Eldgos og jarðhræringar

„All out of luck“ í Leifsstöð
Öskufall frá Eyjafjallajökli lokaði flugvöllum í Englandi og hafði inntökupróf í leiklistarskóla af Hreindísi Ylfu Garðarsdóttur Hólm. Fimleikastúlkur á leið til Finnlands brugðu á leik þrátt fyrir óvissuna.

Hélt að konan væri frá Suður-Ameríku
„Nú skilur maður loksins hvað orðið móðuharðindi þýðir,“ segir Haukur Snorrason, ferðabóndi í Hrífunesi í Skaftártungu. Haukur og kona hans, Hadda Björk Gísladóttir, sem hafa síðan í fyrra rekið ferðaþjónustu á bænum í hjáverkum, voru komin að Hrífunesi á miðvikudag og ætluðu að verja einum degi í viðhald á húsinu og snúa svo heim. Ferðin varð hins vegar lengri en til stóð.

Lítið hægt að segja um gosið
„Um framtíð gossins er lítið hægt að segja,“ sagði Páll Einarsson, prófessor í jarðeðlisfræði við HÍ, í gærdag. Fyrst og fremst byggi jarðvísindamenn á reynslu þegar þeir spái fyrir um gos og nánast engin reynsla sé af gosi í Eyjafjallajökli. Eina gosið sem talsvert er vitað um sé gosið 1821. „Og það er takmarkað sem hægt er að læra af einu gosi. Eldfjall er því marki brennt að það breytist í gosum og næsta gos verður í breyttu eldfjalli.“

„Hlykkjaðist fram eins og ormur“
„Íbúar eru beðnir að rýma strax upp í hlíðar og á örugg svæði.“ Þannig hljóðaði tilkynning Almannavarna klukkan 18.54 í gær. Þá hafði frést af miklu hlaupi á leið niður Markarfljót og gripið var til skyndirýmingar.

Eins og á allt annarri plánetu
„Það var eins og maður væri kominn á aðra plánetu,“ segir Reynir Ragnarsson í Vík, sem var á ferð um Mýrdal í gærmorgun með jarðvísindamönnum að taka sýni úr gosöskunni.

Vel heppnuð aðgerð
„Þessi aðgerð, að rjúfa hringveginn til að bjarga Markarfljótsbrúnni, heppnaðist fullkomlega. Hér hefur verið unnið mikið og gott verk,“ sagði Kristján Möller samgönguráðherra þegar hann virti fyrir sér aðstæður á veginum við Markarfljótsbrúna um hádegisbil í gær.

Askan ógnar ekki dýrum
Öskufall á ekki að ógna öryggi og heilsu búfjár, ef bændur bregðast rétt við, segir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir.

Naumlega tókst að senda fisk til Liège
Í gærmorgun tókst að senda fragtvél til Liège í Belgíu með 37 tonn af fiski af þeim um 50 tonnum sem til stóð að flytja út. Ekki var hins vegar hægt að millilenda í Englandi, eins og venja er, heldur þurfti að flytja átta tonn með flutningabílum frá Liège til kaupenda á Bretlandseyjum.

Í miðju kafi við mjaltirnar
„Ég var á miðju kafi við mjaltir þegar aðvörun barst í gemsann,“ segir Hafsteinn Jónsson. Hann var staddur í fjöldahjálparstöðinni í Hvolsskóla um klukkan hálf níu í gærkvöldi. Hann var strax farinn að búa sig til farar aftur heim í Akurey í Vestur-Landeyjum.

Kostnaður flugfélaga hleypur á milljónum
Þær þúsundir flugfarþega, sem ekki komust leiðar sinnar með íslensku flugfélögunum í gær vegna eldgossins í Eyjafjallajökli, eiga rétt á endurgreiðslu eða nýjum farseðlum. Ferðatryggingar gilda hins vegar ekki um tafir vegna eldgosa og náttúruhamfara og tjón, svo sem hótelherbergi eða bílaleigubíla sem ekki er hægt að nýta á áfangastað, fæst því ekki bætt.

Drunurnar eins og í þotu að lenda
„Við vorum við fjárhúsið að gefa þegar við heyrðum drunur eins og það væri þota að lenda fyrir utan,“ segir Anna Runólfsdóttir, bóndi í Fljótsdal, innsta bænum í Fljótshlíð. Hún var innilokuð á bænum vegna hlaups í Markarfljóti um klukkan 19 í gærkvöldi, en sagðist ekki óttast um öryggi sitt eða fjölskyldu sinnar.

Grímsvötn í startholunum
Þegar eldgosið í Eyjafjallajökli hófst í fyrradag gerðu aðrar eldstöðvar vart við sig.

Morgunflugi Iceland Express seinkað
Vélum Iceland Express til London og Kaupmannahafnar í fyrramálið, sem áttu að fara klukkan sjö hefur verið seinkað til klukkan ellefu vegna eldgossins í Eyjafjallajökli samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu.

Búið að aflétta rýmingu að hluta til
Búið er að aflétta rýmingu að hluta til á bæjum í kringum Eyjafjallajökul. Íbúar tuttugu bæja þurfa þó að finna sér annan svefnstað. Það er nákvæmlega sama tilhögun og var í gær.

Lokaðist inni í Fljótshlíðinni þegar flóðið brast á
Anna Runólfsdóttir, bóndi í Fljótshlíðinni, varð innlyksa í hlaupinu núna í kvöld. „Ég heyrði miklar drunur og ályktaði svo að það væri að koma nýtt flóð,“ segir Anna.

Hlaupið kom úr toppgígnum
„Þetta á eftir að halda svona áfram,“ segir Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur.

Enn bjarga skörðin - flóðið nær hámarki
Hlaupið er búið að ná að þjóðveginum og það er töluvert rennsli í gegnum skörðin sem voru rofin í veginn fyrsta daginn. Mikið straumur fer í gegnum þau skörð núna að sögn Andra Ólafssonar, fréttamanns Stöðvar 2, sem er á vettvangi.

Fólk situr bara og bíður í Hvolsskóla
„Fólk er ótrúlega rólegt. Það er rólegt og þakklátt," segir Árný Hrund Svavarsdóttir, starfsmaður fjöldahjálpamiðstöðvar Rauða krossins.

Varnargarðarnir virðast halda við efri brúna
Flóðið lamdi duglega á varnargörðunum við efri brúna að sögn Ásgeirs Árnasonar, bónda við Stórumörk 3, sem er nærri Þórsmörk. Hann fylgist með flóðinu og lýsti því þannig að það virtist minna í því heldur en í gær en það væri þó allt öðruvísi. Vatnið væri fullt af ís auk krapa og eðju.

Unnur Brá: Vona að varnargarðarnir haldi
„Ég vona bara að varnargarðarnir haldi,“ segir Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður sem býr á Hvolsvelli. Þar er nú fólk úr Landeyjum og Fljótshlíðinni að safnast saman í fjöldahjálparmiðstöðinni í Hvolsskóla vegna hlaupsins sem nú rennur úr Eyjafjallajökli.

Hlaupið nálgast efri brúna
Hlaupið úr Eyjafjallajökli fer senn að nálgast efri brúna samkvæmt upplýsingum frá Kjartani Þorkelssyni, sýslumanni á Hvolsvelli.

Flóðið í kvöld stærra en í gær - rýming vel á veg komin
Flóðið sem er á leiðinni niður Eyjafjallajökul sem er að koma niður Gígjökul vegna gossins í Eyjafjallaökli er stærra en flóðið í gær að sögn Rögnvalds Ólafssonar hjá Almannavörnum.

Tafarlaus rýming vegna jökulhlaups
Vegna upplýsinga um að stórt vatnsflóð sé að koma niður Gígjökul þá verða áhrifasvæði Eyjafjallajökuls rýmd strax.

Mestu truflanir á flugsamgöngum í sögu norður Evrópu
Aldrei í sögunni hafa orðið aðrar eins truflanir á flugsamgöngum í norðanverðri Evrópu og með gosinu í Eyjafjallajökli. Sjö lönd hafa alveg lokað lofthelgi sinni og leyfa ekkert flug. Gosið truflar raunar flugsamgöngur um allan heim.

Skortur á mat í Vík - fólki ráðlagt að ganga með grímur
Öskufall vegna eldgossins í Eyjafjallajökli hefur verið mikið austan við Mýrdalsjökul í dag. Íbúum þar hefur verið ráðlagt að ganga með grímur. Búist er við að vindur snúist annað kvöld og þá gæti aska farið að berast til Víkur, Vestmannaeyja og jafnvel á Hvolsvöll.

Öskugosið: Tugmilljón króna skaði fyrir íslenskan ferðaiðnað
„Við vorum einmitt að klára félagsfund þar sem við kölluðum saman sérfræðinga og ræddum málið,“ segir Erna Hauksdóttir sem hefur gífurlega miklar áhyggjur af stöðu ferðaþjónustunnar vegna öskugossins í Eyjafjallajökli.

Leiðbeiningar vegna öskufalls
Umhverfisstofnun hefur sent leiðbeiningar til almennings um það hvernig skal bregðast við loftmengun sem fylgir öskufalli frá eldgosum.

Nauðsynlegt að verja bíla sína fyrir skemmdum
Ökumenn verða að passa bíla sína séu þeir á slóðum þar sem búast má við öskufalli. Vélarnar eru líklegar til að soga að sér öskuna þannig að hún stífli bílana. Það gæti valdið umtalsverðu tjóni fyrir bifreiðaeigendur.

Eldgosið stærsta mál dagsins á Google
Eins og gefur að skilja hefur Netið bókstaflega logað í allan dag með fréttum af eldgosinu og afleiðingum þess.

Vegurinn ekki opnaður fyrr en á morgun
Vegurinn að Markarfljóti verður sennilegast ekki opnaður fyrr en á morgun, segir Sveinn Rúnarsson yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli. Vegagerðamenn eru byrjaðir að vinna á fullu að viðgerð á veginum en hann rofnaði á fjórum stöðum vegna vatnavaxta frá eldgosinu í gær.