Gagnrýni

Léttleikandi popp frá Elízu
Heimþrá er þriðja plata Elízu Newman og sú fyrsta sem er með íslenskum textum. Áður var Elíza auðvitað í hinni stórgóðu sveit Kolrössu krókríðandi, sem breyttist í Bellatrix þegar hún fór að vekja athygli erlendis, og svo eftir það í hljómsveitinni Scandinavia.

Litrík, rafmögnuð, unaðsleg
Einar Pálsson skrifaði á sínum tíma umdeilda ritröð um rætur íslenskrar menningar. Hann færði þar rök fyrir því að margt í íslensku fornsögunum væri hluti af goðsagnaheimi Kelta og landa í kringum Miðjarðarhafið.

Eru ekki allir í stuði?
Sú tilfinning að ná ekki í gegn, ná ekki sambandi við annað fólk, standa utan við og á skjön við mannlegt samfélag, er líkt og rauður þráður gegnum allt höfundarverk Gyrðis Elíassonar.

Heilsteypt og öflug rokkplata
Hljómsveitin Skálmöld sló rækilega í gegn með fyrstu plötunni sinni Baldri árið 2010.

Veisluborð lífsins
Þau eru margvísleg umfjöllunarefnin í þessari bók sem skáldið Jónas Þorbjarnarson gekk frá til prentunar skömmu fyrir andlát sitt í fyrra.

Svín fór yfir Rín...
Stundum er því fleygt fram, meira í gamni en alvöru, að það versta sem hent geti rithöfund sé að skrifa frábæra bók. Þar með sé hann kominn á stall í hugum lesenda og kröfur þeirra til verka hans rjúki upp úr öllu valdi.

Svín fór yfir Rín ...
Landvættir er hressileg og afburða vel stíluð skáldsaga en hefði að ósekju mátt vera mun styttri og hnitmiðaðri.

"Ég er Ólafía Arndís Jónsdóttir, þrettán ára ritsnillingur“
Kristjana Friðbjörnsdóttir hlaut Barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkur 2011 fyrir fyrstu bók sína um hana Ólafíu Arndísi, Flateyjarbréfin. Þar skrifar Ólafía bréf til kennara síns meðan hún er í sumarfríi á Flatey.

Að klappa eða klappa ekki
Hádegistónleikar njóta vinsælda og það er töluverð fjölbreytni í boði.

Útgáfa sem er fyrirhafnarinnar virði
Rímnahefðin er aldagömul. Rímnakveðskapurinn er áhugaverður angi af íslenskri bókmenntasögu og rímnasöngurinn mikilvægur hluti íslenskrar alþýðutónlistar fyrri alda.

Saga um vandræðagang
ð ævisaga er eins og nafnið ber með sér saga bókstafsins ð, sem eins og segir í bókinni snýst að miklu leyti um "mistök og vandræðagang í samskiptum við fólk sem ekki notast við þennan óvenjulega bókstaf og hefur jafnvel ekki hugmynd um tilvist hans".

Ráðgátan Rodriguez
Í upphafi 8. áratugarins sendi bandaríska söngvaskáldið Rodriguez frá sér tvær breiðskífur. Gagnrýnendur héldu vart vatni en almenningur var áhugalaus og plöturnar seldust ekkert.

Firnasterkur höfundur
Þar sem himin ber við haf er þriðja plata Jónasar Sigurðssonar og sú fyrsta frá því að hann gaf út hina frábæru Allt er eitthvað fyrir tveimur árum.

Þorparar í þykjustuheimi
Kuðungasafnið ber undirtitilinn 54 ljóð um undarleg pláss. Þar lýsir höfundur í örsögum/prósaljóðum alls kyns skringilegum plássum þar sem hversdagurinn er með töluvert öðrum blæ en í öðrum þorpum á Íslandi.

Og lýkur hér Sturlunga sögu hinni nýju
Með Skáldi, nýjustu sögu Einars Kárasonar, lýkur þríleik sem hófst með Óvinafagnaði árið 2001 og hélt áfram í Ofsa árið 2008.

Fínasta tæknópopp
Friðrik Dór fylgir Allt sem þú átt eftir með Vélrænn, sem er töluvert betri og flott plata.

Þrekvirki um ást og illsku
Illska fjallar um ástarsamband Ómars Arnarsonar og Agnesar Lukauskas. Hún fjallar líka um ástarsamband Agnesar Lukauskas og nýnasistans Arnórs Þórðarsonar.

Gemmér nammi!
Í spilasal herra Litwaks láta tölvuleikjapersónurnar að stjórn spilaranna á opnunartíma, en eftir lokun sinna þær einkalífinu. Sumar fara á fund í stuðningsgrúppunni sinni og aðrar fara á barinn.

Meiri metnað, takk!
Outside the Ring er fimmta sólóplata Friðriks Ómars og sú fyrsta sem er eingöngu með frumsömdu efni. Friðrik er afkastamikill og á að baki fjölmargar plötur sem flytjandi, bæði einn og í samstarfi við aðra, til dæmis Guðrúnu Gunnars, Jógvan og Regínu Ósk.

Krakkinn sem hvarf
Þorgrímur Þráinsson er einn reyndasti barnabókahöfundur landsins, en yfir 20 barna- og unglingabækur hafa komið út eftir hann síðan 1989.

Óspennandi spennusaga
Sagan er tvíþætt. Annars vegar segir frá ungu pari í Reykjavík sem lendir í þeirri skelfilegu lífsreynslu að barni konunnar er rænt. Inn í þá atburðarás fléttast atburðir úr fortíðinni og hulunni er svipt af myrkum leyndarmálum.

Hugmyndafræðilegar rætur
Eggert hefur málað myndir af íslenskum blómum, jurtum og gróðri í áratugi og hefur algera sérstöðu sem myndlistarmaður að þessu leyti.

Undir blikkinu á Arnarhóli
Sagan hverfist um tvö mál sem verða á vegi Erlendar á næturvöktum í götulögreglunni.

Eftirsjá og sársauki
Hljómsveitin Valdimar hefur byggt upp mannorð sitt í íslensku tónlistarsenunni með mörgum tónleikum. Hljómsveitar meðlimir eru Ásgeir Aðalsteinsson, Guðlaugur Guðmundsson, Högni Þorsteinsson, Kristinn Evertsson, Valdimar Guðmundsson og Þorvaldur Halldórsson.

Keyrt til Krýsuvíkur
Sjónrænar og hljóðrænar tilvísanir í ítalskar hrollvekjur 8. áratugarins eru óteljandi og við fáum meira að segja að heyra í öldruðu giallo-drottningunni Suzy Kendall í nokkrum stuttum atriðum.

Óþægilegur samfélagsspegill
Verkið fjallar um það þegar tilveru Indíönu er ógnað við það að sonurinn, kominn hátt á fertugsaldur, fer að sýna óþægilega sjálfstæðistilburði.

Hvorki lítil né alvarleg
Stíllinn er léttur og óperukenndur, fallegar laglínur eru óteljandi. Þetta er hrífandi tónlist. Þrátt fyrir að verkið taki rúman klukkutíma er þar hvergi dauðan punkt að finna.

Listræn sýning Sigur Rósar
Þessir langþráðu Sigur Rósar tónleikar stóðu vel undir væntingum. Spilamennskan var framúrskarandi.

Um minni og gleymsku
Sagan gerist á nokkrum tímasviðum, en sögukona rifjar upp ævi sína frá því að hún er lítil stúlka þar til hún eignast mann og börn og lesendur fá að fylgjast með því hvernig líf hennar hefur þróast.

Airwaves seinni partur
Dómar um þá tónlistarmenn sem komu fram í Hörpu, Listasafni Reykjavíkur og Þýska barnum.