Innlent
301 302 303 304 305 306 307 308 309 … 334 ›
Vy-þrif kærð til lögreglu Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur kært þriffyrirtækið Vy-þrif til lögreglu fyrir ólöglega matvælageymslu í kjallara í Sóltúni í Reykjavík. Fyrirtækið hafði frest til 14. nóvember til að bregðast við erindi eftirlitsins en gerði það ekki. Innlent 16.11.2023 10:45
Bjóða Grindvíkingum ókeypis áskrift að Stöð 2 og Stöð 2+ Stöð 2 hefur ákveðið að bjóða öllum íbúum með lögheimili í Grindavík mánaðaráskrift að Stöð 2 og streymisveitunni Stöð 2+. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Stöðvar 2. Innlent 16.11.2023 10:36
Segja TEAM-Iceland vinnuheiti: Líti út eins og dæmigerð eftiráskýring Mennta- og barnamálaráðuneytið segir hið umdeilda heiti TEAM-Iceland fyrst og fremst vera vinnuheiti sem notað er í erlendum samskiptum, í tengslum við ráðstefnuna Vinnum gullið, og ekki hafi verið fastsett viðeigandi nafn á íslensku á væntanlega afreksmiðstöð. Innlent 16.11.2023 10:34
Kennarar og skólastjórnendur verði líka að fá að vera „íbúar í áfalli“ Stjórn Kennarasambands Íslands hefur sent frá sér ályktun vegna aðstæðna í Grindavík þar sem segir meðal annars að það sé lykilatriði að kennarar og skólastjórnendur í bænum fái tíma og tilfinningalegt svigrúm til að vinna úr því áfalli sem hefur dunið yfir. Innlent 16.11.2023 10:34
Íslenska verður á undan ensku á Keflavíkurflugvelli Stjórn Isavia hefur tekið ákvörðun um að íslenskan verði á undan öðrum tungumálum á öllum leiðbeiningarskiltum fyrir árslok 2024. Í tilefni af Degi íslensrar tungu hefur verið hleypt af stokkunum átakinu Höldum íslenskunni á lofti. Innlent 16.11.2023 10:12
Ef gos hefst nærri Þorbirni gæti hraun þá runnið inn í Grindavík? „Ef gýs nærri Þorbirni getur það vissulega gerst að hraun rynni inn í Grindavík. Það fer þó eftir hvar gossprunga er staðsett hversu útsettur bærinn er fyrir hraunrennsli.“ Innlent 16.11.2023 09:03
Tæplega tvö hundruð Venesúelamenn yfirgáfu landið í gær Tæplega tvö hundruð Venesúelamönnum, sem synjað hafði verið um alþjóðlega vernd, fóru úr landi í gær og var flogið með beinu flugi til Venesúela. Innlent 16.11.2023 08:57
Sundlaugin lekur Ljóst er að ráðast þarf í framkvæmdir á laugarkeri sundlaugarinnar á Þingeyri þar sem það lekur. Eftir að grunur kviknaði um leka var ákveðið að stöðva áfyllingu í einn sólarhring og lækkaði vatnsyfirborðið þá um 25 sentimetra. Dúkurinn er talinn ónýtur enda kominn til ára sinna. Innlent 16.11.2023 08:49
Búið að hafa samband við alla þá sem fá að fara inn í bæinn í dag Búið er að hafa samband við þá íbúa Grindavíkur sem eiga kost á að fara inn í bæinn í dag. Lögregla ítrekar að þeir einir fái að fara inn í bæinn sem aðgerðastjórnin í Reykjanesbæ hefur nú þegar haft samband við. Innlent 16.11.2023 08:00
Ellert Eiríksson er látinn Ellert Eiríksson, fyrrverandi bæjarstjóri Reykjanesbæjar, er látinn, 85 ára að aldri. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja síðastliðinn sunnudag. Innlent 16.11.2023 07:30
Veittu áfengi á skemmtistað eftir lokun Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að tilkynnt var um að verið væri að veita áfengi á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur eftir lokun. Innlent 16.11.2023 07:19
„Konur eiga ekki að vera á Vernd með karlmönnum“ Konu hefur nú í fyrsta sinn verið heimilað að ljúka afplánun í Batahúsi, áfangaheimili fyrir konur sem hafa lokið afplánun dóms. Hingað til hefur þeim aðeins staðið til boða að fara á áfangaheimilið Vernd, sem er eina áfangaheimilið sem hingað til hefur staðið föngum til boða til afplánuna, og farið svo í Batahús að því loknu. Innlent 16.11.2023 07:01
Vaktin: Rafmagn komið á ný Um það bil 400 jarðskjálftar hafa mælst við kvikuganginn á Reykjanesi frá því á miðnætti. Stefnt er að því að halda áfram að hleypa Grindvíkinum heim til sín í dag til að bjarga því sem bjargað verður. Innlent 16.11.2023 06:31
Hvetur þá sem þegar hafa farið inn í Grindavík að hleypa öðrum að Rafmagn fór af hluta Grindavíkur seinni partinn í dag. Yfirlögreglustjóri Almannavarna segir viðgerðarfólk á vegum HS veitna muni fara inn í Grindavík á morgun ef hættumat leyfir. Þá biðlar hann til íbúa Grindavíkur sem þegar hafa fengið að fara heim að hleypa hinum á undan sér. Innlent 16.11.2023 00:05
Hestur losnaði í íslenskri flugvél og kom öllu í uppnám Flugvél Air Atlanta Icelandic þurfti að snúa við í loftinu þegar að hestur, sem verið var að flytja í lest vélarinnar losnaði og olli vandræðum. Innlent 15.11.2023 23:29
Unnið dag og nótt að byggingu varnargarðanna Við Grindavíkurveg eru framkvæmdir í fullum gangi. Þar er unnið dag og nótt að því að reisa varnargarða sem eiga að vernda orkuverið í Svartsengi ef til eldgoss kemur. Varnargarðarnir eru þegar orðnir milli þrjú og fjögur hundruð metra langir. Innlent 15.11.2023 22:28
Segir almennan lesskilning duga til að sjá að dómarinn sé ekki vanhæfur Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður annars sakborningsins í hryðjuverkamálinu svokallaða, er hjartanlega ósammála niðurstöðu Landsréttar um að Daði Kristjánsson dómari sé vanhæfur. Dómaranum hefur verið gert að víkja frá málinu. Innlent 15.11.2023 21:17
Gamla fjárréttin í Ólafsvík hefur verið endurhlaðin Guðrún Tryggvadóttir í Ólafsvík lætur ekki deigan síga þegar kemur að endurhleðslu fjárréttanna á staðnum því hún hefur stýrt þar átaksverkefni við að gera réttina upp með því að endurhlaða hana úr grjóti. Guðrún hvetur bæjarbúa að taka að sér einn og einn dilk í réttinni til að sjá um þannig að sómi verði af. Innlent 15.11.2023 21:03
Dómara hryðjuverkamálsins gert að víkja vegna vanhæfis Landsréttur hefur gert Daða Kristjánssyni, dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur, að víkja frá hryðjuverkamálinu svokallaða vegna vanhæfis. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari málsins í samtali við Vísi. Innlent 15.11.2023 19:37
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Grindvíkingar biðu í röðum eftir að komast heim til að sækja nauðsynjar í dag. Margir hverjir eru gagnrýnir á skipulag almannavarna við að hleypa fólki og fyrirtækjum inn í bæinn. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við íbúa í röðinni, þar á meðal hjón sem voru að reyna í fjórða sinn. Innlent 15.11.2023 18:05
Fluttur á bráðamóttöku eftir fall niður stiga í Kópavogi Vinnuslys varð í Kópavogi í dag þar sem starfsmaður ónefnds fyrirtækis féll niður stiga stigahúss. Starfsmaðurinn var aumur á nokkrum stöðum og með svima eftir fallið. Hann var flutt á bráðamóttöku til skoðunar. Innlent 15.11.2023 17:24
Ásmundur segir tilboðið frá bönkunum móðgun við Grindvíkinga Ásmundur Friðriksson Sjálfstæðisflokki er meðal þeirra sem steig í pontu í dagskrárliðnum störf þingsins. Hann gerði fasteignalán til Grindvíkinga að umtalsefni. Innlent 15.11.2023 16:25
Hjól barnanna tekin ófrjálsri hendi um miðja nótt í Grindavík Rakel Lilja Halldórsdóttir, þriggja barna móðir og nuddari í Grindavík, segist aldrei hafa reiknað með að þurfa að hafa áhyggjur af þjófnaði við heimili sitt. Á eftirlitsmyndavél við hús hennar í Grindavík sáust ungir karlmenn taka reiðhjól sona hennar ófrjálsri hendi og skila þeim svo hlæjandi tuttugu mínútum síðar. Innlent 15.11.2023 15:54
„Ég fór að gráta með henni“ Cynthia Pétursdóttir fékk að fara heim til Grindavíkur í miklu stress í dag og sækja dót. Þar á meðal myndir af fjölskyldunni og nokkrar flíkur. Hún var tíu mínútur á svæðinu og fékk aðstoð frá björgunarsveitarfólki. Ein hélt í höndina á henni á meðan hún grét á leiðinni út úr íbúðinni. Innlent 15.11.2023 15:18
Sumir fái endurtekið að fara meðan aðrir bíði endalaust Kristín Arnberg íbúi í Grindavík er hluti af fimmtán manna fjölskyldu sem dvelur í sumarbústað í Grímsnesi. Þeim hefur reynst erfitt að fá að komast að heimili sínu sem er á hættusvæði. Hún er með hnút í maganum varðandi framtíðina. Innlent 15.11.2023 14:47
Aldrei séð slíkar skemmdir með eigin augum Erlendir fréttamenn við Grindavík sem fréttastofa tók tali segjast aldrei hafa orðið vitni að slíkum atburðum áður. Mikill áhugi sé á atburðunum utan landsteinanna. Bæta mætti upplýsingagjöf. Innlent 15.11.2023 14:21
Páll Óskar og Úlfur Úlfur troða upp til styrktar Palestínu Félagið Ísland-Palestína boðar til samstöðutónleika fyrir Palestínu í Gamla Bíó fimmtudaginn 16. nóvember þar sem fram koma Páll Óskar, Úlfur Úlfur, Cyber og JDFR. Allur ágóði rennur til hjálparsamtaka á Gaza. Þá er efnt til góðgerðarhlaðborðs að morgni fimmtudags. Innlent 15.11.2023 14:14
Krefst tafarlausrar frystingar lána Grindvíkinga vaxtalaust Grindvíkingurinn Sigríður María Eyþórsdóttir, kirkjuvörður í Grindavíkurkirkju, skrifar viðhorfspistil þar sem hún krefur meðal annarra lánastofnanir og Alþingi til að nýta sér ekki neyð Grindvíkinga. Innlent 15.11.2023 13:44
Ákærð fyrir að ljúga nauðgun upp á mann sem svipti sig lífi Tuttugu og þriggja ára gömul kona hefur verið ákærð fyrir að hafa borið mann röngum sökum um að hann hafi nauðgað henni. Tæpum mánuði eftir að maðurinn var handtekinn eftir kæru konunnar fyrirfór hann sér. Innlent 15.11.2023 13:17
„Þetta tekur mjög á“ Anna Lára Guðnadóttir freistar þess að komast inn til Grindavíkur að sækja muni fyrir systur sína. Hún er kvíðin og stressuð að sjá hvert ástandið á húsinu er. Systir hennar fór út úr húsinu allslaus á föstudag. Innlent 15.11.2023 12:59