Golf

Mikil spenna fyrir lokahringinn

Sindri Sverrisson skrifar
Perla Sól Sigurbrandsdóttir er í ágætri stöðu til að vinna aftur líkt og á fyrsta móti GSÍ-mótaraðarinnar.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir er í ágætri stöðu til að vinna aftur líkt og á fyrsta móti GSÍ-mótaraðarinnar. vísir/Anton

Það ríkir mikil spenna í bæði kvenna- og karlaflokki fyrir lokahringinn í Korpubikarnum, á Korpúlfsstaðavelli.

Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR er á heimavelli og leiðir í kvennaflokki fyrir lokahringinn á morgun, á samtals -2 höggum. Hún er þó aðeins höggi á undan Ásdísi Valtýsdóttur, einnig úr GR, og þær Fjóla Margrét Viðarsdóttir, Eva Kristinsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir eru svo skammt undan á pari.

Mótið er jafnframt annað mótið á GSÍ-mótaröðinni en Perla fagnaði einmitt sigri á Reykjanesmótinu fyrir hálfum mánuði.

Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss er efstur í karlaflokki í Korpubikarnum, á samtals -8 höggum. Hann lék fyrsta hring mótsins á -8 höggum en svo á pari í dag og er nú aðeins einu höggi á undan nafna sínum Aroni Snæ Júlíussyni úr GKG.

Aron Snær vann einmitt Reykjanesmótið og hann spilaði á -6 höggum í dag til að blanda sér af fullum þunga í baráttuna um sigurinn á Korpúlfsstaðavelli. 

Jóhann Frank Halldórsson og Veigar Heiðarsson eru jafnir í 3. sæti á samtals -4 höggum.

Stöðuna í mótinu má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×