
Samgöngur

Lof mér að keyra
Lög um leigubíla eru að fara að breytast.

Ekkert öngþveiti á göngugötum þó hreyfihamlaðir megi keyra þar
Bergur Þorri Benjamínsson, formaður Sjálfsbjargar, segir það sofandahátt hjá borginni að hafa ekki komið að athugasemdum um ný umferðarlög.

Flýta malbikun fyrir á fimmta hundrað milljóna
Vegagerðin ætlar að flýta viðhaldsverkefnum á borð við malbikun fyrir um 430 milljónir króna á árinu. Til stóð að farið yrði í verkefnin á næsta ári.

Hjólaþjófar óhræddir við að fara inn í hjólageymslur
Reiðhjólaþjófnaður hefur verið í umræðunni undanfarið en greint var frá því fyrr í mánuðinum að 245 hjólum hafi verið stolið það sem af er ári.

Vegagerðin kærir einnig ákvörðun Skipulagsstofnunar
Vegagerðin hefur ákveðið að kæra ákvörðun Skipulagsstofnunar um að fyrirhuguð breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes skuli háð mati á umhverfisáhrifum.

Segja veginn lífshættulegan og kæra ákvörðun Skipulagsstofnunar
Bæjarráð Akraness hefur falið bæjarstjóra að kæra ákvörðun Skipulagsstofnunar um að breikkun Vesturlandsvegar sé háð mati á umhverfisáhrifum.

Hætta af glæfraakstri ökuþóra í Norðurfirði
Ökumenn keyra langt yfir hámarkshraða bæði í Norðurfirði og á Djúpavík. Móðir á svæðinu segir glæfraakstur mikla slysahættu fyrir börn þar um slóðir og að nauðsynlegt sé að bregðast við. Oddviti Árneshrepps gekk strax í málið.

Reyna að finna millileið fyrir Reykjanesbraut við Straumsvík
Óvissa ríkir um framhald á breikkun Reykjanesbrautar framhjá Straumsvík vegna skipulagsbreytingar, sem gerð var fyrir fimmtán árum, þegar til stóð að stækka ÍSAL.

Víða slæmt ástand á vegum hálendisins
Skortur á viðhaldi og slæmt ástand á vegum hálendisins eru meðal afleiðinga utanvegaakstur. Þetta segir Ólafur Guðmundsson sem hefur kannað ástand vega á hálendinu fyrir sveitarfélög landsins.

Þórólfur enn undrandi og leggst yfir gögnin frá hæfnisnefnd
Þórólfur Árnason, forstjóri Samgöngustofu, undrast það hve langan tíma það hafi tekið fyrir hann að fá gögn í hendur sem hann kallaði eftir frá Samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytinu vegna skipunar Jóns Gunnars Jónssonar í hans stað.

245 hjólum stolið það sem af er ári
Umræða um hjólaþjófnað hefur færst í aukana hér á landi og telur Hörður Guðmundsson, hjólari og hugbúnaðarsérfræðingur, nauðsynlegt að koma upp gagnabanka og útbúa smáforrit með raðnúmerum hjóla til að auðvelt sé að koma þeim aftur til eigenda. Lögreglan segir mikilvægt að þjófnaðurinn sé tilkynntur strax.

Vesturlandsvegi lokað vegna malbikunarframkvæmda
Síðdegis í dag og fram til morguns er stefnt að því að fræsa og malbika akrein og hringtorg á Vesturlandsvegi við Álafossveg.

Búið að opna alla vegi á hálendinu
Allir vegir á hálendi Íslands teljast nú færir, samkvæmt nýjasta hálendiskorti Vegagerðarinnar, sem birt var í morgun. Dyngjufjallaleið og Gæsavatnaleið, norðan Vatnajökuls, voru síðastar til að opnast í ár.

Búið að opna nær alla hálendisvegi
Gæsavatnaleið og Dyngjufjallaleið, norðan Vatnajökuls, ásamt Stórasandi, norðan Langjökuls, eru einu hálendisvegirnir sem enn eru sýndir lokaðir á hálendiskorti Vegagerðarinnar.

Nauthólsvegur flöskuháls á háannatímum
Leiðakerfi Strætó tekur breytingum frá og með 18. ágúst næstkomandi. Þá mun leið 5 sem ekur frá Árbæ, hætti að keyra um Nauthólsveg þess í stað enda á BSÍ. Formaður samgöngu- og skipulagsráðs Reykjavíkur segir brúnna yfir Fossvog vera næsta skref til að bregðast við flöskuhálsinum sem þar myndast á háanna tímum.

Lögreglan myndaði brot 176 ökumanna á tveimur klukkustundum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur á tveimur dögum myndað brot 176 ökumanna sem óku of hratt um Hringbraut vestan við læk.

Aðeins einn býðst til að bæta veginn til Borgarfjarðar eystra
Aðeins eitt tilboð barst í endurbætur á 8,8 kílómetra löngum kafla Borgarfjarðarvegar um Vatnsskarð eystra en tilboðsfrestur Vegagerðarinnar rann út í gær.

Leggja til lengri gjaldskyldutíma og gjaldtöku á sunnudögum
Hingað til hefur gjaldskylda takmarkast við 9-18 virka daga og 10-16 laugardaga.

Ræðismaður Tyrklands á Íslandi orðinn aðstoðarhafnarstjóri
Gunnar Tryggvason rafmagnsverkfræðingur hefur verið ráðinn í starf aðstoðarhafnarstjóra Faxaflóahafna. Hann hefur störf 1. september n.k. Alls bárust 16 umsóknir um starfið en frá þessu er greint á vef Faxaflóahafna.

Nýja brúin yfir Jökulsá í Lóni tilbúin
Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar í Vík hefur lokið við smíði göngubrúar yfir Jökulsá í Lóni. Brúin eyðilagðist í aftakaveðri um síðustu áramót.

Rútubílstjórinn í slysinu við Kirkjubæjarklaustur lýsir mikilli pressu og álagi í stéttinni
Helgi Haraldsson, hópferðabílstjórinn sem fyrir helgi var dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir slysið í desember 2017 á Suðurlandsvegi vestur af Kirkjubæjarklaustri, slasaðist sjálfur alvarlega í þegar rútan valt. Slysið gjörbreytti lífi hans.

Kynnir áform um einkaframkvæmdir
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur kynnt drög að lagasetningu um aðkomu einkaaðila að framkvæmdum við Sundabraut og tvöföldun Hvalfjarðarganga.

Aðeins jarðgöng eða lágbrú koma til greina
Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps um Sundabraut á vegum ríkisins og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu þar sem nokkrir valkostir voru vegnir og metnir.

Ný tegund hraðamyndavéla á Grindavíkurvegi
Bæjarstjóri Grindavíkur bindur vonir við að myndavélaeftirlitið dragi úr hraða inn til bæjarins.

Rúmlega helmingur þátttakenda upplifir sig öruggan á hjóli í Reykjavík
Sigrún Birna Sigurðardóttir, samgöngu- og umhverfissálfræðingur, segir tölurnar jákvæðar og svipa til þess sem mældist í hinni miklu hjólreiðaborg Kaupmannahöfn þegar mælingar hófust þar.

Segir mörkin óljós milli ábyrgðar bílstjóra og rútufyrirtækja
Hann telur viðhald bifreiða oft ábótavant og bílstjórar ekki alltaf í stakk búnir til að fara yfir öll öryggisatriði.

Ekki í kortunum að bæta aðstæður vegna slökkvibíla
Svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Vesturlandi segir vel athugandi að Vegagerðin, í samráði við Skorradalshrepp, útbúi athafnasvæði, eða snúningsvæði fyrir slökkvilið og slökkvibíla á svæðinu, en að það sé ekki í kortunum eins og staðan sé núna.

Vegaframkvæmdir á Hringbraut aðfaranótt miðvikudags
Til stendur að vegaframkvæmdir verði á Hringbraut að kvöldi þriðjudags og aðfaranótt miðvikudags.

Vegagerðin mátti ekki víkja frá skilmálum útboðs Reykjavegar
Kærunefnd útboðsmála felldi úr gildi ákvörðun Vegagerðarinnar um að taka tilboði tveggja verktakafyrirtækja. Hún taldi Vegagerðina hafa vikið frá skilmálum sem settir voru um viðskiptasögu bjóðendanna.

Stöðug aukning í sölu rafhjóla
Talsmenn reiðhjólaverslananna Arnarins og Tri ehf. segja sölu rafmagnshjóla hafi aukist talsvert frá því í fyrra en ekki sé hægt að tala um sprengingu.