Erlent
325 326 327 328 329 330 331 332 333 … 334 ›
Geimfari náði mynd af þotu á flugi Geimfarar um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni hafa annað sjónarhorn á Jörðina en við hin. Það sést glögglega á ljósmynd sem bandaríski geimfarinn Megan McArthur náði úr geimstöðinni á dögunum. Erlent 11.10.2021 23:30
Deila ekki bóluefnauppskriftinni þrátt fyrir ákall alþjóðastofnana Bóluefnaframleiðandinn Moderna ætlar sér ekki að deila uppskriftinni að bóluefni sínu gegn kórónuveirunni. Stjórnarformaður Moderna segir fyrirtækið hafa komist að þeirri niðurstöðu að aukin framleiðsla Moderna á bóluefninu væri besta leiðin til þess að auka bóluefnaframboð á heimsvísu. Erlent 11.10.2021 20:56
Vill leggja meiri áherslu á að bæta líf þegna sinna Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, kallaði eftir því í gær að embættismenn sínir legðu meiri áherslu á að bæta líf íbúa landsins. Það væri nauðsynlegt vegna verulega slæms ástands efnahags landsins. Erlent 11.10.2021 14:09
Navalní fær stöðu hryðjuverkamanns Fangelsismálayfirvöld í Rússlandi hafa nú skilgreint Alexei Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu, sem öfga- og hryðjuverkamann. Dómstóll úrskurðaði samtök Navalní ólögleg öfgasamtök fyrr á þessu ári. Erlent 11.10.2021 11:22
Segir Lennon hafa sundrað Bítlunum Bítillinn Paul McCartney segist hafa í tæp fimmtíu ár ranglega verið sakaður um að bera ábyrgð á því að hljómsveitin goðsagnakennda hætti. Í nýju viðtali segir hann John Lennon hafa gengið frá Bítlunum. Erlent 11.10.2021 11:17
Card, Angrist og Imbens fá Nóbelinn í hagfræði Sænska akademían tilkynnti í morgun að Kanadamaðurinn David Card annars vegar og hinn bandarísk-ísraelski Joshua D. Angrist og hollensk-bandaríski Guido W. Imbens hins vegar hafi hlotið hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans. Erlent 11.10.2021 10:07
Dæmdir í þrjátíu ára fangelsi fyrir morð á hollenskum lögmanni Dómstóll í Hollandi hefur dæmt tvo menn í þrjátíu ára fangelsi vegna morðsins á lögmanninum Derk Wiersum í september 2019. Lögmaðurinn var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Buitenveldert í Amsterdam og vakti málið mikinn óhug meðal hollensku þjóðarinnar. Erlent 11.10.2021 09:54
Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Tilkynnt verður hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans til minningar um Alfred Nobel í ár á fréttamannafundi klukkan 9:45. Erlent 11.10.2021 09:16
Hætta rannsókn á máli Andrésar prins Lögregla í London hefur hætt rannsókn vegna ásakana á hendur hinum 61 árs Andrési prins vegna ásakana um kynferðisbrot. Andrés hefur neitað sök í málinu. Erlent 11.10.2021 09:14
Bannað að fjarlægja verju í miðjum klíðum Ólöglegt er nú að fjarlægja smokk án samþykkis samkvæmt nýjum lögum sem ríkisstjóri Kaliforníu í Bandaríkjunum staðfesti í síðustu viku. Kalifornía varð þá fyrsta ríkið til að banna slíkt hátterni Erlent 11.10.2021 09:07
Mikill eldur á stærstu olíubirgðastöð Líbanons Gríðarmikill eldur braust út í bensóltanki á olíubirgðastöðinni Zahrani í Líbanon í morgun. Erlent 11.10.2021 08:32
Gríðarleg flóð í norðurhluta Kína Gríðarleg flóð í norðurhluta Kína hafa haft áhrif á 1,8 milljónir manna á svæðinu eftir að látlausar rigningar í síðustu viku urðu til þess að hús hrundu til grunna og aurskriður fóru af stað í rúmlega sjötíu sýslum og borgum í Shanxhi-héraði. Erlent 11.10.2021 07:57
Loks slakað á sóttvarnareglum eftir 107 daga gildistíma Ástralska borgin Sydney hefur nú loks slakað á hörðum sóttvarnareglum sem voru í gildi í heila 107 daga vegna kórónuveirufaraldursins. Á miðnætti stóð fólk í biðröðum fyrir utan verslanir og veitingastaði sem opnuðu loks dyr sínar fyrir gestum. Erlent 11.10.2021 06:45
Þúsundir komu saman til að lýsa yfir stuðningi við ESB-aðild landsins Mikill fjöldi Pólverja kom saman á götum borga og bæja víðs vegar um landið í gær þar sem þeir lýstu yfir stuðningi við aðild að Evrópusambandinu. Erlent 11.10.2021 06:32
Bandaríkin aðstoði Afgani en viðurkenni ekki yfirráð Talibana Talibanar, sem nú fara með stjórn í Afganistan, segja að fulltrúar bandarískra stjórnvalda hafi samþykkt að veita Afgönum mannúðaraðstoð, að loknum fyrstu viðræðum aðilanna frá því Talibanar tóku völd í landinu í ágúst. Erlent 10.10.2021 23:45
Afhentu FBI ríkisleyndarmál í samloku og tyggjópakka Bandarísk hjón hafa verið handtekin og ákærð vegna gruns um njósnir og sölu á leyndarmálum í tengslum við kjarnakljúfa í kafbátum sem bandarísk yfirvöld hafa yfir að ráða. Hjónin töldu sig hafa átt í samskiptum við fulltrúa ríkisstjórnar erlends ríkis, sem var í raun útsendari bandarísku alríkislögreglunnar, FBI. Erlent 10.10.2021 19:50
Gengið til kosninga eftir sleitulaus mótmæli Kjörstaðir voru opnaðir í Írak í morgun eftir háværa kröfu mótmælenda um að flýta þingkosningum vegna spillingar í landinu. Kosningar áttu að fara fram á næsta ári en eftir sleitulaus og ofbeldisfull fjöldamótmæli allt frá árinu 2019 var þeim flýtt um sex mánuði. Erlent 10.10.2021 16:46
Breska lögreglan hefur rætt við Giuffre um Andrés Bretaprins Breskir rannsóknarlögreglumenn hafa tekið skýrslu af Virginiu Roberts Giuffre, konunni sem hefur sakað Andrés Bretaprins um að hafa nauðgað sér þegar hún var aðeins sautján ára gömul. Erlent 10.10.2021 15:13
Kjarnorkuvísindamaðurinn AQ Khan er látinn Pakistanski kjarnorkuvísindamaðurinn Abdul Qadeer Khan, betur þekktur sem AQ Khan, er látinn, 85 ára að aldri. Erlent 10.10.2021 09:54
Sextán látin í flugslysinu í Rússlandi Alls létust sextán manns þegar flugvél með fallhlífarstökkvara innanborðs hrapaði í Tatarstan í Rússlandi, ekki langt frá fljótinu Volgu, í morgun. Erlent 10.10.2021 07:51
Segir enga geta þvingað Taívan til sameiningar Tsai Ing-wen, forseti Taívan, hét því fyrr í dag, á þjóðhátíðardegi landsins, að halda áfram varnaruppbyggingu í skugga ógnar frá Kína. Erlent 10.10.2021 07:30
Leikari varð undir leikmynd og lést Rússneskur leikari lést þegar hann lenti undir leikmynd sem var látin síga niður á svið í Bolshoi-leikhúsinu í Moskvu. Atvikið átti sér stað þegar verið var að sýna óperuna Sadko í dag. Erlent 9.10.2021 23:37
Talibanar ætli ekki að starfa með Bandaríkjamönnum gegn ISIS Talibanar, sem nú fara með völdin í Afganistan, hafa hafnað hugmyndum um að vinna að því í samstarfi við Bandaríkjamenn að kveða í kútinn öfgasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki, ISIS. Samtökin hafa sótt í sig veðrið í landinu frá því Bandaríkjaher yfirgaf það í ágúst og hafa þau lýst yfir ábyrgð á fjölda mannskæðra árása í landinu að undanförnu. Erlent 9.10.2021 20:00
Kanslari Austurríkis stígur til hliðar Sebastian Kurz, kanslari Austurríkis, hefur ákveðið að segja af sér embættinu í kjölfar mikils þrýstings um það vegna hneykslismáls sem hann og flokkur hans tengjast. Erlent 9.10.2021 19:23
Tékkneska stjórnin fallin Útlit er fyrir að ríkisstjórn tékkneska forsætisráðherrans og auðjöfursins Andrej Babiš sé fallin, en þegar nær öll atkvæði hafa verið talin í þingkosningum þar í landi. Erlent 9.10.2021 18:11
Nóbelsverðlaunahafinn Maria Ressa: Segir Facebook ógna lýðræðinu Blaðakonan Maria Ressa, sem var sæmd friðarverðlaunum Nóbels í gær ásamt rússneskum kollega sínum Dmitry Muratov, sakar samfélagsmiðlarisann Facebook um að ógna lýðræði með því að „dreifa lygum, gegnsýrðum af reiði og hatri“. Erlent 9.10.2021 15:01
Rafmagnslaust í Líbanon Ekert rafmagn fæst í Líbanon eftir að tvö stærstu raforkuver landsins þurftu að hætta starfsemi tímabundið vegna eldsneytisskorts. Yfirvöld segja að rafmagnsleysið muni vara í nokkra daga. Erlent 9.10.2021 14:48
Bandaríkjamenn og Talibanar funda um brottflutning og kvenréttindi Fulltrúar Talibana og Bandaríkjastjórnar funda í dag og á morgun um áframhald á brottflutningi erlendra ríkisborgara og afganskra borgara sem unnu fyrir alþjóðlega herliðið eða stjórnvöld sem Talibanar hröktu fá völdum í ágúst. Erlent 9.10.2021 13:55
Þungunarrofslögin taka aftur gildi í Texas Áfrýjunardómstóll í Bandaríkjunum heimilaði í gær Texasríki að halda lögum um þungunarrof til streitu, en tveimur dögum áður hafði alríkisdómari fellt lögin úr gildi. Erlent 9.10.2021 11:37
Þýska lögreglan rannsakar tilfelli Havana-heilkennisins í bandaríska sendiráðinu Lögreglan í Berlín rannsakar nú dularfull tilfelli Havana-heilkennisins svokallaða meðal starfsmanna bandaríska sendiráðsins í borginni. Rannsóknin hófst í ágúst og miðar að því að kanna hvort örbylgjuárás hafi verið gerð á sendiráðsstarfsmenn. Erlent 9.10.2021 09:03