Enski boltinn

Örlög Luton ráðin og allir nýliðarnir falla
Luton er svo gott sem fallið og fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta þar með lokið, eftir að liðið tapaði 3-1 fyrir West Ham í dag. Sex leikjum var að ljúka og ljóst að allir þrír nýliðarnir í deildinni kveðja hana um næstu helgi.

Þriðji sigurinn í röð og daumurinn um Evrópusæti lifir
Chelsea vann mikilvægan 3-2 endurkomusigur er liðið heimsótti Nottingham Forest í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Jóhann fékk ekki að spila þegar Burnley féll
Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley eru fallnir niður úr ensku úrvalsdeildinni, eftir eins árs dvöl, en þetta varð endanlega ljóst þegar liðið tapaði gegn Tottenham í dag, 2-1, í næstsíðustu umferð.

Gvardiol skaut City á toppinn
Manchester City var í stuði gegn Fulham í dag og kom sér á topp ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, nú þegar meistararnir eiga tvo leiki eftir.

Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að eigendur félagsins muni ekki reka hann þar sem þeir búi yfir heilbrigðri skynsemi.

Kveðjuleikur Klopp í hættu? | „Meðvitaður um stöðuna“
Fari svo að Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, fái gult spjald í leik Liverpool á móti Aston Villa á mánudaginn kemur er ljóst að hann mun ekki geta verið á hliðarlínunni í síðasta leik sínum á Anfield gegn Wolves í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Cole Palmer valinn bestur í apríl
Chelsea leikmaðurinn Cole Palmer var valinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í aprílmánuði.

Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag
Cavan Sullivan hefur gengið frá samningi við bandaríska fótboltafélagið Philadelphia Union sem ætti kannski að vera mjög fréttnæmt nema vegna þess að hann er aðeins fjórtán ára gamall og það Manchester City ákvæði í samningi hans.

Rodri kemur ekki til greina en Spánn á bestu stjórana
Átta leikmenn hafa verið tilnefndir sem leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en það er í höndum almennings og dómnefndar að skera úr um hver þeirra var bestur.

Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins
Liam Rosenior var einn af þremur sem kom til greina sem þjálfari ársins í ensku b-deildinni. Í gær ákvað Hull City samt sem áður að reka hann úr starfi sínu aðeins nokkrum dögum eftir að tímabilinu lauk.

Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez
Starfslið Manchester United telur að liðið hafi saknað leiðtogahæfileika Lisandro Martínez á leiktíðinni. Argentíski miðvörðurinn hefur verið mikið meiddur og aðeins tekið þátt í 11 leikjum á leiktíðinni.

Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum
Áfrýjun enska knattspyrnufélagsins Nottingham Forest bar ekki árangur og nú er ljóst að félagið þarf að sætta sig við fjögurra stiga refsinguna sem liðið hlaut, í ensku úrvalsdeildinni.

Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace
Jamie Carragher fór ekki fögrum orðum um frammistöðu Casemiros í 4-0 tapi Manchester United fyrir Crystal Palace í gær og sagði að Brassinn gæti ekki lengur spilað á hæsta getustigi.

„Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“
Erik ten Hag stýrir Manchester United í bikarúrslitaleik gegn Manchester City 25. maí en það gæti jafnframt orðið síðasti leikurinn hans sem stjóri United.

Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið
Manchester United mátti þola 4-0 tap gegn Crystal Palace á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Crystal Palace lék sér að Man United
Ömurlegt tímabil Manchester United náði enn einum lágpunktinum í kvöld þegar liðið mátti þola 4-0 tap á útivelli gegn Crystal Palace. Palace hafði skorað 45 mörk í 35 leikjum fyrir leik kvöldsins eða tæplega 1,3 að meðaltali í leik.

Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool
Hollenski miðvörðurinn Virgil Van Dijk vill hjálpa að skrifa næsta kafla í sögu knattspyrnufélagsins Liverpool. Hann er sem stendur fyrirliði liðsins og samningur hans við félagið rennur út sumarið 2025.

Eyddi öllum Liverpool-myndum
Úrúgvæinn Darwin Nunez ýtti undir sögusagnir þess efnis að hann gæti verið á förum frá Liverpool í sumar á samfélagsmiðlum.

Dómarinn verður með myndavél á höfðinu
Í fyrsta sinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta verður dómarinn með myndavél á sér í kvöld, þegar Crystal Palace og Manchester United mætast.

Lopetegui tekur við West Ham
Spænski knattspyrnustjórinn Julen Lopetegui tekur við knattspyrnustjórastöðunni hjá enska úrvalsdeildarfélaginu West Ham United frá og með næsta tímabili.

Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“
Roy Keane heldur áfram að skjóta föstum skotum á Erling Haaland, stjörnuframherja Manchester City, og lýsti þessum markahæsta manni ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta sem „ofdekruðum krakka“ um helgina.

Miðvarðamartröð Man United heldur áfram
Harry Maguire, miðvörður Manchester United og enska landsliðsins í knattspyrnu, verður frá keppni næstu þrjár vikurnar. Hann missir því af síðustu deildarleikjum Man United og líklega úrslitaleik ensku bikarkeppninnar. Þá gæti landsliðssæti hans einnig verið í hættu.

Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut
Eftir að hafa mistekist að vinna síðustu tvo deildarleiki sína þá vann Liverpool 4-2 sigur á Tottenham Hotspur í dag. Um var að ræða fjórða tap Spurs í röð í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta.

Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum
Chelsea vann 5-0 sigur á West Ham í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni og komst fyrir vikið upp fyrir Manchester United í töflunni.

Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum
Jens Lehmann, fyrrum markvörður Arsenal, er nú eigandi „Invincibles“ nafnsins sem er gælunafn Arsenal liðsins frá 2003-04 tímabilinu.

Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum
Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran segir uppkomu Ipswich, eftir öll vonbrigðin síðustu ár, vera táknmynd um fegurð fótboltans.

Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi
Nýloknu tímabili Birmingham City í ensku B-deild karla í knattspyrnu var vægast sagt áhugavert. Á endanum féll félagið eftir tímabil sem átti upphaflega að vera upphaf nýrra tíma.

Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea
Enska landsliðskonan Fran Kirby hefur gefið út að hún muni yfirgefa Chelsea að tímabilinu loknu. Hún er sem stendur markahæsti leikmaður í sögu félagsins með 115 mörk í 205 leikjum.

Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich
Kieran McKenna hefur svo sannarlega svifið um á bleiku skýi síðan hann tók við Ipswich Town í ensku C-deildinni. Undir hans stjórn hefur liðið flogið upp um tvær deildir í því sem er hans fyrsta starf sem aðalþjálfari. Þá hefur enginn, ekki einu sinni Pep Guardiola, nælt í jafn mörg stig og McKenna síðan hann tók við stjórnartaumunum hjá Ipswich.

„Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“
Pep Guardiola segir sína menn þurfa að vinna þá þrjá leiki sem Manchester City á eftir í ensku úrvalsdeildinni ætli liðið sér að verða Englandsmeistari fjórða árið í röð. Lærisveinar Pep lögðu Úlfana 5-1 í dag.