Dómsmál
159 160 161 162 163 ›
Deilan um landið á tímamótum Jarðeigendur í uppsveitum Biskupstungna halda jörðum sínum óskertum en afréttur sem þeir gerðu kröfu til verður að þjóðlendum samkvæmt dómi Hæstaréttar í gær. Ríkið gerði kröfu um hluta jarðanna. Með dómnum er staðfestur úrskurður óbyggðanefndar frá því árið 2000. Þetta er fyrsti dómur Hæstaréttar í þjóðlendumáli. Innlent 13.10.2005 14:50
Héraðsdómur viðurkennir kröfuna Héraðsdómur Reykjavíkur viðurkenndi í dag stærstan hluta kröfu Jónasar Kristjánssonar í þrotabú DV sem forgangskröfu. Jónasi var sagt upp störfum sem ritstjóra blaðsins í desember árið 2001 og telur hann sig eiga inni ógreidd laun, bæði frá tímabili uppsagnarfrests og fyrri hluta árs 2001. Innlent 13.10.2005 14:49
Krefst tveggja ára fangelsisdóms Saksóknari í líkfundarmálinu krefst, að sakborningarnir þrír verði hver um sig dæmdir til að sæta að lámarki tveggja ára fangelsi, við lok aðalmeðferðar málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Enn fremur taldi saksóknari tveggja og hálfs árs fangelsi vera hæfilega refsingu. Innlent 13.10.2005 14:49
2 1/2 árs fangelsi hæfilegt Ríkissaksóknari telur hæfilegt að allir sakborningar í líkfundarmálinu verði dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi. Verjendur krefjast sýknu af flestum ákæruliðum. Aðalmeðferð í Héraðsdómi lauk rétt fyrir hádegi. Innlent 13.10.2005 14:49
Hressir eftir að Vaidas dó Jónas Ingi Ragnarson og Tomas Malakauskas virtust hressir og kátir og alls ekki áhyggjufullir, eftir að Vaidas Jucevicius lést í Kópavogi og þar til honum var komið fyrir í sjóinn við netagerðabryggjuna í Neskaupstað, að sögn vitna í aðalmeðferð Líkfundarmálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Innlent 13.10.2005 14:48
Jónas neitar allri sök Einn sakborninga í líkfundarmálinu neitar allri sök. Hinum sakborningunum tveimur ber að mestu leyti saman um að allir þrír hafi átt þátt í að koma líki Vaidasar Júsevicsíusar fyrir í höfninni í Neskaupstað. Aðalmeðferð málsins hófst í morgun fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Innlent 13.10.2005 14:48
Vissi ekki af líkinu Einn sakborninganna í líkfundarmálinu segist ekki hafa haft hugmynd um að lík væri vafið í teppi og geymt aftur í, í jeppa sem hann ók um 700 kílómetra leið austur á firði. Hinir sakborningarnir tveir staðhæfa að allir þrír hafi átt þátt í að koma líkinu fyrir í höfninni í Neskaupstað. Aðalmeðferð málsins hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Innlent 13.10.2005 14:48
Álitshnekkir fyrir Hæstarétt Kjartan Ásmundsson segir það sorglegt að menn þurfi að fara út fyrir landsteinana til að leita réttar síns gagnvart íslenskum stjórnvöldum. Mannréttindadómstóll Evrópu dæmdi íslenska ríkið til að greiða honum bætur í gær eftir að Héraðsdómur og Hæstiréttur höfðu dæmt Kjartani í óhag. Kjartan segir dóm Mannréttindadómstólsins álitshnekki fyrir Hæstarétt. Innlent 13.10.2005 14:47
Enn í stofufangelsi í Texas Bandarísk stjórnvöld hafa enn ekki svarað beiðni íslenskra stjórnvalda um að tvítugur Íslendingur, sem haldið hefur verið föngnum í Texas í sjö ár, fáist framseldur til Íslands. Hann var 13 ára dæmdur fyrir kynferðisbrot sem hann er sagður hafa framið þegar hann var 11 ára. Innlent 13.10.2005 14:46
Dæmdur í tveggja mánaða fangelsi Ragnar Sigurjónsson, sem var framseldur frá Taílandi fyrr á árinu, var í dag dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjaness fyrir fjársvik. Þar af eru fjórir mánuðir skilorðsbundnir. Ákæruvaldið krafðist fimm mánaða fangelsisvistar. Innlent 13.10.2005 14:45
Gæsluvarðhald framlengt Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi í dag gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um aðild að einu stærsta fíkniefnamáli Íslandssögunnar. Gæsluvarðhald yfir mönnunum rann út í dag og varð Héraðsdómur við kröfu lögreglunnar í Reykjavík um tveggja vikna framlengingu. Innlent 13.10.2005 14:45
Axarmaðurinn játar brot sitt Ungur maður játaði fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að hafa rænt Landsbankaútibúið við Gullinbrú, vopnaður öxi. Ránsfengnum var líklega komið til fíkniefnasala sem hann skuldaði fé. Gjaldkeri í bankanum sagðist hafa verið miður sín í langan tíma á eftir. Innlent 13.10.2005 14:45
Sýknaður af skjalafalsi Rúmlega fimmtugur maður var sýknaður, í Héraðsdómi Reykjavíkur, af ákæru um skjalafals. Maðurinn var ákærður fyrir að skrifa nafn annars manns á tilkynningu sem hann framvísaði hjá Umferðarstofu um sölu bifreiðar hans. Innlent 13.10.2005 14:45
Mæðgur í fangelsi Fanta Sillah, 26 ára kona frá Sierra Leone, sem í Héraðsdómi Reykjaness var dæmd í fimm ára fangelsi fyrir e-töflusmygl í lok júlí, eignaðist stúlkubarn fyrir um mánuði síðan. Dóttir Fanta dvelur nú með henni í kvennafangelsinu í Kópavogi og heilsast báðum vel að sögn lögmanns Fanta. Innlent 13.10.2005 14:44
Játaði sök sem burðardýr Rúmlega tvítugur maður frá Litháen var ákærður sem burðardýr í stóru kókaínmáli í gær. Han játaði sök. Innlent 13.10.2005 14:44
Hafnar kröfu um frávísun Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfum manns sem ákærður er fyrir að hafa numið dóttur sína á brott og flutt hana til Frakklands um að málinu verði vísað frá dómi. Rök mannsins eru þau að hann sætir sömu ákæru í Frakklandi. Innlent 13.10.2005 14:44
Úrskurðaður í gæsluvarðhald Karlmaður um þrítugt var í gær úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í tengslum við umfangsmikið smygl á kókaíni, amfetamíni og LSD. Þar með sitja sjö í gæsluvarðhaldi vegna málsins, fimm hér á landi og tveir í Hollandi. Innlent 13.10.2005 14:43
Máli Hannesar vísað frá Máli Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um lögbann á efnismeðferð Siðanefndar Háskóla Íslands var vísað frá í Hæstarétti í gær. Innlent 13.10.2005 14:43
Krefst fjögurra ára fangelsis Sækjandi í sakamáli gegn Stefáni Loga Sívarssyni krafðist þess í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að hann yrði dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir þrjár líkamsárásir sem hann er sakaður um að hafa framið á tveimur dögum í apríl. Innlent 13.10.2005 14:43
Lögbannið fellt úr gildi Hæstiréttur hefur fellt úr gildi lögbann við að Siðanefnd Háskóla Íslands fjalli um vinnubrögð Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar þegar hann reit fyrsta bindi ævisögu Halldórs Laxness í fyrra. Innlent 13.10.2005 14:43
2 mánuðir og 17 milljónir Rúmlega fimmtugur maður var dæmdur til tveggja mánaða fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og til greiðslu rúmlega 17 milljóna króna fyrir að hafa ekki staðið skil á greiðslu virðisaukaskatts og staðgreiðslu opinberra gjalda á árunum 2001 og 2002. Innlent 13.10.2005 14:42
Ekkert lát á straumi fíkniefna Mörg stór fíkniefnamál hafa komið upp síðustu ár. Tólf ára fangelsisdómur yfir Austurríkismanni var mildaður í níu ár í Hæstarétti. Tryggvi Rúnar Guðjónsson situr nú af sér tíu ára fangelsisdóm sem er þyngsti fíkniefnadómur Hæstaréttar. Innlent 27.9.2004 00:01
Gargandi þvæla segir Sveinn Andri Alls hafa um 120 lögmenn skrifað undir stuðningsyfirlýsingu við Jón Steinar Gunnlaugsson um að hann verði skipaður í stöðu hæstaréttardómara. Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður segist ekki vita hversu margir hafi verið beðnir um að skrifa undir áskorunina. Innlent 13.10.2005 14:41
Réttarhöld hefjast 18. október Réttarhöld í líkfundarmálinu hefjast 18. október í Héraðsdómi Reykjavíkur. Dómurinn hafnaði í dag kröfu verjenda um að ákæruvaldið aflaði sjúkraskýrslna frá Litháen um hinn látna, Vaidas Jusevicius. Innlent 13.10.2005 14:40
Ólafur Börkur skilaði séráliti Allir dómarar Hæstaréttar nema einn eru sammála um að lagaprófessorarnir Eiríkur Tómasson og Stefán Már Stefánsson séu hæfastir umsækjenda um dómarastöðu við réttinn. Einn dómari, Ólafur Börkur Þorvaldsson, skilaði séráliti þar sem hann leggur áherslu á afburðaþekkingu Jóns Steinars Gunnlaugssonar á sviði lögfræði. Innlent 13.10.2005 14:40
Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tuttugu og fimm ára gömlum manni sem er grunaður um að hafa veitt öðrum manni alvarlegan áverka með öxi á veitingastað í Hafnarfirði í byrjun mánaðarins. Innlent 13.10.2005 14:37
Krafist 5 mánaða fangelsis Ragnar Sigurjónsson, sem framseldur var frá Taílandi vegna fjársvikamáls, segist hafa verið farinn að undirbúa heimför þegar hann var framseldur. Ákæruvaldið krefst þess að Ragnar verði dæmdur í fimm mánaða fangelsi. Innlent 13.10.2005 14:37
Var ekki að flýja réttvísina Ragnar Sigurjónsson, sem framseldur var frá Taílandi á dögunum, segist ekki hafa verið að flýja réttvísina þegar hann hvarf úr landi og fjársvikamál á hendur honum var fyrir dómstólum. Persónulegar ástæður hafi legið þar að baki. Vitni segir að nígerískur viðskiptafélagi Ragnars hafa marghótað honum lífláti. Innlent 13.10.2005 14:36
Ragnar neitaði sök Ragnar Sigurjónsson neitaði sök í Héraðsdómi Reykjaness í dag þegar aðalmeðferð hófst í máli ríkisins gegn honum. Ragnari er gefið að sök að hafa svikið á fimmtu milljón króna út úr Nígeríumanni sem stóð í þeirri trú að Ragnar ætlaði að selja honum skreiðarfarm. Innlent 13.10.2005 14:36
Sýknaður af manndrápsákæru Þjóðverji sem ók ölvaður með þeim afleiðingum að bíllinn fót út af og valt við Vatnsskarð var í dag sýknaður af ákæru um manndráp í Héraðsdómi Reykjaness. Félagi mannsins lést í slysinu. Innlent 13.10.2005 14:34