Netglæpir

Fréttamynd

Gervi­greindin aukið hraða net­svika gríðar­lega

Hraði í netsvikum hefur aukist gríðarlega undanfarið og hlutir sem áður tóku netþrjóta marga mánuði taka nú aðeins nokkrar mínútur að sögn sérfræðings öryggis hjá Arion banka. Almenningur þurfi að sýna tortryggni því glæpamenn treysti á að fólk bregðist við í hugsunarleysi.

Innlent
Fréttamynd

„Fórnar­lambið látið borga brúsann“

Bjarni Þór Bjarnason sóknarprestur á Seltjarnarnesi lenti í klóm svikahrappa sem höfðu tæpa hálfa milljón króna af kreditkortinu hans. Hann segir farir sínar ekki sléttar eftir áratuga viðskipti við Íslandsbanka.

Innlent
Fréttamynd

Vara við um­fangs­miklum netsvikum í nafni lög­reglunnar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við svikaskilaboðum sem berast til fjöldamargra íslenskra símanúmera þessa stundina í nafni umferðarlögreglunnar. Að sögn hafa aldrei borist jafnmargar tilkynningar um netsvik til lögreglu á jafnskömmum tíma og nú.

Innlent
Fréttamynd

Tíma­setning Canvas-árásarinnar engin til­viljun

Sviðsstjóri kennslusviðs Háskóla Íslands segir háskólann mjög meðvitaðan um að tryggja þurfi gögn nemenda. Búið sé að yfirfara kerfi og tengingar í kjölfar alþjóðlegrar netárásar netþrjóta á Canvas í upphafi maímánaðar. 

Innlent
Fréttamynd

Níu­tíu milljóna tjón á nokkrum vikum

Frá því að ný netgátt fyrir netglæpi var opnuð um miðjan apríl hafa borist til hennar um 250 ábendingar um netbrot og á þriðja tug mála farið í rannsókn, flest hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Fjárhagstjón þessara glæpa nemur um 91 milljón íslenskra króna.

Innlent
Fréttamynd

Versti mögu­legi tíminn fyrir netárás

Canvas, námsumsjónarkerfi í eigu Instructor, lá niðri í gærkvöldi vegna árása ShinyHunters, hóps netþrjóta. Kerfið er notað í fjölmörgum háskólum hér á landi. Háskóli Íslands hvetur nemendur til að ná í allt sem þurfi til að undirbúa sig fyrir lokapróf verði kerfinu lokað aftur.

Innlent
Fréttamynd

Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagna­leka

Canvas-námsumsjónarkerfið liggur niðri á ný og samkvæmt erlendum miðlum hefur hópur netþrjóta sem kallast ShinyHunters lýst yfir ábyrgð á netárásunum. Nemendur Háskóla Íslands sem voru inni á síðunni þegar hún var tekin niður segjast hafa fengið upp á skjáinn skilaboð frá netþrjótunum. 

Innlent
Fréttamynd

Gögnum nem­enda mögu­lega stolið af Canvas

Mögulegt er að gögnum um nemendur í Háskóla Íslands og skilaboð þeirra á milli hafi verið stolið í „öryggisatviki“ sem kom upp í Canvas-námsumsjónarkerfinu undanfarna daga. Póstur var sendur á nemendur skólans síðdegis í dag.

Innlent
Fréttamynd

Hefur ekki hug­mynd um hve margir telji sig eiga bókun

Eigandi Hótels Breiðavíkur varð fórnarlamb netsvika þegar óprúttnir aðilar tóku greiðslur fyrir útleigu á herbergjum, þegar allt reyndist uppbókað. Hún veit ekki hversu margir telja sig vera með bókað herbergi, sér í lagi daginn sem sólmyrkvinn sést á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Lög­regla fylgdist með netsvikum í raun­tíma

Lögregla fylgdist í dag með því í rauntíma þegar fólk var blekkt til að skrá sig á svikasíðu í nafni Skattsins með rafrænum skilríkjum með það að leiðarljósi að hafa af þeim peninga. Unnið er að því að taka síðuna niður.

Innlent
Fréttamynd

Þegar enginn lætur vita - ofbeiting laga og kerfisblinda

Þegar netsvik eru annars vegar er einn viðkvæmasti hópurinn eldra fólk og einstaklingar sem þarfnast umönnunar. Tölfræðin sýnir að einstaklingar 65 ára og eldri verða fyrir mun hærra meðaltjóni í slíkum svikum en aðrir aldurshópar, oft tvö- til þrefalt hærra, þar sem slíkar svikagreiðslur eru oft óafturkræfar.

Skoðun
Fréttamynd

Rann­sókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fellt niður rannsókn vegna kæru FRÍSK - Félags rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði á hendur ætluðum eigendum ólöglegu deilisíðunnar Deildu.net. Eitt og hálft ár leið frá kæru þar til að rannsókn hófst og átta ár þar til að ætlaður eigandi var yfirheyrður.

Innlent
Fréttamynd

Myndbirtingar for­eldra geti skapað hættu

Umboðsmaður barna hefur fengið erindi á sitt borð þar sem börn spyrjast fyrir um eigin réttindi hvað varðar myndbirtingar foreldra af börnum sínum. Myndir geti verið nýttar í annarlegum tilgangi sem upphaflega voru birtar í góðri trú.

Innlent
Fréttamynd

Arion banki varar við svikaherferð

Arion banki varar við svikaherferð þar sem svikarar senda smáskilaboð sem virðast tengjast pakka eða sendingu. Slík skilaboð geta nú borist úr íslenskum símanúmerum.

Innlent
Fréttamynd

Telja inn­brot og um­ferðar­laga­brot mesta vanda­málið

Um tuttugu prósent íbúa á höfuðborgarsvæðinu telja innbrot vera mesta vandamálið í þeirra hverfi. Ef litið er til landsins alls telur um fjórðungur, eða 26,5 prósent, umferðarlagabrot mesta vandamálið. Þar kemur einnig fram að um 40 prósent telja í lagi að lögregla beiti rafbyssu á ungmenni sem sýna ofbeldishegðun og að aðeins 9,6 prósent tilkynntu kynferðisbrot til lögreglunnar. 

Innlent
Fréttamynd

Ekki klikka! Því það er enginn eins og Julian

Það er óhjákvæmilegt að straumurinn beri okkur með sér á hinni nýju árstíð. Nánar tiltekið fimmtu árstíðinni, eins og ég kýs að kalla hana, eða árstíð tilboða og óskalista. Íslendingar eru þekktir fyrir hjarðhegðun og elska flestir þessa nýju árstíð. Árstíðinni fylgir skuggi sem þarft er að varast – svik!

Skoðun
Fréttamynd

Æ fleiri falla fyrir svikum úr enn fleiri áttum

Tilfellum þar sem fólk fellur fyrir svikastarfsemi fer fjölgandi að sögn forstjóra netöryggissveitarinnar CERT-IS. Sveitinni hefur undanfarnar tvær vikur borist fjöldi tilkynninga um svokallaðar vefveiðar auk svika í gegnum símtöl þar sem óprúttnir aðilar beita fyrir sig íslenskum númerum.

Innlent
Fréttamynd

Til­efni til að varast svik á svörtum föstu­degi

Nú þegar tilboðsdagar á borð við svartan föstudag og stafrænan mánudag eru á næsta leyti er tilefni fyrir neytendur til að vera sérstaklega á varðbergi gagnvart svikatilraunum. Öryggissérfræðingur brýnir fyrir almenningi að smella ekki á tilboðshlekki sem berast með tölvupósti og minnir á að ef tilboð hljómar of gott til að vera satt, þá er það líklega grunsamlegt.

Neytendur
Fréttamynd

Vara við netsvikum í nafni Skattsins

Lögreglan á höfuðbogarsvæðinu varar við svokölluðum vefveiðum í nafni Skattsins. Embættinu hafa borist tilkynningar vegna málsins, að því er fram kemur í tilkynningu.

Innlent