
Erlent

Tvær konur látnar og átján ára nemandi handtekinn
Lögreglan í Malmö segir tvær konur hafa látist í árás við framhaldsskóla fyrr í dag. Konurnar voru fluttar á sjúkrahús um klukkutíma eftir að lögregla fékk tilkynningu um málið en voru úrskurðaðar látnar í kjölfarið. Konurnar sem létust voru starfsmenn við skólann að sögn lögreglu.

Einn handtekinn en ekki ljóst hvað átti sér stað
Lögregla var með töluverðan viðbúnað við framhaldsskóla í Malmö í dag þar sem talið var að fjöldi nemenda hafi slasast. Að því er kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins SVT liggur ekki fyrir hvað átti sér stað við skólann. Aftonbladet hefur það eftir heimildum sínum að ungur maður vopnaður exi og hníf hafi verið að verki en lögregla hefur ekki gefið neitt út.

Lýsir svakalegri sprengingu um fimmleytið
Úkraínumenn höfnuðu í morgun kröfu Rússa um að leggja niður vopn í Mariupól og láta borgina af hendi. Minnst sex eru sagðir hafa látist í árás Rússa á verslunarmiðstöð í Kænugarði í nótt, þar sem útgöngubanni verður komið á í kvöld. Íslendingur í Kænugarði segir borgarbúa enn þá fulla baráttuanda, þrátt fyrir nær linnulausar sprengingar.

Segja Rússa ætla að svelta Úkraínumenn til hlýðni
Jack Watling, sérfræðingur hjá hugveitunni Royal United Services Institute í Lundúnum, segir átökin í Úkraínu vera að færast í annan fasa. Rússar muni einbeita sér að einni borg í einu og freista þess að svelta Úkraínumenn til hlýðni.

Boeing 737-800 flugvélin hrapaði úr 30 þúsund feta hæð á tveimur mínútum
Flugvél með 133 manns um borð hefur hrapað í Kína. AFP segir frá þessu, en óvíst er á þessari stundu um manntjón.

Vaktin: Segjast hafa sannanir fyrir stríðsglæpum Rússa
„Það er ekki til umræðu að gefast upp, að leggja niður vopn. Við höfum þegar greint Rússum frá þessu. Í stað þess að eyða tíma í átta blaðsíðna bréfasendingar, opnið bara leið úr borginni.“

Hóta að draga þá sem ekki gefast upp í Maríupól fyrir herdómstól
Varnarmálaráðuneyti Rússlands sendi í kvöld út yfirlýsingu þar sem verjendum Maríupól var gert að leggja niður vopn og yfirgefa borgina. Þeir sem geri það ekki verði dregnir fyrir herdómstól í Rússlandi.

„Ég vona að enginn muni nokkurn tímann sjá það sem ég sá“
Aðalræðismaður Grikklands í Úkraínu varð síðasti erindreki á vegum landa Evrópusambandsins til þess að yfirgefa Maríupól, úkraínsku borgina sem Rússaher situr nú um og hefur komið hvað verst út úr átökunum í landinu. Hann segist vona að enginn verði vitni að jafn miklum hryllingi og hann fékk þar að kynnast.

Er Roman Abramovich portúgalskur gyðingur?
Portúgölsk stjórnvöld rannsaka hvernig á því stendur að rússneska auðjöfrinum Roman Abramovich var veittur portúgalskur ríkisborgararéttur í fyrra. Rabbíni gyðinga í Porto hefur verið handtekinn vegna málsins.

Vaktin: Krefjast uppgjafar Maríupól
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir umsátur Rússa um Maríupól og árásir þeirra á borgina „hrylling sem verður minnst um ókomnar aldir“. Rússar hafa lagt til flóttaleiðir frá borginni á morgun. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag.

Ungt fólk streymir frá Rússlandi
Ungt fólk streymir frá Rússlandi í tuga þúsunda tali. Stór hluti þessa hóps er menntaður og hefur unnið í tæknigeira Rússlands. Mörg þeirra hafa farið til Armeníu.

Ekki rannsakað sem hryðjuverk
Sex eru látnir og tíu slasaðir eftir að bíl var ekið inn í hóp gangandi vegfarenda í La Louvière í Belgíu í morgun. Ekki er talið að um hryðjuverk hafi verið að ræða.

Segja Úkraínumenn hafa stöðvað Rússa
Úkraínumenn eru sagðir hafa stöðvað sókn Rússa og er útlit fyrir langvarandi átök sem einkennast af þrátefli með tilheyrandi mannfalli og eyðileggingu.

Segja hundruð þúsunda föst í Mariupol þar sem lík hrannist upp á götum úti
Björgunaraðgerðir í úkraínsku borginni Mariupol, í suðurhluta landsins, hafa gengið afar erfiðlega vegna stöðugra átaka víðsvegar um borgina. Talið er að um 300.000 manns séu föst í borginni, sem Rússar sitja um.

Pútín vill styrkja stöðu sína fyrir fund með Selenskí
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er ekki tilbúinn til viðræðna við Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Hann vill líklega styrkja stöðu sína fyrir mögulegar viðræður.

Appelsínugulur Spánn: Mesta loftmengun á jörðinni
Það eru víðar appelsínugular viðvaranir en hér á Íslandi þessi dægrin. Á austurströnd Spánar hefur fólk verið varað við að vera mikið á ferli utandyra í liðinni viku, af því að himinninn er bókstaflega appelsínugulur og loftgæðin eru talin hættuleg. Ástæðan er rauðleitur sandur frá Afríku sem þyrlast inn yfir strendur Spánar.

Vaktin: Pútín sagður búinn að sætta sig við að geta ekki velt Selenskí úr sessi
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur kallað eftir raunverulegum og sanngjörnum friðarviðræðum. Úkraínumenn hafa ítrekað að forgangskröfur þeirra séu varanlegt vopnahlé og brotthvarf Rússa frá Úkraínu.

Segir Pútín óttast frelsi og lýðræði í Úkraínu
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir Vladimír Pútín, forseta Rússlands, hafa ráðist inn í Úkraínu, því frjáls og lýðræðisleg Úkraína væri ógn gagnvart alræðisstjórn hans í Rússlandi.

Skutu ofurhljóðfrárri eldflaug í fyrsta sinn í átökum
Rússar segjast hafa skotið ofurhljóðfrárri eldflaug á vopnageymslu í vesturhluta Úkraínu í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem Rússar segjast hafa notað slíkt vopn í átökum en eldflaugar þessar eru hannaðar til að ferðast á margföldum hljóðhraða og komast hjá eldflaugavörnum.

Fjórir látnir eftir að herþyrla hrapaði í NATO-æfingu
Fjórir bandarískir hermenn létust þegar bandarísk herþyrla sem tók þátt í NATO-æfingunni Cold Response hrapaði í Norðurlandi í Noregi í gær.

„Það er kominn tími til að hittast, tími til að tala“
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallar eftir raunverulegum og sanngjörnum friðarviðræðum, án tafar. „Það er kominn tími til að hittast, tími til að tala. Það er kominn tími til að endurheimta landyfirráð Úkraínu og réttlæti henni til handa.“

Einkaþota óligarka á meðal hátt í hundrað kyrrsettra véla
Viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna hefur kyrrsett hátt í hundrað flugvélar með tengsl við Rússland. Þeirra á meðal er flugvél í eigu óligarkans og milljarðamæringsins Rómans Abramóvítsj.

Vísbendingar um að Rússar ætli að beita efnavopnum í Úkraínu
Margt bendir til að Rússar séu byrjaðir að örvænta í innrás sinni í Úkraínu og að þeir séu að undirbúa notkun efnavopna með ásökunum um að slík vopn sé að finna í Úkraínu. Fyrrverandi utanríkisráðherra Rússlands segir Úkraínumenn nú þegar í gagnsókn á sumum stöðum og Putin eigi ekki möguleika á að vinna stríðið.

Vaktin: Sprengingar heyrast frá flugvellinum í Lviv
Joe Biden Bandaríkjaforseti og Xi Jinping, forseti Kína, munu ræðast við í síma í dag. Biden er sagður munu vara Xi við því að aðstoða Rússa efnahags- og hernaðarlega og á sama tíma reyna að fá skýrari mynd af afstöðu og fyrirætlunum Kína.

„Við munum ná fram öllum okkar markmiðum“
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ávarpaði í dag tugi þúsunda manna á viðburði þar sem verið var að fagna innrás Rússa í Úkraínu og halda upp á að átta væru liðin frá ólöglegri innlimun Krímskaga. Við mikil fagnaðarlæti sagði Pútín meðal annars að Rússar myndu sigra í Úkraínu.

Samþykkja að Fujimori skuli sleppt úr fangelsi
Stjórnlagadómstóll Perú hefur úrskurðað að forsetanum fyrrverandi, Alberto Fujimori, skuli sleppt úr fangelsi. Hann hefur setið í fangelsi frá árinu 2007 eftir að hafa verið dæmdur í 25 ára fangelsi eftir að hafa verið sakfelldur fyrir glæpi gegn mannkyni.

Fyrrverandi utanríkisráðherra Rússa segir þá ekki geta unnið stríðið í Úkraínu
Fyrrverandi utanríkisráðherra Rússlands segir Putin ekki geta unnið stríðið í Úkraínu en það geti hins vegar dregist á langinn ef Vesturlönd auki ekki stuðning sinn við Úkraínumenn. Þrátt fyrir áframhald loftárása á borgir og bæi virðist stríðið komið í kyrrstöðu.

Arnold ávarpar rússnesku þjóðina: „Úkraína hóf ekki þetta stríð“
Arnold Schwarzenegger, leikari og stjórnmálamaður, sendi í gær út frá sér ávarp til rússnesku þjóðarinnar. Þar segist hann elska rússnesku þjóðina og bera mikla virðingu fyrir henni en segist þurfa að segja Rússum sannleikann um það sem sé að gerast í Úkraínu.

Landamærum lokað og harðar takmarkanir eftir fyrsta samfélagssmitið
Stjórnvöld á Samóa í Kyrrahafi hafa ákveðið að loka landamærunum og grípa til harðra takmarkana í fjóra daga eftir að tilkynnt var um fyrsta samfélagssmitið á eyjunum frá upphafi heimsfaraldurs kórónuveirunnar.

Fyrrverandi forsætisráðherrann handtekinn
Lögregla í Búlgaríu handtók í gær forsætisráðherrann fyrrverandi, Boyko Borissov, í tengslum við rannsókn á fjármálamisferli. Rannsóknin snýr að því hvort að styrkir frá Evrópusambandinu hafi verið misnotaðir.