Innlent

„Brottfararúrræði þurfa ekki að vera grimm eða harðneskjuleg”
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir ómannúðlegt að vista hælisleitendur sem hafa fengið endanlega synjun um vernd hér á landi í fangelsi. Á þessu ári hafi 40 einstaklingar verið vistaðir í fangelsi í gæsluvarðhaldi á grundvelli útlendingalaga.

Enginn verið stuðaður með rafbyssu ennþá
Lögreglumenn hafa fimmtán sinnum dregið rafbyssur úr slíðri eða ræst þær eftir að þeir fengu þær fyrst í hendur í september. Enginn hefur enn verið skotinn með rafbyssu af lögreglumönnum. Hver rafbyssa kostar meira en milljón krónur.

Þétt skjálftavirkni í nótt en ekki nægur kraftur fyrir kvikuhlaup
Viðbragð Veðurstofunnar var virkjað í stuttan tíma í nótt vegna mögulegs kvikuhlaups. Almannavörnum var tilkynnt um málið. Um hálftíma síðar var þó komið í ljós að ekki var um kvikuhlaup að ræða. Nokkuð þétt skjálftavirkni var á milli tvö og þrjú við Stóra-Skógfell og Sýlingarfell.

Verkfallið hafi mikil áhrif á fáar fjölskyldur og lítil áhrif á samfélagið
Móðir barns á leikskólanum Drafnarsteini segir erfitt að réttlæta verkfallsaðgerðir kennara í leikskólum sem nú standa yfir. Ótímabundin verkföll eru í fjórum leikskólum. Jóhanna Dröfn Stefánsdóttir segir í aðsendri grein á Vísi að aðgerðirnar séu mismunun og að betra væri fyrir kennara að leggja niður störf á fleiri stöðum til að ná fram kröfum sínum.

Umræða á Bylgjunni ekki ígildi stjórnvaldsákvörðunar
Formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar segir fokið í flest skjól ef orð hennar um víkkun vaxtarmarka í viðtali í Bítinu teljist sem stjórnvaldsákvörðun. Beiðni um færslu vaxtarmarka á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki komið formlega inn á borð borgarstjórnar.

Selur íbúð sem hann gerði upp og flytur í ódýrari íbúð
Nýbúi frá Moldóvu hyggst selja íbúð sem hann hefur verið að gera upp síðastliðið eitt og hálft ár eins síns liðs og flytja í minni og ódýrari íbúð hinu megin við götuna. Ástæðuna segir hann vera til að borga niður lánið sitt og verða skuldlaus.

Banaslys við Tungufljót
Banaslys varð í dag þegar karlmaður á fertugsaldri féll í Tungufljót nálægt Geysi.

Íbúum fjölgar og fjölgar í Fjallabyggð
Íbúum Fjallabyggðar fjölgar og fjölgar enda mikil uppbygging í sveitarfélaginu því víða er verið að byggja og atvinnuástand er með allra besta móti. Ef eitthvað er, þá vantar fólk í hin ýmsu störf og nóg af húsnæði er fyrir alla.

E. coli-sýking á Mánagarði: „Hræðilegt að horfa upp á barnið svona veikt“
Amma barns af leikskólanum Mánagarði segir hræðilegt að horfa upp á veikindi barnsins, sem liggur á spítala vegna E. coli-hópsýkingar á leikskólanum. Foreldrar barnsins séu hræddir og bugaðir. Barn sem smitaðist fyrir fimm árum er enn að glíma við eftirköst af E. coli-sýkingu.

„Dæmi um hvernig rafræn skilríki geta verið útilokandi“
Skrifstofustjóri Sósíalistaflokksins segir að frambjóðendurnir þrír sem fengu framboð sín á lista flokksins ógild hafi lagt sig alla fram við að skila inn staðfestingu á samþykki með lögmætum hætti. Knappur tími og tæknileg vandræði hafi valdið því að samþykki þeirra fékkst ekki staðfest.

Fara með Intuens-málið fyrir dómstóla sem gæti reynst afdrifaríkt
Sjúkratryggingar Íslands hyggjast fara með niðurstöðu nýs úrskurðar, þar sem lögð var fjörutíu milljóna sekt á stofnunina vegna ólögmætra samninga við myndgreiningarfyrirtæki, fyrir dómstóla. Forstjóri stofnunarinnar segir að málið gæti reynst afdrifaríkt. Hann hafnar ásökunum um mismunun.

Fjölskyldan hrædd og brotin vegna sýkingarinnar á Mánagarði
Amma barns af leikskólanum Mánagarði segir hræðilegt að horfa upp á veikindi barnsins, sem liggur enn á spítala vegna E.coli-hópsýkingar á leikskólanum. Foreldrar barnsins séu hræddir og bugaðir. Barn sem smitaðist fyrir fimm árum er enn að glíma við eftirköst af E.coli-sýkingu. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 í opinni dagskrá.

Maðurinn kominn upp úr fljótinu
Maður féll út í Tungufljót í Árnessýslu skammt frá Geysi síðdegis. Lögreglan á Suðurlandi var með töluverðan viðbúnað, straumvatnsbjörgunarmenn voru sendir á vettvang og þyrla landhelgisgæslunnar var ræst út.

Segir Bjarna ekki hafa ruglast og Pawel fari sjálfur með rangt mál
Pawel Bartoszek segir Bjarna Benediktsson hafa ruglast þegar hann sagði ágreining milli Kópavogs og Reykjavíkur um vaxtamörk. Ágreiningurinn væri í raun milli Kópavogs og Garðabæjar. Hildur Björnsdóttir andmælir Pawel og segir fulltrúa meirihlutans víst hafa skotið niður áform utan vaxtarmarka.

Risa vatnsrennibraut keypt í Þorlákshöfn fyrir 150 milljónir
Ein glæsilegasta og hæsta vatnsrennibraut landsins verður í sundlauginni í Þorlákshöfn en Sveitarfélagið Ölfus hefur fjárfest í tveimur braut fyrir 150 milljónir króna, sem verða settar saman í eina. Stigahúsið upp í brautina verður tólf metra hátt.

Þrír frambjóðendur detta út
Þrír frambjóðendur Sósíalistaflokks í Suður- og Suðvesturkjördæmi voru felldir af listunum tveimur vegna ólögmætra undirskrifta á úrskurðarfundi landskjörstjórnar í dag. Hinir listarnir 59 voru samþykktir án athugasemda.

Bein útsending: Landskjörstjórn tilkynnir um gild framboð
Úrskurðarfundur landskjörstjórnar um gildi framboða í kosningunum til Alþingis fer fram í Þjóðminjasafninu í dag klukkan þrjú. Fundinum verður streymt á Vísi.

Læknar fresta verkfalli
Læknafélag Íslands hefur tilkynnt læknum að það muni boða til nýs verkfalls með þeim hætti sem ríkið telur að sé löglegur. Hver vinnustaður lækna kjósi um verkföllin og þau muni ná til Landspítalans alls. Félagið ætlar því ekki að láta málið fara fyrir Félagsdóm af ótta við að niðurstaðan muni seinka verkfallinu fram í desember.

Ekki ákveðið hvort fleiri fari í verkfall
Ekki er búið að boða til nýs fundar í kjaradeilu Kennarasambandsins við ríki og sveitarfélög. Formaður Kennarasambandsins segir síðasta fund hafa gengið vel en það virðist enn vera langt í samninga.

Hundur brann inni í Fossvogi og ótrúlegt afrek sundkappa
Mikil mildi þykir að ekki hafi farið verr þegar eldur kviknaði í raðhúsi í Fossvogi í nótt. Tveir íbúar í húsinu komust út af sjálfsdáðum en hundur heimilisins komst ekki lífs af. Altjón varð á íbúðinni, að sögn lögreglu. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.

„Þetta hefur verið ströng og erfið nótt“
Mildi þykir að ekki hafi farið verr þegar eldur kviknaði í raðhúsi í Fossvogi í nótt. Tveir íbúar í húsinu komust út af sjálfsdáðum en hundur heimilisins komst ekki lífs af.

Bandarískar kosningar, svikalogn og stjórnmálaslagur
Sprengisandur er á sínum stað klukkan tíu þar sem Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir samfélagsmálin við góða gesti.

Stóð ógn af kærastanum en óforsvaranlegt að stinga hann
Kona hefur hlotið sex mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness vegna stunguárásar sem var framin á heimili hennar í Mosfellsbæ um nótt í aprílmánuði 2021.

Ný göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár opin umferð
Ný göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár í Víðidal, eða Dimmu, eins og áin nefnist einnig á þessum kafla, hefur verið opnuð umferð. Brúin er við Grænugróf neðan við Fella- og Hólakirkju í Breiðholti á móts við félagssvæði Hestamannafélagsins Fáks og var hún tengd við stígakerfi Elliðaárdals með malbiki fyrir helgi.

Komust úr brennandi íbúðarhúsi af sjálfsdáðum
Tveir einstaklingar komust út af sjálfsdáðum eftir að eldur kom upp í íbúðarhúsnæði í Fossvoginum. Það gerðu þessir tveir áður en slökkvilið kom á vettvang.

Vekja athygli á bágri stöðu nepalskra kvenna með fjallgöngu
Hópur íslenskra og nepalskra fjallgöngukvenna gengu á dögunum upp á tindinn Lobuche í Himalayafjöllum til að vekja athygli á stöðu kvenna í Nepal og í fjallgöngugeiranum. Lobuche er rúmlega sex þúsund metra hár.

Skoða að leyfa fólki að hirða muni sem á að farga
Sorpa segist vera tilbúin að skoða nýjar leiðir til að gera fólki kleift að taka við ónothæfum hlutum sem berast með nytjagámum sem á að farga. Þróunarstjóri segir það geta verið hættulegt þegar fólk reynir að bjarga hlutum frá förgun á endurvinnslustöðum.

Sigurður hafi mögulega fengið sig fullsaddan
Eldræða formanns Framsóknarflokksins um útlendingamál hefur vakið mikla athygli. Formaður hjálparsamtaka segir ekkert við framferði hans gefa til kynna að flokkurinn standi fyrir mannúð en stjórnmálafræðingur telur formanninn mögulega hafa fengið sig fullsaddan af andúð annarra flokka.

Brauðtertur til umræðu á haustfundi Landsvirkjunar
Brauðtertur með skinkusalati, mútur og brjálaðir verkfræðingar voru meðal annars til umræðu á haustfundi Landsvirkjunar, sem fór fram á Selfossi.

Sjúkratryggingar sektaðar um 40 milljónir: „Hér er verið að mismuna fyrirtækjum“
Sjúkratryggingum Íslands hefur verið gert að greiða 41 milljón króna í stjórnvaldssekt vegna ólögmætra samninga við myndgreiningarfyrirtæki, samkvæmt nýjum úrskurði. Framkvæmdastjóri Intuens, segulómunarfyrirtækis sem kærði Sjúkratryggingar, segir stofnunina mismuna fyrirtækjum og hindra eðlilega samkeppni.