EM 2016 í Frakklandi

Þetta er barinn sem Íslendingar ætla að hittast á í París í dag
Ætla að hittast á tólfta tímanum og leggja af stað á völlinn klukkan 15.

Enginn tilbúinn að kveðja EM í dag
Íslenska landsliðið mætir Austurríki á Stade de France í lokaleik liðsins í París í dag. Nái strákarnir okkar ekki góðum úrslitum kveðja þeir Frakkland og það sem meira er, þetta yrði síðasti leikur Lars Lagerbäck.

Víkingarnir sem sjokkeruðu Ronaldo | Sjáðu umfjöllun Roger Bennett um Ísland
Roger Bennett, annar stjórnanda Men in Blazers, hefur nú sett saman þátt um íslenska fótboltalandsliðið fyrir VICE Sports og bætist þar með í hóp þeirra sem hafa fjallað um íslenska fótboltaævintýrið.

Staðfest að jafntefli dugar strákunum okkar á morgun
Íslenska knattspyrnulandsliðið er nú aðeins einu stigi frá því að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum EM í Frakklandi á sínu fyrsta stórmóti.

Afdrifaríkt tap fyrir Spánverja í kvöld | Erfið leið framundan á EM
Evrópumeistarar Spánverja þurfa að fara erfiðu leiðina að þriðja Evrópumeistaratitlinum í röð eftir að þeir misstu efsta sæti riðilsins til Króatíu í kvöld.

Króatar komu til baka á móti Spáni og unnu riðilinn | Sjáðu mörkin
Króatía sýndi styrk sinn í kvöld þegar liðið tryggði sér sigur í D-riðli á Evrópumótinu í Frakklandi eftir 2-1 endurkomu sigur á móti Evrópumeisturum Spánar.

Tyrkir sendu Tékka heim en eiga þó litla möguleika sjálfir | Sjáðu mörkin
Tyrkir eiga enn möguleika á því að komast í sextán liða úrslit Evrópukeppninnar í Frakklandi efir 2-0 sigur á Tékkum í kvöld í lokaumferð D-riðilsins. Úrslitin gulltryggja það endanlega að íslenska landsliðinu nægir jafntefli á móti Austurríki á morgun.

Fyrsti leikur sextán liða úrslitanna klár | Ungverjar komnir áfram
Keppni er nú lokið í þremur riðlum á Evrópumótinu í Frakklandi og eftir að leikjunum lauk í C-riðlinum í dag er það orðið ljóst hvaða þjóðir mætast í fyrsta leik sextán liða úrslitanna. Það varð líka ljóst að Ungverjar eru öruggir með sæti í sextán liða úrslitunum hvernig sem fer á morgun.

Eitt mark nægði Þjóðverjum en hjálpaði ekki íslenska liðinu | Sjáðu sigurmarkið
Michael McGovern, markvörður norður-írska liðsins, hélt sínu liði á floti í dag í 1-0 tapi á móti heimsmeisturum Þjóðverja í lokaleik liðanna í C-riðli Evrópumótsins í fótbolta í Frakklandi.

Úkraína fékk hvorki stig né skoraði mark á EM | Sjáðu sigurmark Póllands
Pólland er í öðru sæti riðilsins með fjögur stig en Úkraína er á botninum án stiga.

Ronaldo er frekar leiðinlegur
Hollendingurinn Rafael van der Vaart heillaðist ekki mikið af persónuleika Cristiano Ronaldo er þeir léku saman hjá Real Madrid.

Sjáðu fyrstu 15 mínúturnar frá æfingu strákanna | Myndband
Kolbeinn Tumi Daðason og Tómas Þór Þórðarson fóru yfir allt sem tengist leik Íslands og Austurríkis í beinni frá æfingu íslenska liðsins.

Eiður Smári: „Eins og maður sé kominn heim“
„Okkur leiðist ekki í eina sekúndu,“ segja Aron Einar og Hannes Þór um dvölina á hótelinu í Annecy.

Handrit Eiðs Smára að EM hefur gengið upp hingað til en svona er draumaendirinn
Arnar Gunnlaugsson var gestur Harðar Magnússonar í Sumarmessunni í gær og sagði þar mjög skemmtilegt sögu af Eiði Smára Guðjohnsen, leikmanni íslenska landsliðsins í knattspyrnu.

Aron Einar um Ronaldo-treyjuna: Þeim fannst þetta voða fyndið
Fyrirliðann var spurður út í Ronaldo treyjuna sem hann birti mynd af sér með á samfélagsmiðlum í gær.

Sjáðu blaðamannafund Íslands í heild sinni | Myndband
Aron Einar Gunnarsson, Hannes Þór Halldórssson, Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck sátu fyrir svörum.

Aron Einar: Ég verð 100 prósent klár í leikinn á morgun
"Það kom einn sjúkraþjálfari sérstaklega með mér á blaðamannafundinn til að undirbúa mig fyrir æfinguna,“ sagði Aron Einar.

Vandræði með Fan Zone í París | Íslendingar hittast í Moulin Rouge
Tólfan er búin að finna stað fyrir Íslendinga að hittast fyrir stórleikinn gegn Austurríki á morgun.

Zlatan hættir eftir EM
Sænski landsliðsmaðurinn Zlatan Ibrahimovic tilkynnti í dag að hann myndi hætta að leika með landsliðinu eftir EM.

Koller: Frábært að Heimir sé tannlæknir
Landsliðsþjálfari Austurríkis var spurður hvað honum þætti um að það væri tannlæknir í þjálfarateymi íslenska landsliðsins.

Fuchs: Við munum sækja meira á morgun
Christian Fuchs, leikmaður Leicester og fyrirliði austurríska landsliðsins, sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag.

Strákarnir lentir í París
Íslenska landsliðið er komið til höfuðborgar Frakklands þar sem það mætir Austurríki í lokaumferð riðlakeppni EM 2016 á morgun.

Norður-Írar ætla að stríða Þjóðverjum
Norður-Írland mætir Þýskalandi á EM í dag og jafntefli mun tryggja Norður-Írum farseðilinn í 16-liða úrslit keppninnar.

EM í dag: Ekki sama England lengur og Ísland gæti tekið Wales á þetta
Strákarnir okkar fljúga til Parísar í dag þar verður enginn ætlar að skoða Monu Lísu.

Frændur Arons Einars: Hann lætur mann óspart heyra það
Aron Einar Gunnarsson er með sterkt bakland á EM í Frakklandi en fjölskyldan fylgir honum eftir þar.

Króatar sektaðir vegna óláta áhorfenda
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur ákveðið að sekta Króata um 14 milljónir króna vegna hegðunar stuðningsmanna liðsins í leiknum gegn Tékkum.

EM dagbók: Ekkert meir „we almost beat them“ á Stade de France
Leikurinn gegn Portúgal var sá stærsti, svo var það leikurinn gegn Ungverjum og nú er það leikurinn gegn Austurríki.

Hafa unnið sér inn traust þjóðarinnar
Strákarnir okkar mæta Austurríki í lokaumferð riðlakeppni EM á Stade de France á miðvikudaginn. Náist ekki að minnsta kosti punktur í París er frumraun Íslands á EM í Frakklandi lokið. Íslenska liðið ætlar sér hinsvegar áfram.

Eiginkona Rooney leigði lúxusrútu
Eiginkonur ensku landsliðsmannanna í knattspyrnu vekja venjulega eftirtekt á stórmótum.

Landsliðsfyrirliðinn mömmustrákur með leiðtogahæfileika frá unga aldri
Systkini Arons Einars Gunnarssonar eru stolt af litla bróður sem leiðir karlalandsliðið út á völlinn í þriðja skipti á stórmóti gegn Austurríki.