroy segir erfitt að einbeita sér án áhorfenda
Efsti maður heimslistans segist eiga í vandræðum með að einbeita sér á golfmótum þegar engir áhorfendur eru á staðnum.

Tiger Woods gæti sett nýtt met þegar hann snýr aftur í þessari viku
Í fyrsta sinn í mjög langan tíma verða engin öskur og engin áhorfendaskari sem eltir Tiger Woods á móti á PGA-mótaröðinni.