Úkraína
19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 78 ›
Flúðu hörmungar í heimalandinu: „Stríðið hófst í raun og veru árið 2014“ Þrír Úkraínumenn sem hafa sest að hér á landi eftir að innrás Rússa hófst segja stöðuna í heimalandinu áfram erfiða. Þau þakka fyrir stuðning Íslendinga og segjast hafa fengið góðar móttökur, þó flóttinn hafi falið í sér ýmsar fórnir. Öll segjast þau elska heimalandið og eru fullviss um sigur Úkraínu en það muni taka tíma. Ein sem kom upprunalega frá Donbas bendir á að stríðið hafi í raun staðið yfir í níu ár. Innlent 24.2.2023 23:01
Fyrstu Hlébarðarnir komnir til Úkraínu og Selenskí heitir sigri Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hét því í morgun að Úkraína myndi bera sigur úr býtum gegn Rússum. Þetta sagði hann í ávarpi er hann markaði það að ár er liðið frá því innrás Rússa hófst en Selenskí sagði þetta ár vera ár sársauka, sorgar, trúar og samstöðu. Erlent 24.2.2023 11:49
Bein útsending: 24. febrúar – Ár frá innrás Alþjóðamálastofun Háskóla Íslands stendur fyrir ráðstefnu í dag í tilefni af því að ár sé liðið frá innrás Rússlands í Úkraínu. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Úkraínuverkefni Háskóla Íslands og hefst klukkan 12. Innlent 24.2.2023 11:21
Taka lítið mark á yfirlýsingu Rússa um innrás Úkraínumanna Ríkisstjórn Moldóvu gefur lítið fyrir ásakanir Varnarmálaráðuneytis Rússlands um að Úkraínumenn ætli sér að gera innrás í Transnistríu, hérað í Moldóvu þar sem rússneski herinn er með viðveru. Rússar hafa haldið því fram að úkraínskir hermenn, klæddir eins og Rússar, ætli að sviðsetja einhvers konar ögrun sem Úkraínumenn ætli að nota sem átyllu til innrásar. Erlent 24.2.2023 10:48
Vilja að vesturveldi létti þrýstingi á Rússa til að lægja öldurnar Friðaráætlun sem kommúnistastjórnin í Kína lagði fram í dag kallar eftir því að vestræn ríki láti af refsiaðgerðum sínum gegn Rússlandi vegna innrásar þess í Úkraínu. Kínverjar taka undir ásakanir Rússa um að það hafi verið vesturveldunum að kenna að þeir réðust á nágranna sína fyrir ári. Erlent 24.2.2023 08:54
Ár eyðileggingar og hörmunga Ár er liðið frá því Rússar hófu innrásina í Úkraínu. Á þessum degi í fyrra lýsti Vladimír Pútín, forseti Rússlands, því yfir að Rússar væru að hefja „sértæka hernaðaraðgerð í Úkraínu. Erlent 24.2.2023 06:00
Fordæma innrásina einu ári síðar Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna greiddi í dag atkvæði um að fordæma innrás Rússa í Úkraínu. Ályktunin var samþykkt með afgerandi meirihluta. Kína var á meðal þjóða sem sat hjá. Erlent 23.2.2023 23:00
Klitschko segir Bach spila leik við Rússa Bræðurnir Vitali og Vladimir Klitschko kalla eftir harðari aðgerðum Alþjóðaólympíunefndarinnar gegn Rússum. Sá fyrrnefndi hefur boðið forseta nefndarinnar, Thomasi Bach, í heimsókn til Kiev. Sport 23.2.2023 11:01
Þingmenn úr öllum flokkum styðja tillögu Í þessari viku verður ár liðið frá því Rússland gerði innrás í Úkraínu, fullvalda og sjálfstætt ríki í Evrópu. Ár verður liðið frá því Rússar hófu stríð í Evrópu. Það var því viðeigandi að þingsályktunartillaga um að viðurkenna hungursneyðina í Úkraínu, eða Holodomor, sem hópmorð, hafi verið sett á dagskrá Alþingis í gær. Skoðun 23.2.2023 09:00
Guterres fordæmir framferði Rússa Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, António Guterres, hélt ræðu á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í nótt þar sem hann kallaði innrás Rússa í Úkraínu móðgun við sameiginlega samvisku heimsbyggðarinnar. Erlent 23.2.2023 07:14
Pútín dásamaður á mikilli hyllingarsamkomu í Moskvu Biden Bandaríkjaforseti fundaði í dag í Varsjá með leiðtogum níu aðildarríkja NATO í austur Evrópu um varnir álfunnar og stuðning við Úkraínu. Pútín reyndi að fá Kínverja til liðs við sig og mætti síðan á hyllingarsamkomu með stuðningsmönnum sínum. Erlent 22.2.2023 19:05
Alþingi ræðir ályktun um hungursneyðina í Úkraínu sem hópmorð Þingmenn allra flokka eru á þingsályktunartillögu sem rædd verður á Alþingi í dag um að hungursneyðin í Úkraínu í upphafi fjórða áratugar síðustu aldar hafi verið hópmorð. Milljónir manna í Úkraínu og Moldóvu létust úr hungri vegna aðgerða Jósefs Stalíns þáverandi einræðisherra Sovétríkjanna. Innlent 22.2.2023 11:43
Sex látin í árásum Rússa í Kherson Sex létust og sextán særðust eftir stórskotaliðsárás sveita rússneska hersins á borgina Kherson í gærkvöldi og í nótt. Erlent 22.2.2023 06:37
Putin segir Rússland fórnarlamb innrásar Vesturlanda Rússlandsforseti lýsir Rússlandi sem algjöru fórnarlambi stríðins í Úkraínu, þar sem íbúar væru gíslar stjórnar nýnasista og Vesturlanda sem hefðu byrjað stríðið í þeim tilgangi að eyða Rússlandi. Forseti Bandaríkjanna segir Vesturlönd hins vegar standa einhuga gegn einræðisöflum og þau muni styðja Úkraínu allt til sigurs. Erlent 21.2.2023 20:00
„Rússar munu aldrei bera sigur úr býtum“ Þegar Rússar réðust inn í Úkraínu, reyndi það ekki eingöngu á Úkraínumenn. Það reyndi á allan heiminn. Þetta sagði Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, í ræðu sem hann hélt í Póllandi í dag en þar sagði hann Vesturlönd standa sameinuð gegn innrás Rússa í Úkraínu. Erlent 21.2.2023 17:04
Kokkur Pútíns sakar yfirmenn hersins um landráð Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin, sem gjarnan er kallaður „kokkur Pútíns“, sakaði Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, og Valery Gerasimov, formann herforingjaráðs Rússlands og yfirherforingja innrásarinnar í Úkraínu, um að reyna að gera út af málaliðahópinn Wagner Group. Prigozhin sagði Shoigu og Gerasimov vera seka um landráð. Erlent 21.2.2023 13:02
Lítið sem kom á óvart í stefnuræðu Pútíns Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hét því enn og aftur fram í morgun að Rússar bæru ekki ábyrgð á stríðinu í Úkraínu og að Vesturlönd væru að reyna að gera útaf við ríkið. Þetta sagði Pútín í stefnuræðu sinni sem hann hélt í dag. Ræðuna átti fyrst að halda í desember en henni var frestað vegna stríðsins í Úkraínu. Erlent 21.2.2023 10:36
Biden í óvæntri heimsókn til Kænugarðs Joe Biden Bandaríkjaforseti er mættur í óvænta heimsókn til úkraínsku höfuðborgarinnar Kænugarðs. Hann fundaði með Vólódýmír Selenskí Úkraínuforseta í morgun. Erlent 20.2.2023 10:26
Aukinn stuðningur Kína við Rússa yrði dýru verði keyptur Bandarísk stjórnvöld telja ljóst að Kínverjar íhugi nú að veita Rússum beinan stuðning í innrásarstríði þeirra í Úkraínu í formi vopna. Sérfræðingur í alþjóðamálum telur að slíkur stuðningur yrði Kínverjum afar dýrkeyptur. Erlent 19.2.2023 22:00
Saka Rússa um glæpi gegn mannkyninu Yfirvöld í Bandaríkjunum segja hersveitir Rússa hafa framið glæpi gegn mannkyninu í Úkraína. Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna, opinberaði þetta í ræðu á öryggisráðstefnunni í München í dag og sagði nauðsynlegt að hinir seku yrðu dregnir til ábyrgðar fyrir glæpina. Erlent 18.2.2023 18:51
„Davíð sigraði ekki Golíat með orðum“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði í dag öryggisráðstefnuna í München þar sem hann kallaði eftir því að Vesturlönd flýttu vopnasendingum til Úkraínu og útveguðu Úkraínumönnum þau vopn sem þeir þyrftu til að sigra Rússa. Erlent 17.2.2023 15:43
Ítrekar að Úkraínumenn munu ekki gefa eftir land fyrir frið Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir útilokað að Úkraínumenn munu gefa eftir land til Rússa til að koma á friði. Að láta undan myndi aðeins gera það að verkum að Rússar kæmu aftur og vildu meira. Vopn frá Vesturlöndum færðu Úkraínu nær friði. Erlent 17.2.2023 07:50
Nánast allur rússneski herinn sagður í Úkraínu Nærri því allur rússneski herinn, eða um 97 prósent hans, er nú í Úkraínu að sögn varnarmálaráðherra Bretlands. Hann segir Rússa hafa orðið fyrir miklu mannfalli og að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, og leiðtogar hersins áttuðu sig ekki á raunveruleikanum og væri sama um það hve marga menn þeir misstu. Erlent 16.2.2023 12:39
Eldflaugum rignir áfram yfir Úkraínu á meðan diplómatar ræða um frið Mikilvægir innviðir skemmdust í Lviv í vesturhluta Úkraínu í morgun, í loftárásum Rússa. Yfirvöld þar sögðu eld hafa kviknað í kjölfarið en greiðlega virðist hafa gengið að slökkva hann. Íbúar hafa verið hvattir til að leita skjóls ef og þegar loftvarnaflautur fara í gang. Erlent 16.2.2023 08:30
Lavrov segir Vesturlönd hafa ráðist á Rússland Atlandshafsbandalagið og Evrópusambandið hétu í dag auknum og áframhaldandi stuðningi við varnir Úkraínu gegn innrás Rússa. Utanríkisráðherra Rússlands sakar Bandaríkin og undirsáta þeirra um að grafa undan sjálfstæðri utanríkisstefnu Rússlands með það að markmiði að tortíma landinu. Erlent 15.2.2023 20:00
Gagnrýndi aðra bakhjarla fyrir hægagang með skriðdreka Boris Pistorius, varnarmálaráðherra Þýskalands, gagnrýndi aðra bakhjarla Úkraínu á fundi í Brussel í gær. Gagnrýnin sneri að því að þeir hefðu um margra vikna skeið þrýst á Þjóðverja um að heimila sendingar Leopard skriðdreka til Úkraínu og í kjölfarið væru þeir sjálfir með hægagang varðandi hergagnaflutninga. Erlent 15.2.2023 14:23
Að minnsta kosti 6.000 börn send í „endurmenntunarbúðir“ í Rússlandi Að minnsta kosti 6.000 börn frá Úkraínu hafa verið send í svokallaðar „endurmenntunarbúðir“ í Rússlandi, með það að markmiði að heilaþvo þau með rússneskum áróðri. Hundruð barna var haldið í búðunum í margar vikur eða mánuði. Erlent 15.2.2023 06:54
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Geta ekki bæði varið Bakhmut og undirbúið gagnárásir Bandaríkjamenn hafa varað ráðamenn í Úkraínu við því að næstu mánuðir verði mikilvægir og að þeir eigi að einbeita sér að undirbúningi gagnárása í vor, frekar en að verja Bakhmut. Úkraínumenn skortir skotfæri og varahluti við varnir gegn umfangsmiklum árásum Rússa, sem hafa litlum árangri skilað hingað til. Erlent 14.2.2023 14:00
Segja Rússa hafa misst heilt stórfylki við Vuhledar Úkraínumenn segja Rússa hafa misst mikinn fjölda atvinnuhermanna í árásum á bæinn Vuhledar í Dónetsk héraði. Í raun hafi Rússar misst heilt stórfylki (Brigade) landgönguliða í árásum á bæinn en árásirnar hafa litlum sem engum árangri skilað. Erlent 13.2.2023 15:17
Loftvarnaflautur hljóma og íbúum um allt land sagt að leita skjóls Loftvarnaflautur hafa hljómað út um alla Úkraínu í morgun og íbúar hvattir til að leita skjóls. Yfirvöld hafa varað við því að Rússar hyggist gera umfangsmiklar loftárásir á landið í dag. Erlent 10.2.2023 08:34
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent