

Ferrari staðfesti í dag að Ítalinn Valentino Rossi, margfaldur meistari í mótorhjólakappakstri mun prófa Ferrari Formulu 1 bíl í tvo daga í nóvember.
Aðstandendur Silverstone kappakstursins í Bretlandi hafa tilkynnt gríðarlega aukningu á miðasölu á kappakstur næsta árs í kjölfar þess að Lewis Hamilton varð heimsmeistari á dögunum.
Luca Montezemolo forseti Ferrari stútaði sjónvarpinu í stofunni þegar ljóst varð að Felipe Massa varð ekki meistari í Brasilíu á dögunum. Hann taldi eins og flestir að Massa hefði orðið meistari í dramatískum endasprett.
Milljarðamæringurinn Vijay Mallay sem á Force India liðið hefur ákveðið að slíta samstarfi við Ferrari og mun Force India liðið nota búnað frá Mercedes á næsta ári.
Sannkallað einvígi verður um ökumannssæti hjá Honda á næsta ári í nóvember. Honda tilkynnti í dag að Brasilíumaðurinn Lucas di Grassi komi til með að prófa bíl liðsins, en fyrr í vikunni var sagt frá því að Bruno Senna frá sama landi mun prófa bíl liðsins.
Lewis Hamilton er ekki sammála ummælum Bernie Ecclestone þess efnis að gert hafi verið of mikið úr atvikum sem telja verður kynþáttahatur í garð Hamiltons og þetta væri bara grín.
Bretinn Ross Brawn, framkvæmdarstjóri Honda segir að hann hafi ekki upplifað jafn magnþrunginn endasprett og í Brasilíu um síðustu helgi. Brawn var aðal tæknistjórinn á bakvið sjö titla Michael Schumacher á hans ferli.
Fernando Alonso og Nelson Piquet voru í dag tilkynntir sem ökumenn Renault á næsta ári og Alonso gerði tveggja ára samning við Renault
Lewis Hamilton, nýkrýndur meistari í Formúlu 1, segist vilja klára ferilinn sinn hjá McLaren þó hann sé ekki nema 23 ára gamall.
Lewis Hamilton segist ekki stefna sérstaklega á að slá met Michael Schumacher hvað flesta titla í Formúlu 1 varðar. Schumacher vann sjö titla á ferlinum, en Hamilton vill þó vinna þrjá til að fá draumabílinn upp í hendurnar.
Frændi hins fræga Ayrton Senna, Bruno Senna mun prófa Honda Formúlu 1 bíl á æfingum um miðjan nóvember. Hann á möguleika á sæti hjá liðinu 2009.
Martin Whitmarsh, framkvæmdarstjóri McLaren segir að hann hafi afskrifað titilinn stundarkorn í brasilíska kappakstrinum. Hamilton nældi í titilinn á síðasta beygjukafla brautarinnar.
Ferrari liðið landaði meistaratitila bílasmíða og Stefano Domenicali framkvæmdarstjóri Ferrari liðsins var ánægður með framgöngu Felipe Massa í brautinnni.
Þýski ökuþórinn Timo Glock hjá Toyota er næstvinsælasti Formúlukappinn í Bretlandi í dag eftir að hafa hleypti Lewis Hamilton framúr sér í síðustu beygjunni í Brasilíukappakstrinum í gær.
Breski forsætisráðherran Gordon Brown er á meðal þeirra sem hafa hrósað landa sínum Lewis Hamilton í hvívetna eftir að hann fagnaði meistaratitilinum í Formúlu 1 í gær.
Lewis Hamilton átti ekki til orð eftir dramatískan Brasilíukappaksturinn í dag þar sem hann tryggði sér heimsmeistaratitilinn eftir ótrúlega dramatíska keppni.
Lewis Hamilton hjá McLaren varð í dag yngsti ökumaðurinn til að verða heimsmeistari í Formúlu 1 þegar hann náði fimmta sætinu í Brasilíukappakstrinum. Heimamaðurinn Felipe Massa kom fyrstur í mark, en það nægði honum ekki til sigurs í stigakeppninni.
Skoski ökuþórinn David Coulthard mátti bíta í það súra epli að lenda í árekstri á fyrsta hringnum í Brasilíukappakstrinum sem hófst upp úr klukkan 17.
Þó mest athygli sé á titilslag Lewis Hamilton og Felipe Massa í Formúlu 1 mótinu í Brasilíu í dag, þá fær Skotinn David Coulthard sinn skerf af athygli. Hann ekur í sínu síðasta Formúlu 1 móti eftir fjórtán ár í íþróttinni.
Fernando Alonso er tvöfaldur meistari og þekkir meistarabaráttuna í lokamótinu vel . Hann varð meistari 2005 og 2006 í Brasilíu. Hann hefur gefið það út að hann vilji sjá Felipe Massa sem meistari eftir mótið á morgun og hann ræsir fyrir aftan Lewis Hamilton og við hlið Heikki Kovalainen.
Felipe Massa segist ekki gefa Lewis Hamilton neinn gaum eftir að hafa náð besta tíma í tímatökum í Brasilíu í dag.
Felipe Massa á Ferrari náði besta tíma í síðustu tímatöku ársins og er í kjörstöðu fyrir kappaksturinn á morgun. Lewis Hamilton varð fjórði í tímatökunni og er á eftir Jarno Trulli og Kimi Raikkönen.
Spánvejrinn Fernando Alonso náði besta tíma á lokaæfingu keppnisliða á Inerlagos brautinni í Brasilíu. Hann varð 0.071 sekúndu á undan Lewis Hamilton.
Felipe Massa varð í öðru sæti á seinni æfingu keppnisliða í dag, en Lewis Hamilton níundi. Sálfræðin hefur sitt að segja í yfirlýsingum beggja kappa og Hamilton ekki á því að draga úr þó honum hafi raunverulega ekki gengið vel. Hann er ánægður með bílinn.
Þingmaður í breska þinginu hefur farið þess á leit við utanríkisráðherra Bretlands að netsíðu með níði um Lewis Hamilton verði lokað. Netsíðan er spönsk og málið orðið að alþjóðlegu máli.
Brasilíumaðurinn Felipe Massa vann fyrsta bardagann í orusstunni við Lewis Hamilton um meistaratitilinn í Formúlu 1. Hann varð 0.190 sekúndum fljótari á fyrstu æfingu keppnisliða á Interlagos brautinni.
Kapparnir tveir sem keppa til úrslita um heimsmeistaratitilinn í Formúlu 1 eiga það sameiginlegt að fjölskyldur þeirra hafa staðið að baki þeim gegnum súrt og sætt.
Forráðamenn FIA sáu ástæðu til þess í dag að gagnrýna vefsíðu sem birit fjölmargar níðgreinar um Lewis Hamilton, en 20.000 manns hafa ritað á síðuna. Hún er mjög gagnrýnin á Hamilton, en Spánverjar hafa mjög verið á móti Hamilton eftir það sem þeir telja slæma meðferð McLaren á Fernando Alonso í fyrra.
Ragnar Róbertsson sem var kjörinn akstursíþróttamaður ársins á hófi Akstursíþróttanefndar ÍSÍ um síðustu helgi spáir Lewis Hamilton meistaratitilinum í lokamótinu í Formúlu 1 um helgina.