Orkumál

N1 Rafmagn endurgreiðir viðskiptavinum fyrir mismun á taxta frá upphafi
N1 Rafmagn hefur ákveðið að endurgreiða viðskiptavinum, sem komu til félagsins í gegn um þrautavaraleið stjórnvalda, þann mismun sem var á auglýstum taxta og þrautavarataxta frá upphafi.

Vogamenn æfir yfir frumvarpi Sjálfstæðismanna um Suðurnesjalínu
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur lagt fram frumvarp til að greiða fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2. Bæjarstjóri Voga segir málið fráleitt og telur að það myndi skaða traust sveitarstjórnarstigsins til Alþingis varanlega.

Umhverfisráðherra segir Íslendinga engan tíma mega missa
Umhverfisráðherra segir Íslendinga engan tíma mega missa til öflunar meiri orku til að geta staðið við markmið um orkuskipti. Olíubrennsla að undanförnu vegna skorts á umfram raforku þurrki út árangur rafknúinna bifreiða í loftslagsmálum frá árinu 2010.

Segja óásættanlegt að þurfa að kynda hús með olíu
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar segir óásættanlegt að brenna þurfi olíu til að kynda hús á Vestfjörðum. Bæjarráðið lýsir yfir áhyggjum af stöðu orkumála á Vestfjörðum.

Borð fyrir báru
Ísland er eitt auðugasta land í heimi af grænni orku. Við getum hins vegar framleitt mis mikið á milli ára. Við byggjum orkunýtinguna nefnilega á náttúrunni sem hefur sínar sveiflur. Sum ár rignir meira, og þá er meiri vatnsorka í boði.

Rafmagn fór af á Vestfjörðum vegna veðurs
Rafmagn fór víða af á Vestfjörðum um klukkan hálf tvö eftir hádegi. Norðan- og sunnanverðir Vestfirðir ganga nú á rafmagni frá varaaflsvélum og virkjunum.

Orkulaus orkuskipti
Stærsta verkefni samfélagsins næstu ára er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Ein af meginforsendum þess er að tryggja framgang orkuskipta í landi grænnar orku. Það er því ekki úr vegi að við stöldrum við þau mörk sem liggja milli ábyrgrar náttúrunýtingar og sjálfbærrar þróunar.

Hætta við frekari lokanir á heitu vatni
Veitur hafa hætt við að ráðast í frekari lokanir fyrir heitt vatn á höfuðborgarsvæðinu. Vel hefur gengið að koma framleiðslu á heitu vatni í gang en bilun kom upp í Nesjavallavirkjun fyrr í dag.

Loka fyrir heitt vatn í hluta Kópavogs og Garðabæjar vegna bilunar
Heildarframleiðslugeta á heitu vatni fyrir hitaveitu höfuðborgarsvæðisins er skert um 30% vegna bilunar í Nesjavallavirkjun. Engin framleiðsla er á vatni á Nesjavöllum eins og stendur.

Skerða afhendingu rafmagns eftir sprengingu í tengivirki á Nesjavöllum
Sprenging varð í tengivirki Landsnets á Nesjavöllum rétt fyrir klukkan sex í morgun með þeim afleiðingum að þremur af fjórum aflvélum Nesjavallavirkjunar sló út.

Vinstri grænir ekki á móti því að virkja meira
Vinstri grænir eru alls ekki á móti því að ráðist verði í frekari virkjanir á næstu árum. Þingflokksmaður segir að ljóst sé að afla þurfi „einhverrar orku“ til að sporna gegn yfirvofandi raforkuskorti.

Varar við orkuskorti og hvetur landsmenn til að spara rafmagn
Landsnet varaði við því í nýrri greiningu í dag að raforkuskortur yrði viðvarandi vandamál á Íslandi næstu árin ef ekki yrði brugðist skjótt við. Forstjórinn hvetur landsmenn til að spara rafmagn.

Valdníðsla
Nú berast fréttir af því að hópur alþingismanna hafi lagt fram frumvarp til að afnema skipulagsvaldið af sveitarfélögum á Suðurnesjum.

Góð orka inn í þjóðfélagið
Viðskiptavinir Orku náttúrunnar eru ánægðastir allra viðskiptavina þegar kemur að kaupum á rafmagni. Þetta sýna niðurstöður íslensku Ánægjuvogarinnar sem birtar voru fyrir helgi og er þetta þriðja árið í röð sem ánægja með okkar viðskiptahætti er þannig staðfest.

Skortir orku?
Þegar fram í sækir mun skorta raforku til þess að mæta stærstu áskorun samtímans; loftslagsbreytingum. Til þess að stemma stigu við þeim þurfum við m.a. að hraða orkuskiptum í samgöngum á landi, í lofti og haftengdri starfsemi. Góður gangur hefur verið í orkuskiptum í samgöngum þar sem Ísland er í öðru sæti á heimsvísu yfir hlutfall nýrra nýorkubíla.

Norsk stjórnvöld gefa út 53 ný olíuleitarleyfi
Norsk stjórnvöld hafa úthlutað 53 nýjum sérleyfum til leitar og vinnslu olíu á landgrunni Noregs. Á sama tíma er skýrt frá því að aldrei í sögunni hafi tekjur Norðmanna af olíu- og gasvinnslu verið eins miklar og á nýliðnu ári.

Ekki mættur í ráðuneytið til að sækja kaffi fyrir Guðlaug Þór
Steinar Ingi Kolbeins er nýr aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra. Steinar Ingi er 24 ára gamall Reykvíkingur, bráðungur að árum en hann bendir á að í ráðuneytinu sé einmitt málaflokkur unga fólksins og framtíðarinnar.

„Augljóslega er þetta ekki gott“
Forsætisráðherra segir stefnt að því að stækka ákveðnar virkjanir sem þegar eru starfandi á Íslandi. Innviðaráðherra segir svíða að orkubú Vestfjarða sé að kaupa olíu til kyndingar fyrir fleiri hundruð milljónir þar sem endurnýjanleg orka hefur verið skert.

Bein útsending: Útboðsþing Samtaka iðnaðarins
Útboðsþing Samtaka iðnaðarins fer fram í beinu streymi í dag á milli 13 og 15. Á þinginu kynna fulltrúar ellefu opinberra aðila fyrirhugaðar verklegar framkvæmdir á árinu og fæst því gott yfirlit yfir helstu útboð ársins.

Okrað á almenningi: Spurningarnar sem ráðherra verður að svara
Í gærkvöldi birtist tilkynning frá fyrirtækinu N1 Rafmagn (sem áður hét Íslensk orkumiðlun) þar sem neytendur eru beðnir afsökunar á rafmagnsokrinu sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum undanfarna daga.

Tryggvi Þór lætur af störfum sem forstjóri RARIK
Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri RARIK ohf. hefur óskað eftir því að láta af störfum. Hann verður þó áfram starfsmaður RARIK og starfa sem ráðgjafi stjórnar og nýs forstjóra og enn fremur í sérstökum verkefnum.

Flytjum út mengun
Það sló mig að lesa viðtal við formann Náttúruverndarsamtaka Íslands (NÍ) í Fréttablaðinu 18. Jan. þar sem hann finnur uppbyggingu áburðarverksmiðju á Íslandi allt til foráttu vegna kolefnislosunar frá slíkri starfsemi. Honum finnst fara betur á að einhverjir aðrir framleiði áburð til nota hér á landi og flytji um langan veg með tilheyrandi sótspori.

N1 Rafmagn biðst velvirðingar og endurgreiðir viðskiptavinum
N1 Rafmagn hefur ákveðið að selja alla raforku á sama verðtaxta til heimila frá og með 1. janúar 2022, hvort sem viðskiptavinir hafi skráð sig sjálfir í viðskipti eða komið í gegnum þrautavaraleið stjórnvalda.

Hafnar því alfarið að N1 sé að blekkja neytendur
Framkvæmdastjóri N1 hafnar því alfarið að viðskiptavinir séu beittir blekkingum í tengslum við þrautavaraleið á sölu raforku. Hann fagnar því að umræða eigi sér nú stað á raforkumarkaði og að fyrirkomulag þrautavaraleiðarinnar sé nú til skoðunar.

Viðskiptasiðferði N1 sturtað niður í holræsið
Í fréttum í gær var afhjúpað enn og aftur hvernig neytendur á Íslandi eru svívirðilega blekktir, allt til þess eins að fullnægja arðsemisgræðginni sem skekur fjölmörg stór fyrirtæki á Íslandi.

Með til skoðunar kvartanir vegna meintra blekkinga raforkusala
Orkustofnun er nú með til skoðunar kvartanir vegna meintra blekkinga raforkusala. Samkeppnisaðilar eru ósáttir við að eitt fyrirtæki fái þúsundir viðskiptavina á fölskum forsendum.

Um raforkusölu til neytenda
N1 tekur virkan þátt í samkeppni sem er í sölu rafmagns til íslenskra heimila og fyrirtækja og er stolt af því að leiða þá samkeppni með lægsta verði. Um leið er fyrirtækið í þeirri stöðu að hafa verið valið orkusali til þrautavara. Nokkur gagnrýni hefur verið á þá framkvæmd og þá helst frá samkeppnisfyrirtækjum í raforkusölu. Tilefni er til að skýra nokkra þætti sem þá sölu varðar.

„Ef þú gerir ekki neitt þá ferðu á hæsta rafmagnsverð Íslandssögunnar“
Framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar gagnrýnir harðlega að ekki sé virkt eftirlit með sölu á raforku í landinu og segir að svindlað sé á neytendum með núverandi fyrirkomulagi. Hún segir óvanalegt að ríkið geti ákveðið til lengri tíma við hvaða fyrirtæki fólk eigi í viðskiptum við og kallar eftir aukinni umræðu.

Okrað með aðstoð ríkisins
Hugsum okkur ungt par sem er að byrja að búa. Það flytur inn fullt tilhlökkunar að takast á við þau verkefni sem fylgja sjálfstæðu lífi.

Ólafur Teitur stýrir samskipta- og kynningarmálum Carbfix
Ólafur Teitur Guðnason hefur verið ráðinn til að stýra samskiptum og kynningarmálum Carbfix.