Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Birgir Olgeirsson skrifar 31. júlí 2026 22:03 Agnes Ósk Marzellíusdóttir, lögreglufulltrúi í fjármálabrotadeild, segir mikilvægt að börn sem lenda í klóm netkúgara leiti strax til einhvers sem þau treysta eða lögreglu. Aðsend og Vísir/Getty Erlendir netkúgarar hótuðu að dreifa gervigreindarbúnu kynferðislegu myndefni af íslenskum unglingspilti ef hann greiddi þeim ekki tíu þúsund krónur. Kúgararnir komust í samband við hann eftir að hann samþykkti vinabeiðni á Discord. Pilturinn greiddi en hótanirnar héldu áfram.
Discord er samskiptaforrit þar sem notendur geta átt einkasamtöl eða rætt saman í hópum. Fréttastofa ræddi við móður piltsins sem óskaði nafnleyndar. Hún segir foreldrana hafa tekið eftir breyttri hegðun sonar síns og gengið á hann. Þá hafi hann brotnað niður og sagt þeim frá öllu. Málið var í kjölfarið tilkynnt lögreglu. Móðirin hefur einnig greint frá málinu á samfélagsmiðlum. Hún vill vara aðra foreldra við og ná til ungmenna sem kunna að vera í sömu stöðu en þora ekki að leita sér hjálpar. Myndefnið var ekki raunverulegt Agnes Ósk Marzellíusdóttir, lögreglufulltrúi í fjármálabrotadeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir tilkynningu um málið hafa borist í gegnum netbrotagátt lögreglunnar. „Því var tilkynnt að ef það myndi ekki greiða þá myndi myndbandi af því vera dreift. Myndbandi sem var gert með aðstoð gervigreindar og var ekki raunverulega af barninu. Í þessu felst kynferðisleg fjárkúgun,“ segir Agnes. Hún segir að öllum líkindum skipulögð brotasamtök standa að baki málinu, eins og flestum netbrotum. Þau leiti að einstaklingum sem hægt sé að kúga en brotin beinist ekki persónulega að tilteknu barni. „Þetta er ekki persónulegt gagnvart barni. Það eru veiðar í gangi og það er verið að reyna að sjá hverjum er hægt að ná.“ Traustið skiptir mestu Agnes hvetur foreldra til að vera á varðbergi gagnvart netnotkun barna sinna. Jafnframt þurfi þeir að byggja upp gott traust með börnunum sínum og eiga með þeim góðar samverustundir. Það geti orðið til þess að börnin treysti sér til að segja frá þegar eitthvað kemur upp á. Viðbrögð foreldra skipti þá miklu máli. Barnið sé brotaþoli og eigi ekki að fá skammir fyrir að hafa lent í klóm kúgara. Hún segir skiljanlegt að börn og ungmenni verði hrædd í slíkum aðstæðum. Þau séu hvött til að hafa sem fyrst samband við einhvern sem þau treysta eða tilkynna málið til lögreglu.
Lögreglumál Netglæpir Gervigreind Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Braut reglur þegar hann minntist Steins Stórfelldur niðurskurður fyrirhugaður í vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Sjá meira