Innlent

„Umferð einkaflugvéla hefur aldrei verið jafn mikil“
Samtökin Landvernd og Aldin gegn loftslagsvá krefjast þess að flugi með einkaþotum og þyrluflugi um Reykjavíkurflugvöll verði settar skorður og fellt undir mengunarbótareglu Ríó-sáttmálans.

Metfjöldi veðurviðvarana að sumri til eftir rólegasta veturinn
Á áttunda tug veðurviðvarana voru gefna út í sumar en þær hafa aldrei verið fleiri að sumarlagi frá því að Veðurstofan tók viðvaranakerfi sitt upp árið 2017. Á hinn bógin hafa aldrei verið færri viðvaranir að vetri til en síðasta vetur.

Telja nafnið geta orðið nafnbera til ama og segja nei
Mannanafnanefnd hefur lagt blessun sína yfir kvenkynseiginnafnið Kilja og samþykkt millinafnið Baróns. Nefndin hafnaði hins vegar beiðni um kvenkynseiginnafnið Álft þar sem orðið er talið hafa neikvæða og óvirðulega merkingu og gæti þannig orðið nafnbera til ama.

Skrúfuþoturnar sem byltu millilandaflugi Íslendinga
Kaup Flugfélags Íslands á tveimur Vickers Viscount-skrúfuþotum árið 1957 byltu millilandaflugi Íslendinga. Þær voru fyrstu íslensku flugvélarnar með jafnþrýstibúnaði og gátu flogið mun hærra og hraðar en áður þekktist.

Fengu milljarði meira en bróðirinn en þurfa ekki að endurgreiða
Fjögur systkini þurfa ekki að endurgreiða dánarbúi móður sinnar um 200 milljónir króna sem börn látins bróður þeirra kröfðust. Systkinin fengu samanlagt um einum milljarði króna meira í fyrirframgreiddan arf en bróðirinn.

LHÍ stefnir á Skólavörðuholtið í stað Tollhússins
Stefnt er á að öll starfsemi og allar deildir Listaháskóla Íslands (LHÍ) muni sameinast undir einu þaki í núverandi húsnæði Tækniskólans á Skólavörðuholti árið 2029. Áður hafði verið lagt upp með að Listaháskólinn ætti framtíðarhúsnæði í Tollhúsinu. Óskin kemur frá LHÍ og ráðherra segir hugmyndina afar skynsamlega.

Hvor hafði betur í kappræðunum?
Bæði Kamala Harris og Donald Trump eru hæst ánægð með frammistöðu sína í kappræðunum fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í nótt. Flestir virðast telja að Harris hafi sigrað. Farið verður yfir stöðuna eftir kappræðurnar í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag.

Hrókera í nefndum Alþingis
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, mun taka við formennsku í fjárlaganefnd þingsins og Jóhann Friðrik Friðriksson, þingmaður Framsóknarflokksins, í utanríkismálanefnd. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, verður nýr formaður efnahags og viðskiptanefndar.

Einstæð tveggja barna mamma fái alls ekki 421 þúsund krónur
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR gerir grein starfsmanns Sjálfstæðisflokksins, Kristófers Más Maronssonar á Vísi, að umfjöllunarefni í pistli á Facebook. Hann segir þar hverja rangfærsluna reka aðra en víst er að margir ráku upp stór augu þegar þeir virtu fyrir sér útreikninga Kristófers Más. Villa í reiknivél Tryggingastofnunar virðist leika lykilhlutverk.

Fólk kveiki á kerti til minningar um Bryndísi Klöru
Anna Björt Sigurðardóttir hvetur landsmenn til að kveikja á friðarkerti á föstudag til að minnast Bryndísar Klöru Birgisdóttur. Útför Bryndísar Klöru fer fram á föstudag. Anna Björt hefur haft samband við allar stærstu matvöruverslanir landsins sem munu í dag hefja sölu á sérstöku friðarkerti. Allur ágóði af sölu kertisins rennur óskiptur í Minningarsjóð Bryndísar Klöru.

Vill halda Borgarspítalanum opnum þegar að nýi spítalinn opnar
Jón Magnús Kristjánsson, bráðalæknir og fyrrverandi yfirlæknir bráðamóttöku Landspítala, vill að hætt verði við að loka spítalanum í Fossvogi þegar Nýi-Landspítalinn opnar við Hringbraut. Spítalinn verði aftur að Borgarspítala og aðgengilegur til dæmis heimilislæknum sem þurfi að vísa sjúklingum í bráða innlögn á höfuðborgarsvæðinu.

Fær engar upplýsingar um lögreglumál sonar síns
Fjölskylda fjölfatlaðs manns sem slasast hefur í tvígang í umsjá starfsmanna sambýlisins að Hólmasundi gagnrýnir harðlega skort á upplýsingagjöf af hálfu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Seinna slysið hefur verið tilkynnt til lögreglu. Fjölskyldan hefur leitað aðstoðar lögfræðings og hyggst leita réttar síns. Hún gagnrýnir einnig eftirlitsleysi með starfsemi sambýla sem rekin eru af Reykjavíkurborg.

Fundu eggvopn, skotfæri og hnúajárn
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu réðst í húsleit síðdegis í gær þar sem meðal annars var lagt hald á eggvopn, rafbyssu, skotfæri og hnúajárn.

Segir ákvörðun ráðherrans ekki hafa áhrif á stöðu sína
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari og Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari eiga eftir að ræða saman eftir að dómsmálaráðherra gerði kunnugt um að verða ekki við ósk Sigríðar um að víkja Helga Magnúsi frá störfum. Hún segir niðurstöðu ráðherrans ekki hafa áhrif á stöðu sína sem ríkissaksóknari.

„Þetta er allt að koma...eftir sjö ár“
Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru ekki ýkja hrifin af fjárlagafrumvarpinu sem Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra kynnti í dag undir yfirskriftinni „Þetta er allt að koma“. „Þetta er allt að koma...eftir sjö ár,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins.

Myndband af Airbus-þotu Icelandair koma úr málun
Fyrsta Airbus-þotan, sem Icelandair mun taka við, kom út af málningarverkstæði Airbus í Hamborg í gærkvöldi. Þotan er af gerðinni Airbus A321 LR og fær skráningarstafina TF-IAA.

Hvatti þingmenn til málamiðlana og samninga
Forseti Íslands segir skipta miklu að stjórnmálaflokkar geti þrátt fyrir ólík sjónarmið og kapp um hylli kjósenda gefið eftir og náð sameiginlegri lendingu í þágu þjóðarinnar. Lýðræðið krefðist málamiðlana.

„Það þarf neyðaraðgerðir við þessu neyðarástandi“
Mótmæli Alþýðusambands Íslands (ASÍ), BSRB og Kennarasambands Íslands (KÍ) fóru fram í dag. Fólk lét engan bilbug á sér finna þrátt fyrir vind, kulda og að mótmælin hafi verið boðuð með stuttum fyrirvara, fjölmennti á Austurvöll og lét vel í sér heyra.

Ríkisútgjöld aukast um tugi milljarða á næsta ári
Útgjöld ríkisins aukast um 55 milljarða króna á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Fjármálaráðherra segir frumvarpið engu að síður styðja við hjöðnun verðbólgu og þar með lækkun vaxta.

Niðurstaðan í máli Helga Magnúsar „á brúninni“
Ákvörðun dómsmálaráðherra um að víkja vararíkissaksóknara ekki úr starfi þrátt fyrir hegðun hans var á „brúninni“ að mati sérfræðings í vinnurétti. Ómögulegt sé að draga víðtækar ályktanir af niðurstöðunni fyrir opinbera starfsmenn almennt.

Mótmælt við þingsetningu, hávaði og afdrifaríkar kappræður
Síðasti þingvetur kjörtímabilsins hófst formlega í dag þegar Alþingi var sett og fjárlagafrumvarp lagt fram. Mótmælendur söfnuðust saman á Austurvelli og stjórnarandstaðan gagnrýnir útgjaldavöxt í verðbólgu.

Bréf sálfræðings dugði ekki til að Erni yrði gert að víkja
Brotaþoli hnífaárásar í Vesturbæ Reykjavíkur krafðist þess að Erni Geirdal Steinólfssyni, sem ákærður er fyrir manndrápstilraun í málinu, yrði gert að víkja úr dómsal á meðan hann gæfi skýrslu. Landsréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms þar sem beiðni brotaþola er hafnað.

Bein útsending: Krefjast aðgerða fyrir heimilin strax
Alþýðusamband Íslands (ASÍ), BSRB og Kennarasamband Íslands (KÍ) boða til mótmæla á Austurvelli klukkan 16. Á sama tíma hefst fyrsti þingfundur vetrarins. Streymt verður frá mótmælunum á Vísi.

Spara plastið og hvetja fólk til að sækja ekki um ökuskírteini
Nokkurra mánaða bið er eftir að fá nýtt ökuskírteini úr plasti afhent og Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hvetur fólk til þess að nota stafrænt ökuskírteini frekar. Ökuskírteinaframleiðsla er að flytjast heim og fyrst um sinn eru plastbirgðir takmarkaðar en skírteini verða framleidd í neyðartilfellum.

„Litla þjóð sem átt í vök að verjast, vertu ei við sjálfa þig að berjast“
Setning þingsins var að þessu sinni söguleg. Guðrún Karls Helgudóttir tók við embætti biskups Íslands nýverið og kom að hinni kirkjulegu athöfn. Og Halla Tómasdóttir, nýkjörinn forseti landsins, ávarpaði þingið fyrsta sinni og kom hún víða við í ræðu sinni.

Grunaður um hnífaárás eftir strok frá Stuðlum
Einn þeirra þriggja sem handtekinn var í póstnúmeri 108 í Reykjavík í nótt í tengslum við hnífstunguárás skömmu áður var í stroki frá Stuðlum. Hann hefur verið vistaður aftur á meðferðarheimilinu.

Vilja losna við einkaþotur og þyrlur af Reykjavíkurflugvelli
Félagar í samtökunum Hljóðmörk - Íbúasamtök gegn óþarfa flugumferð á Reykjavíkurflugvelli krefjast þess að óþarfa flug hverfi frá Reykjavíkurflugvelli. Að baki samtökunum standa íbúar úr Hlíðum, Vesturbæ Reykjavíkur og Kársnesi. Samtökin vilja einnig fá aðild að opinberum nefndum og samráðshópum um stefnumótun flugvallarins.

Hlaupið í rénun
Jökulhlaup sem staðið hefur yfir í Skálm undanfarna sólarhringa er í rénun.

Nú er of seint að fara í parísarhjólið
Unnið er að því að taka parísarhjólið við Miðbakka í Reykjavík niður. Hjólið fékk að standa á bakkanum frá því um miðjan júní en í könnun kom fram að fimmtán prósent landsmanna hyggðust fara hring í hjólinu í sumar.

Sigmundur veit ekki hvort hann á að hlæja eða gráta
„Ég er búinn að vera í þessum bransa í 15 ár og mér er til efs að ég hafi nokkru sinni séð eins gott fjárlagafrumvarp, það nálgast það að geta heitið fullkomið,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins, inntur eftir viðbrögðum við nýju fjárlagafrumvarpi sem Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra kynnti í morgun.