Fréttir

Íslensk kona og fjölskylda hennar á sjúkrahúsi eftir árás á Krít
Ráðist var á íslenska konu og fjölskyldu hennar á grísku eyjunni Krít. Konan sem er 41 árs, kanadískur eiginmaður hennar og tveir synir, 21 og 18 ára, voru flutt á sjúkrahús í kjölfar árásarinnar.

Diljá Mist segir hræsni einkenna íslenska femínista
Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins dró ekki af sér í hlaðvarpsþættinum Ein pæling; hún sagði innflytjendur fá „súkkulaðipassa“ hjá íslenskum femínistum í mannréttindamálum. Hún talaði umbúðalaust út um skoðun sína á íslenskum femínistum sem hún telur hræsnara.

Sérsveit þurfti ekki að skerast í leikinn vegna ferðamanns á tjaldstæði
Lögreglan á Vesturlandi óskaði eftir aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra í gærkvöldi vegna tilkynningar um mann með hnífa. Sérsveitin þurfti þó ekki að fara í neina sérstaka aðgerð vegna málsins, en lögreglan á Vesturlandi útkljáði málið sjálf.

Frjósemi á Íslandi aldrei verið minni en í fyrra
Frjósemi á Íslandi hefur aldrei verið minni en í fyrra frá því mælingar hófust fyrir um 170 árum síðan. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu á vef Hagstofu Íslands, en þar segir að fjöldi lifandi fæddra barna á Íslandi í fyrra hafi verið 4.315 sem er fækkun frá 2022 þegar fædd börn voru 4.382. Meðalaldur mæðra hefur einnig hækkað jafnt og þétt undanfarna áratugi og eignast konur nú sitt fyrsta barn að jafnaði síðar á ævinni en áður.

Eitraði fyrir sjálfri sér og ferðafélögum sínum með blásýru
Blásýra fannst í tebollum á Grand Hyatt Erawan-hótelinu í Bangkok á Taílandi þar sem sex fundust látnir á þriðjudag. Einn af látnu er grunaður um að hafa eitrað fyrir hópnum.

Stefna Starmers mörkuð í ræðu konungs
Í dag hefur breska þingið störf eftir stórsigur Verkamannaflokksins í kosningum fyrr í mánuðinum. Eins og hefð er fyrir heldur Karl III Bretakonungur ræðu í þinghúsinu við tilefnið. Ræða konungs er eins konar stefnuyfirlýsing nýviðtekinnar ríkisstjórnar og er skrifuð af ríkisstjórnarliðum.

Telur ekki trúlegt að komið verði á samkomutakmörkunum
Margrét Héðinsdóttir, fagstjóri hjúkrunar og upplýsingamiðstöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir fleiri erindi á borði upplýsingamiðstöðvarinnar núna en voru í janúar og febrúar. Skæðar og smitandi veirusýkingar, þeirra á meðal kórónaveiran, séu í gangi og mikið álag á heilsugæslum landsins.

Laðar fjárfesta að til að halda Skaganum á Skaganum
Bæjarstjóri Akraness segir bæjarstjórn gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að halda Skaganum 3X í bænum.

Íranir hafna aðild að banatilræðinu
Íranir hafnar ásökunum bandaríska embættismanna um samsæri til að ráða Trump af dögunum. Ásakanirnar tengjast þó ekki banatilræðinu gegn Trump á kosningafundi í Pennsylvaníu á laugardaginn síðasta. Íranir þvertaka fyrir aðild að því.

Ekkert nema ást og aðdáun á landsþingi Repúblikana
Nikki Haley, fyrrverandi keppinautur Donald Trump í forvali Repúblikanaflokksins fyrir foretakosningarnar í Bandaríkjunum, fór fögrum orðum um manninn þegar hún steig á svið á landsþingi flokksins í gær.

Valið á Vance fyrirboði einangrunarhyggju í utanríkismálum
Sérfræðingar í utanríkismálum eru uggandi eftir að Donald Trump tilkynnti um val sitt á varaforsetaefni. Valið bendi til þess að einangrunarhyggja muni mögulega ráða för í utanríkispólitík Bandaríkjanna ef Trump nær kjöri.

Tveir fundust skotnir til bana í brunnum bíl í Malmö
Sænska lögreglan rannsakar nú mál þar sem tvö lík fundust skotin og brunnin í bílaleigubíl á iðnaðarsvæði í Malmö. Um var að ræða ökumann og farþega sem virðast hafa verið drepnir á sunnudag, samkvæmt Aftonbladet.

Þrjár líkamsárásir, vinnuslys og mannlaus bíll á ferð
Tveir menn voru handteknir í Seljahverfi í gær, fyrir sitthvora líkamsárásina. Báðir voru vistaðir í fangageymslu. Þá var þriðji maðurinn handtekinn fyrir líkamsárás í póstnúmerinu 213.

Grunar að Íranir hafi skipulagt morð á Trump fyrir atburði vikunnar
Öryggisgæsla í kring um Donald Trump var fyrir nokkrum vikum aukin þegar bandarísk yfirvöld komust á snoðir um að yfirvöld í Íran hafi ætlað að ráða Trump af dögum.

„Væri ekki að fara ef ekki væri fyrir góðvild fólks“
Tinna Rúnarsdóttir, sem ættleidd var frá Sri Lanka fyrir fjörutíu árum, er á leið út á vit ættingja sinna. Hún hóf leit að blóðforeldrum sínum fyrr á árinu en við hana kom í ljós að móðir hennar hefði verið myrt fyrir meira en tuttugu árum. Tinna er atvinnulaus fjögurra barna móðir og hefur því sett af stað söfnun vegna ferðarinnar. Hún þakkar allan stuðninginn sem hún hefur þegar fengið.

Fyrsta heimasmíðaða útvarp landsins til sýnis
Fyrsta heimasmíðaða útvarpstæki landsins, sem smíðað var 1923 á Seyðisfirði vekur nú mikla athygli gesta á Samgöngusafninu á Skógum undir Eyjafjöllum.

„Stanslaus barátta við það að vera ekki með menn í einangrun“
Forstöðumaður Litla Hrauns og Hólmsheiðarfangelsis segir slæma hegðun fanga færast í aukana. Fangelsin séu vel í stakk búin til að takast á við vandann eins og sakir standa, en haldi aukningin áfram geti skapast vandamál.

Grátlegt að veiðarnar séu kallaðar af meðan sjórinn er fullur af fiski
Síðasti dagur strandveiða er í dag og öll strandveiðileyfi falla niður frá og með morgundeginum. Formaður Landssambands smábátaeigenda segir sjóinn fullan af fiski og grátlegt sé að tímabilinu sé lokið.

„Covid er alltaf einhvern veginn með okkur“
Formaður farsóttanefndar Landspítalans segir fjölgun Covid-smita valda manneklu á ýmsum deildum. Heimsóknartími verður takmarkaður og kemur til greina að loka alfarið fyrir heimsóknir.

Þyrlan flutti slasaða göngukonu
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaða göngukonu skammt frá Álftavatni, sem liggur við Laugaveginn, síðdegis í dag. Aðstandendur hennar voru í kjölfarið fluttir til byggða.

Slæm hegðun fanga, veiran skæða og sundballett
Forstöðumaður Litla Hrauns og Hólmsheiðarfangelsis segir slæma hegðun fanga færast í aukana. Fangelsin séu vel í stakk búin til að takast á við vandann eins og sakir standa en haldi sama þróun áfram geti skapast vandamál. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Sex um borð þegar bátur strandaði í Viðey
Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út af Landhelgisgæslunni í dag vegna vélavana báts rétt norðan við Viðey.

Munaði engu að ökumaður straujaði niður nítján hjólreiðamenn
Litlu mátti muna að illa færi þegar ökumaður jeppa, með kerru í afturdragi, tók fram úr nítján hjólreiðamönnum á leið til Þingvalla. Ökumaðurinn verður kærður fyrir aksturinn, sem náðist á myndband.

Mál á hendur skipverjum Polar Nanoq fellt niður
Meint kynferðisbrotamál á hendur þremur skipverjum grænlenska togarans Polar Nanoq hefur verið lagt niður. Það er ákvörðun ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Eldgos líklegt á allra næstu vikum og jafnvel innan bæjarins
Jarðvísindamenn Veðurstofu Íslands áætla að annað kvikuhlaup og/eða eldgos hefjist við Grindavík á næstu þremur til fjórum vikum. Þá benda greiningar til þess að meiri líkur séu á að hraun komi upp innan Grindavíkur í næsta eldgosi.

„Það eina sem stoppar þá er hnefinn, valdbeiting“
Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari segir marga fegna því að sjá Mohamad Kourani bak við lás og slá. En þó hann sé ýkt dæmi erum við að flytja inn í stórum stíl menn sem gefa ekki mikið fyrir okkar samfélagsgerð og sáttmála.

Vélarvana bátur strandaði við Viðey
Bátur varð vélarvana með sex manns um borð og rak hægt og rólega í áttina að Viðey þangað til að hann strandaði við eyjuna.

Vonar að árásin gegn Trump veki Bandaríkjamenn
Halla Tómasdóttir, verðandi forseti Íslands, segir skotárás sem beindist að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hryggja sig.

Fallist á áframhaldandi gæsluvarðhald
Héraðsdómur hefur fallist á áframhaldandi gæsluvarðhald til 9. ágúst næstkomandi yfir manni á sjötugsaldri, sem grunaður er um að hafa banað eiginkonu sinni á Akureyri í apríl.

Klára kvótann á morgun
Útlit er fyrir að kvóti til strandveiða klárist á morgun. Talsmaður smábátaeigenda segir kerfið eiga að geta gengið þannig að veitt sé út ágústmánuð.