Erlent
330 331 332 333 334 ›
YouTube í hart gegn andstæðingum bólusetninga Forsvarsmenn myndbandaveitunnar YouTube hafa ákveðið að fara í hart gegn andstæðingum bólusetninga. Fólk sem dreifir efni þar sem farið er með fleipur um bóluefni og bólusetningar verður bannað og rásum þeirra lokað. Þá verður öllu slíku efni eytt af veitunni. Erlent 29.9.2021 16:25
Vara við hörmulegum afleiðingum ef skuldaþakið brestur Fjármálaráðherra Bandaríkjanna varar við því að það hafi hörmulegar afleiðingar í för með sér samþykki Bandaríkjaþing ekki að hækka svonefnt skuldaþak ríkissjóðs. Enn liggur ekkert samkomulag fyrir um hækkun þaksins eða ný fjárlög sem eiga að taka gildi á föstudag. Erlent 29.9.2021 15:44
Stofnandi stórs netöryggisfyrirtækis handtekinn fyrir landráð Stofnandi eins stærsta netöryggisfyrirtækis Rússlands var handtekinn í gær vegna gruns um hann hafi framið landráð. Hann hefur verið úrskurðaður í tveggja mánaða gæsluvarðhald en gæti átt yfir höfði sér allt að tuttugu ára fangelsi. Erlent 29.9.2021 15:16
Tilnefna Andersson sem nýjan formann sænskra Jafnaðarmanna Undirbúningsnefnd á vegum sænskra Jafnaðarmanna hefur tilnefnt fjármálaráðherrann Magdalenu Andersson til að verða næsti formaður flokksins. Framundan er landsþing flokksins í byrjun nóvember þar sem arftaki Stefans Löfven forsætisráðherra verður kjörinn. Erlent 29.9.2021 12:54
Rússar heita hefndum gegn YouTube og þýskum fjölmiðlum Utanríkisráðuneyti Rússlands ætlar að leita leiða til að koma höggi á bandaríska fyrirtækið YouTube og þýska fjölmiðla. Það er eftir að YouTube lokaði þýskum YouTube-rásum rússneska ríkismiðilsins RT. Erlent 29.9.2021 11:29
24 dánir og 48 særðir í óeirðum í fangelsi í Ekvador Minnst 24 fangar eru látnir og minnst 48 særðir eftir miklar óeirðir í fangelsi í Ekvador í gær. Þetta er í þriðja sinn á þessu ári sem óeirðir sem þessar eiga sér stað í landinu vegna baráttu glæpagengja í landinu. Erlent 29.9.2021 10:29
Geta A-vítamíndropar læknað laskað lyktarskyn? A-vítamíndropar gætu hjálpað við að laga horfið eða breytt lyktarskyn vegna sýkingar af völdum SARS-CoV-2. University of East Anglia hefur boðað rannsókn til að kanna þennan möguleika, sem mun taka tólf vikur. Erlent 29.9.2021 08:41
Hraunstraumurinn vellur út í sjó Hraun úr eldgosinu á La Palma á Kanaríeyjum hefur nú náð í sjó fram. Óttast er að það geti valdið gasmengun og sprengingum þegar glóandi hraunið kemst í snertingu við kalt Atlantshafið. Erlent 29.9.2021 07:55
Allar líkur á að Kishida taki við embætti forsætisráðherra af Suga Stjórnarflokkur Japans, Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn, hefur valið Fumio Kishida sem nýjan formann. Fastlega er búist við að Kishida verði skipaður forsætisráðherra á allra næstu dögum og taki þar með við embættinu af Yoshihide Suga. Erlent 29.9.2021 07:37
Starfsmenn WHO meðal þeirra sem brutu kynferðislega gegn konum í Lýðveldinu Kongó Starfsmenn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) voru meðal 83 starfsmanna hjálparstofnana sem beittu konur og stúlkur kynferðislegri misnotkun í Lýðveldinu Kongó á árunum 2018 til 2020. Erlent 29.9.2021 07:22
Norður-Kórea skaut upp hljóðfrárri eldflaug Herinn í Norður-Kóreu tilkynnti fyrir stundu að hann hefði skotið á loft hljóðfrárri eldflaug sem gæti borið kjarnaodda. Erlent 28.9.2021 22:53
Saka Navalní um að ætla sér ofbeldisfulla valdatöku Ráðamenn í Rússlandi hafa opnað enn eitt dómsmálið gegn stjórnarandstæðingnum Alexei Navalní. Að þessu sinni er hann sakaður um að stofna öfgasamtök og gæti fangelsisdómur hans lengst um áratug. Erlent 28.9.2021 16:18
Vill breyta stjórnarskrá til að útiloka stjórnarandstöðuna Alexander Lúkasjenka, forseti Hvíta-Rússlands, talar nú fyrir breytingum á stjórnarskrá landsins til að koma í veg fyrir að stjórnarandstaðan geti komist til valda. Hann boðar þjóðaratkvæðagreiðslu um breytingarnar eigi síðar en í febrúar. Erlent 28.9.2021 16:00
Flúðu eiturgas frá eldgosinu Ekkert lát virðist á eldgosinu á La Palma á Kanaríeyjum þó hægt hafi á virkni í nokkra klukkutíma í gær. Um helgina barst mikið magn ösku frá eldgosinu svo loka þurfti flugvelli eyjunnar. Í gær dró einnig úr öskumyndun og sprengingum í eldgosinu en þar hefur sömuleiðis bætt í aftur. Erlent 28.9.2021 15:27
Atlanta-morðinginn lýsir yfir sakleysi Maður sem hóf skothríð á þremur nuddstofum í Atlanta í Bandaríkjunum og úthverfi borgarinnar í mars segist saklaus gagnvart nýjustu ákærunum gegn honum. Maðurinn skaut átta til bana og þar af sex konur af asískum uppruna. Erlent 28.9.2021 14:40
NASA horfir lengra út í geim Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa ákveðið að gera breytingar á starfseminni, sem eiga að stjórna áherslum opinberra geimferða næstu áratugina. Markmiðið er að leggja meiri áherslu á lengri geimferðir og þróun tækni sem þarf til þeirra. Erlent 28.9.2021 13:07
Lögregla hættir leit að Íslendingnum á Öland Lögregla á Öland í Svíþjóð hefur hætt leit að fertugum Íslendingi sem féll af sæþotu í Köpingsvik við bæinn Borgholm á laugardag. Erlent 28.9.2021 12:47
Kanna hvort sprengju hafi verið komið fyrir í Gautaborg Lögreglan í Gautaborg rannsakar nú hvort að sprengju kunni að hafa verið komið fyrir við fjölbýlishús þar sem mikil sprenging varð snemma í morgun. Fjórir íbúar hússins eru alvarlega slasaðir en að minnsta kosti sextán voru fluttir á sjúkrahús. Erlent 28.9.2021 11:23
Bandaríkin skrefinu nær vanskilum Öldungadeildarþingmenn Repúblikanaflokksins felldu í gær frumvarp sem ætlað var að tryggja áframhaldandi rekstur Bandaríkjastjórnar og koma í veg fyrir vanskil ríkisins. Til stendur að reyna aftur að koma frumvarpinu í gegn í vikunni. Erlent 28.9.2021 11:04
Mun ekki lengur fara með utanríkismálin vegna umdeildra ummæla Pele Broberg, ráðherra utanríkismála í grænlensku landsstjórninni, mun ekki lengur fara með málefni utanríkismála í landsstjórninni í kjölfar ummæla sem hann lét falla í blaðaviðtali um þarsíðustu helgi. Erlent 28.9.2021 07:11
Hver er þessi Olaf Scholz? Þjóðverjar munu brátt sjá nýjan mann í embætti kanslara í stað Angelu Merkel sem stýrt hefur landinu frá árinu 2005. Eftir kosningar á sunnudag má telja líklegast að það verði Olaf Scholz fjármálaráðherra sem var kanslaraefni Jafnaðarmannaflokksins (SPD) í nýafstöðnum kosningum. Erlent 28.9.2021 07:01
Á þriðja tug á sjúkrahús eftir sprengingu í íbúðahúsi í Gautaborg Fjöldi fólks er alvarlega slasaður eftir að mikil sprenging varð í íbúðahúsi í hverfinu Annedal í miðsvæðis í sænsku borginni Gautaborg snemma í morgun. Erlent 28.9.2021 06:50
Líklegur kanslari farinn að herma eftir heimsfrægri líkamsstöðu Merkel Á meðan því er spáð hér á landi að sama ríkisstjórn haldi velli, virðast Þjóðverjar vera á leið inn í nýja tíma með jafnaðarmann í kanslarastólnum. Stjórnmálafræðiprófessor segir líkindi með því hvernig stjórnmálin hafa þróast á Íslandi og í Þýskalandi - en telur að ekki sé að vænta vinstrisveiflu af Olaf Scholz, sem sé þegar farinn að leika Angelu Merkel. Erlent 27.9.2021 20:03
R. Kelly sakfelldur Tónlistarmaðurinn R. Kelly var fyrir stundu sakfelldur fyrir fjölda brota, sem lutu meðal annars að kynferðislegri misnotkun á börnum, mútum, mannráni og mansali. Erlent 27.9.2021 19:49
Tilræðismaður Reagans verður frjáls allra ferða sinna John Hinckley Jr. sem gerði tilraun til að ráða Ronald Reagan af dögum árið 1981 verður brátt frjáls allra ferða eftir að hafa náð samkomulagi við dómsmálaráðuneytið þar í landi. Erlent 27.9.2021 18:31
Eggi kastað í Macron Mótmælandi kastaði eggi í Emmanuel Macron, forseta Frakklands. Samhliða því kallaði hann: „Viva la revolution“ eða „lengi lifi byltingin“. Eggið brotnaði ekki heldur skoppaði af öxl forsetans. Erlent 27.9.2021 16:37
Íslendings leitað sem féll af sæþotu í Svíþjóð á laugardag Íslendings er leitað sem féll af sæþotu undan strönd sænsku borgarinnar Borgholm á Öland á laugardag. Erlent 27.9.2021 14:51
Ætluðu að ræna eða myrða fosætisráðherra Hollands Yfirvöld í Hollandi hafa aukið öryggisgæslu Mark Rutte, forsætisráðherra, töluvert vegna ógna frá glæpasamtökum í landinu. Það var gert eftir að lögreglan í Hollandi komst á snoðir um að glæpamenn ætluðu sér að reyna að ræna eða jafnvel myrða forsætisráðherrann fráfarandi. Erlent 27.9.2021 14:28
Dauðsföll vegna ofskammta í nýjum hæðum vestanhafs Dauðsföll vegna ofskammta af verkjalyfjum hafa náð nýjum hæðum í Bandaríkjunum. Fíkniefnalögregla Bandaríkjanna (DEA) hefur varað við því að verkjalyf sem ganga kaupum og sölum á svarta markaðinum vestanhafs innihaldi fentanýl eða metamfetamín og það hafi leitt til fjölmargra dauðsfalla. Erlent 27.9.2021 14:01
Kolaskortur og rafmagnsleysi Kína Verksmiðjum hefur verið lokað vegna orkuskorts í Kína sem hefur einnig náð til heimila í norðausturhluta landsins. Meðal annars hefur verksmiðjum fyrirtækja eins og Apple og Tesla verið lokað en orkuskorturinn hefur meðal annars verið rakinn til skorts á kolum. Erlent 27.9.2021 11:32