Golf

Tiger Woods fær lífstíðarpassa fyrir afrek sín
PGA-mótaröðin hefur ákveðið að veita Tiger Woods, einum besta kylfingi allra tíma, lífstíðarpassa á mörg af stærstu mótum mótaraðarinnar fyrir afrek sín á golfvellinum.

Nýkrýndur meistari á Opna bandaríska: „Pirraður og vonsvikinn“
Bryson DeChambeau var maður helgarinnar í golfinu þegar hann tryggði sér sigur á Opna bandaríska meistaramótinu á Pinehurst vellinum. Hann fékk aftur á móti ekki góðar fréttir í kjölfarið.

McIlroy tekur sér í frí frá golfi eftir „erfiðasta daginn“ á ferlinum
Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy klúðraði dauðafæri að vinna langþráðan risatitil á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi um helgina.

Anna Júlía Íslandsmeistari í holukeppni
Anna Júlía Ólafsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar tryggði sér sigur á Íslandsmótinu í holukeppni í ár. Mótið fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar og lauk í gær.

DeChambeau hljóp um og leyfði áhorfendum að snerta bikarinn
Bandaríski kylfingurinn Bryson DeChambeau var í miklu stuði eftir sigur sinn á opna bandaríska meistaramótinu í golfi í gær.

DeChambeau leiðir með þremur fyrir lokadaginn
Bryson DeChambeau er með þriggja högga forystu fyrir lokadag Opna bandaríska meistaramótsins í golfi sem fram fer á Pinehurst-vellinum í Norður Karólínu. Rory McIlroy, Patrick Cantley og Matthieu Pavon eru jafnir í öðru sæti.

Åberg með eins höggs forskot
Hinn sænski Ludvig Åberg leiðir US Open mótið þegar tveimur umferðum er lokið. Hann lék hring gærdagsins á 69 höggum líkt og heimamaðurinn Bryson DeChambeau en er alls á 135 höggum, höggi minna en næstu þrír kylfingar.

Fór fyrst í stöngina en síðan holu í höggi
Það gengur á ýmsu hjá Austurríkismanninum Sepp Straka á US Open í dag.

Rory og Cantlay leiða á US Open
Norður-Írinn Rory McIlroy og Bandaríkjamaðurinn Patrick Cantlay deila efsta sætinu á US Open en fyrsti hringurinn var spilaður í gær.

Woods segir að Opna bandaríska muni reyna líkamlega á kylfinga
Opna bandaríska meistaramótið í golfi stærir sig af því að vera ein erfiðasta prófraun kylfinga og Tiger Woods tekur svo sannarlega undir það.

„Fylgir því þvílík sæla að koma hingað aftur“
Hópur kylfinga var mættur að leika sinn daglega hring á Húsatóftavelli í nágreni Grindavíkur í gær en völlurinn var opnaður á nýjan leik á sunnudaginn síðastliðinn eftir óvissu sökum jarðhræringa á Reykjanesskaga. Meðal þeirra var einn af stofnendum Golfklúbbs Grindavíkur sem segir því fylgja þvílík sæla að geta snúið aftur á völlinn.

Hætt við að skilja: „Framtíð okkar er best varið saman“
Kylfingurinn Rory McIlroy og eiginkona hans Erica eru hætt við að skilja eftir að hafa leyst ágreininginn sem vera að leiða til endaloka hjónabands þeirra.

„Loksins koma jákvæðar fréttir frá Grindavík“
Fengist hefur leyfi til þess að opna Húsatóftavöll við Grindavík á nýjan leik eftir mikla óvissutíma sökum jarðhræringa á Reykjanesskaga. Kylfingar eru nú byrjaðir að flykkjast á völlinn á ný. „Loksins einhverjar jákvæðar fréttir frá Grindavík,“ segir framkvæmdastjóri Golfklúbbs Grindavíkur.

Sýking í litlu tá heldur Jon Rahm frá keppni á opna bandaríska
Áttundi efsti kylfingur heimslistans, Jon Rahm, hefur dregið sig frá keppni á opna bandaríska meistaramótinu í golfi.

„Þurfum að fylgjast betur með andlegri heilsu annarra“
Mikil umræða á sér stað innan golfheimsins eftir að þrítugur kylfingur svipti sig lífi á dögunum.

Ótrúlegt gengi Scott í hættu og eina sem hann getur gert er að bíða
Adam Scott er ef til vill ekki nafn sem íþróttaunnendur almennt kannast við en fólk sem fylgist vel með golfi hefur eflaust heyrt nafnið enda hefur kylfingurinn ekki misst af risamóti síðan árið 2001. Hann hefur tekið þátt á 91 móti í röð en ótrúlegt gengi hans er nú í hættu.

Masters-sigurvegarinn brotnaði saman þegar hann minntist Murrays
Fjöldi kylfinga kom saman í gær til að minnast Graysons Murray sem féll fyrir eigin hendi í síðasta mánuði.

Brjálaður út í British Airways fyrir að skilja kylfurnar sínar eftir
Enski kylfingurinn Ian Poulter var brjálaður út í flugfélagið British Airways eftir að kylfurnar hans urðu eftir á Heathrow flugvellinum.

Vann sitt fyrsta PGA-mót með pabba sinn sem kylfusvein
Skoski kylfingurinn Robert MacIntyre vann sitt fyrsta PGA-mót þegar hann hrósaði sigri á RBC Canadian Open um helgina. Kylfusveinn hans var ekki af verri gerðinni.

McIlroy fékk löggu til að afhenda konu sinni skilnaðarpappírana
Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy fékk lögreglumann til að tilkynna eiginkonu sinni að hann vildi skilja við hana.

Hreinasta martröð hjá þeirri bestu í heimi
Nelly Korda klúraði nánast möguleikanum á því að vinna opna bandaríska meistaramótið í golfi á einni hræðilegri holu.

Málið gegn Scheffler fellt niður: Ber engan kala til löggunnar
Besti kylfingur heims sleppur með skrekkinn og þarf ekki lengur að óttast það að lenda á bak við lás og slá.

Minntist Murray eftir sigur á PGA-mótaröðinni: „Sorgardagur fyrir golfið“
Davis Riley minntist Graysons Murray eftir að hann hrósaði sigri á móti á PGA-mótaröðinni í gær. Murray féll frá á laugardaginn, aðeins þrítugur.

Golfstjarnan stytti sér aldur
Foreldrar atvinnukylfingsins Grayson Murray greindu frá því í gær að sonur þeirra hafi svipt sig lífi á laugardagsmorguninn.

Grayson Murray látinn aðeins þrjátíu ára
Bandaríski kylfingurinn Grayson Murray lést í morgun aðeins þrjátíu ára gamall. Dánarorsök Murray liggur ekki fyrir en hann hafði dregið sig úr keppni degi áður vegna veikinda.

Sá sem handtók Scheffler fylgdi ekki verkreglum en ákærurnar standa
Borgarstjóri Louisville í Kentucky sagði lögregluþjóninn sem handtók kylfinginn Scottie Scheffler ekki hafa fylgt verkreglum í starfi sínu, ákærurnar gegn Scheffler verða þó ekki felldar niður.

Scottie Scheffler fer fyrir dómstóla í byrjun júní
Scottie Scheffler var ákærður í fjórum liðum og átti að mæta í dómsalinn í dag en málsmeðferð kylfingsins hefur verið frestað til 3. júní.

Schauffele hélt út og tryggði sér sigur með fugli á átjándu
Xander Schauffele tryggði sér sigur á PGA-meistaramótinu í golfi í kvöld er hann lék síðasta hring mótsins á sex höggum undir pari.

Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna
Írinn Shane Lowry átti algjörlega ótrúlegan hring á þriðja degi PGA-meistaramótsins í golfi er hann lék á níu höggum undir pari í dag.

Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum
John Daly hefur dregið sig úr keppni á PGA-meistaramótinu eftir vægast sagt áhugaverðan fyrsta hring.