
Erlent

Móðir og fjögur börn fundust myrt í Frakklandi
Lögregla í Frakklandi hefur handtekið 33 ára karlmann eftir að kona og fjögur börn fundust látin í húsi skammt frá höfuðborginni París.

Hútar lýsa yfir ábyrgð á eldflaugaárás í Rauðahafi
Vígasamtök Húta í Jemen hafa lýst yfir ábyrgð á eldflaugaárás sem gerð var á flutningaskip í Rauðahafi fyrr í dag. Þá lýstu samtökin yfir ábyrgð á tilraun til drónaárásar á Ísrael.

Mótmæla áætlunum Macrons um að skipta út gluggum Notre Dame
Frakkar eru ævareiðir vegna fyrirhugaðra gluggaskipta í dómkirkjunni Notre Dame í París. Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur lagt það til að steindum gluggunum verði skipt út fyrir nýstárlegri glugga.

Nýjar ljósmyndir Webb sýna Neptúnus í nýju ljósi
Ný ljósmynd hefur verið tekin af plánetunni Neptúnusi með aðstoð Webb sjónaukans. Myndin er sú skýrasta sem náðst hefur af ísplánetunni í áratugi og sýna hringi Neptúnusar í nýju ljósi.

Navalní heilsast vel og sendir hátíðarkveðjur
Alexei Navalní leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Rússlandi segist við góða heilsu eftir að hafa fundist í fanganýlendu í Síberíu eftir margra daga leit. Hann sendi fylgjendum sínum hátíðarkveðjur í tilkynningu á X í morgun.

Grunaður um morð á fjórum börnum og barnsmóður á jóladag
Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn nærri París í nótt eftir að lík fjögurra barna hans og móður þeirra fundust í íbúð skömmu frá höfuðborginni í gær. Lögreglan í Frakklandi rannsakar málið sem morð.

Árás Úkraínumanna á skip við Krímskaga hafi heppnast
Rússnesk yfirvöld hafa viðurkennt að herskip sem lá við höfn á Krímskaga sé mikið skemmt eftir úkraínska árás. Áður höfðu Úkraínumenn haldið því fram að þeim hafi tekist að gjöreyðileggja skipið.

Valdamestu hjón Repúblikana í Flórída flækt í kynlífshneyksli
Maðurinn sem Repúblikanaflokkurinn í Flórída hafði valið til að leiða flokkinn í gegnum forsetakosningarnar á næsta ári hefur verið sakaður um að nauðga æskuvinkonu sinni. Hann hefur verið sviptur embætti, en segir ásakanirnar byggða á þvættingi. Hann og eiginkona hans hafi stundað kynlíf með konunni um margra ára skeið.

Meint mansalsvél fékk að fara frá Frakklandi
Flugvél sem hafði verið kyrrsett í Frakklandi frá því á fimmtudag, vegna gruns um að farþegar hennar væru fórnarlömb mansals, var flogið til Indlands í dag.

Segir aukinn þunga munu færast í árásir á Gasa
Forsætisráðherra Ísraels hefur heitið því að ríkið muni ganga enn harðar fram í baráttu sinni við Hamas-samtökin og árásum á Palestínu á næstu dögum.

Hundrað látnir í átökum hirðingja og bænda
Meira en hundrað manns hafa látið lífið í átökum hirðingja og bænda í Plateauhéraði Nígeríu um helgina. Átök milli stéttanna eru algeng á svæðinu.

Börnin í Gasa „litlu Jesúar dagsins í dag“
Frans páfi segir börnin í Gasa vera „litlu Jesúa dagsins í dag“ og fordæmir loftárásir Ísraelshers. Þetta segir hann í jólaávarpi sínu sem hann flutti á svölum Péturskirkju í Páfagarði í dag.

Navalní fundinn í fanganýlendu í Síberíu
Alexei Navalní leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Rússlandi er fundinn eftir þriggja vikna leit aðstandenda hans í fanganýlendu í Síberíu. Þetta staðfestir talskona hans en leitin stóð frá 6. desember þegar Navalní var færður úr fyrra fangelsi.

Mótmælendur reyndu að brjótast inn í ráðhús Belgrad
Lögreglumenn í Belgrad, höfuðborg Serbíu, beittu í gær táragasi á mótmælendur sem mótmælt hafa ríkisstjórninni eftir að niðurstöður þingkosninga voru birtar í síðustu viku. Stjórnarandstöðufólk segir að um kosningasvik sé að ræða.

Sex ára dreng flogið á vitlausan áfangastað
Sex ára bandarískum dreng, sem ferðast átti frá Pennsylvania-ríki til Fort Myers í Flórída með flugfélaginu Spirit Airlines í gær, var komið fyrir í flugvél til Orlandó borgar af fylgdarmanni flugfélagsins.

Úkraínumenn halda jólin í desember í fyrsta skiptið
Rétttrúnaðarfólk í Úkraínu mun í dag, jóladag, halda jól í desember í fyrsta skiptið. Hingað til hefur þjóðin formlega fagnað jólunum þann 7. janúar, samkvæmt júlíanska tímatalinu.

Sjötíu létust í árás á aðfangadagskvöld
Sjötíu manns létust hið minnsta í loftárásum Ísraelsmanna á Al-Maghazi flóttamannabúðirnar á Gasa-ströndinni á aðfangadagskvöld.

Þau kvöddu á árinu 2023
Fjölmargir þekktir einstaklingar úti í heimi kvöddu þennan heim á árinu sem senn er á enda.

Tvö hundruð Palestínumenn fallið síðasta sólarhring
Tvö hunduð manns féllu í árásum Ísraelsmanna síðasta sólarhring og rúmlega tólf ísraelskir hermenn, að sögn hersins. Átök helgarinnar eru ein þau blóðugustu frá upphafi stríðs. Hækkandi dánartala innan herbúða Ísraelsmanna er sögð munu kynda undir stuðningi við hertar hernaðaraðgerðir.

Grænir skattar sagðir bitna hart á Grænlandi
Fraktgjöld til Grænlands munu hækka frá og með nýári þegar Evrópusambandið tekur upp kolefnisskatt á skipaumferð og árið 2025 verður flugumferð til Grænlands fyrir áhrifum af nýjum dönskum skatti á flugfarþega. Svo segir í úttekt grænlenska fréttamiðilsins Sermitsiaq undir fyrirsögninni: „Verðhækkanir: Grænir skattar bitna hart á Grænlandi.“

Alræmdir glæpahópar gripnir með tvö tonn af kókaíni
Spænska lögreglan hefur handtekið tíu manns, sem taldir eru háttsettir innan alræmds glæpahóps á Spáni og í Portúgal. Hópurinn er talinn afar umsvifamikill í fíkniefnasmygli innan Evrópu.

Stal fimm milljörðum með sviksömum skotfærakaupum
Lögregluþjónar hafa handtekið háttsettan embættismann í varnarmálaráðuneyti Úkraínu, sem grunaður er um að hafa dregið sér nærri því fjörutíu milljónir dala. Það er hann sagður hafa gert með sviksömum kaupum á skotfærum fyrir stórskotalið.

Nærri því áttatíu úr sömu fjölskyldunni féllu í árás
Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir árásir Ísraela á Gasaströndinni gera starfsmönnum SÞ erfitt að koma neyðarbirgðum til þeirra sem þurfa á þeim að halda. Miklir tálmar hafi verið settir í veg hjálparstarfsmanna og þörf sé á meiri aðstoð.

Hæstiréttur neitar að flýta máli Trumps
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur neitað beiðni Jack Smith, sérstaks rannsakanda dómsmálaráðuneytisins, um flýtimeðferð varðandi það hvort Donald Trump, fyrrverandi forseti, njóti enn þeirrar friðhelgi frá lögsóknum sem fylgir forsetaembættinu. Um sigur fyrir Trump er að ræða.

Stálu verki eftir Banksy meðan fólk horfði á
Stuldur stöðvunarskiltis með verki eftir götulistamanninn Bansky hefur verið tilkynntur til lögreglu. Listaverkið, sem talið er vera allt að hálfrar milljónar punda virði, var tekið af tveimur mönnum innan við hálftíma eftir að staðfest var að það var eftir Banksy.

„Troðið í ykkur klökum og haldið helvítis kjafti“
Izhar Cohen, sem vann Eurovision fyrir hönd Ísrael árið 1978, segir Ísraela vita að Íslendingum sé illa við þá. Íslendingar hafi sýnt það þegar söngvakeppnin fór fram í Tel Aviv og íslenski hópurinn hafi umgengst öfgafulla Palestínumenn og stutt hryðjuverkastarfsemi gegn Ísraelum.

Skutu niður þrjár rússneskar sprengjuvélar
Yfirvöld í Úkraínu segja þrjár rússneskar sprengjuvélar af gerðinni Su-34 hafa verið skotnar niður yfir yfir suðurhluta Úkraínu í dag. Rússneskir herbloggarar segja Patriot-loftvarnarkerfi hafa verið notað til að skjóta herþoturnar niður.

Hlupu þungvopnaðir um í leit að árásarmanninum
Lögreglan í Prag hefur birt myndband sem sýnir lögregluþjóna og sérsveitarmenn leita að árásarmanninum í einni verstu fjöldaskotárás Evrópu, sem framin var í gær. Ungur byssumaður gekk berserksgang í háskóla í borginni þar sem hann skaut minnst fjórtán til bana og særði 25.

Hinsegin ungmenni í Rússlandi þvinguð í bælingarmeðferðir
Upp hafa komið mál í Rússlandi þar sem efnaðir foreldrar hafa greitt óþokkamennum fyrir að flytja hinsegin ungmenni gegn vilja sínum á einkastofnanir sem sérhæfa sig í svokallaðri bælingarmeðferð.

Hægri hönd Pútíns skipulagði dauða Prígósjíns
Níkólaí Patrúsjev, hægri hönd Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, er sagður hafa komið að skipulagningu og að endingu samþykkt banatilræði gegn auðjöfrinum Jevgení Prígósjín. Sá dó þegar flugvél hans féll til jarðar skammt frá Moskvu í ágúst.