Sjávarútvegur
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 68 ›
Hver á kvótann? Samkvæmt þingmálaskrá átti að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um sjávarútveg (heildarlög) fyrir 18. mars í ár. Frumvarpið hefur sennilega ekki hlotið náð hjá ríkisstjórn því ekkert bólar á því enn. Enda mun Sjálfstæðisflokkurinn aldrei leyfa breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu sem þrengir að einhverju leyti að stórútgerðinni. Það höfum við séð hvað eftir annað og engin ástæða til að ætla að breyting verði þar á. Skoðun 3.4.2024 16:01
Hjón í nýsköpun: „Það er reyndar hún sem er Þjóðverjinn en ég Íslendingurinn“ „Svona hávaxin og ljóshærð, ég sá hana á fyrsta degi enda fór hún ekki framhjá neinum,“ segir Alexander Schepsky og skellihlær. Atvinnulíf 2.4.2024 07:00
Hámhorfið: Hvað eru hetjur hafsins að horfa á? Sunnudagar til sjónvarpsgláps segja sumir og gildir þá einu hvort það sé á landi eða sjó. Lífið á Vísi heldur áfram að taka púlsinn á fjölbreyttum hópi fólks til að heyra hvað það er að horfa á. Í dag er rætt við sjómenn en hetjur hafsins eru sannarlega með fjölbreyttan smekk á afþreyingarefni. Lífið 24.3.2024 12:31
LIVE fjárfesti fyrir 1,5 milljarð í First Water og fer með sex prósenta hlut Lífeyrissjóður verslunarmanna fjárfesti fyrir 1,5 milljarða króna með beinum hætti í landeldinu First Water þegar fiskeldið kláraði stórt hlutfjárútboð í fyrra og var þá verðmetið á liðlega 25 milljarða. Stjórnarformaður sjóðsins, næst stærsti lífeyrissjóður landsins, kallar eftir því að settur verði aukinn kraft í greiningu vænlegra innviðafjárfestinga svo hægt sé að virkja sem fyrst tækifærin sem bíða á því sviði. Innherji 22.3.2024 15:55
Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Væntingar um tugmilljarða loðnuvertíð eru fyrir bí. Loðnubrestur virðist staðreynd. Viðskipti innlent 21.3.2024 22:22
Sakar SKE um „íhlutun íhlutunnar vegna“ en sé ekki að gæta hagsmuna almennings Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar, gagnrýnir harðlega starfshætti Samkeppniseftirlitsins, sem rannsakar núna eignatengsl félagsins og Samherja, og spyr hvaða hagsmuni stofnunin er að verja hér á landi og hvaða samkeppni hún telur sig standa vörð um. Hann segir eftirlitið gera sjávarútvegsfélögum erfitt um vik á erlendum mörkuðum í samkeppni við risavaxna keppinauta samhliða því að íslensku fyrirtækin verða alltaf hlutfallslega minni og minni. Innherji 21.3.2024 15:22
Lönduðu eldsnemma í morgun þrátt fyrir eldgosið Áhöfn á Sturlu GK og landverkafólk útgerðafélagsins Þorbjarnar láta eldgosið sem er í námunda við Grindavík ekki á sig fá og lönduðu í Grindavíkurhöfn eldsnemma í morgun. Framkvæmdastjóri Þorbjarnar segir baráttuvilja í sínu fólki en það sé óskandi að náttúruöflin drægju sig í hlé. Innlent 21.3.2024 12:24
Bjarni Ólafsson AK í slipp á Akureyri Uppsjávarskipið Bjarni Ólafsson AK hélt áleiðis til Akureyrar frá Neskaupsstað í morgun. Skipið hefur legið við höfn Neskaupsstaðar síðastliðið ár en fer nú í slipp á Akureyri. Skipið var síðast notað á loðnuvertíðinni 2023. Innlent 20.3.2024 19:56
„Kvótasetning grásleppu snýst um að tryggja arðsemi“? Í frétt RÚV 16. mars um málefni grásleppuveiðimanna er vitnað í Þórarinn Inga Pétursson formann atvinnuveganefndar sem segir að kvótsetning gæti tryggt arðsemi í greininni og bendir á að bátum hafi fækkað mikið síðan 2011. Skoðun 18.3.2024 08:31
Gerir ráð fyrir löndun í Grindavík á morgun Hjálmar Hallgrímsson, formaður bæjarráðs Grindavíkur og lögreglumaður, segist ekki sjá ástæðu til annars en að halda sig við áætlanir um löndun inni í Grindavík á morgun. Hann skynji bjartsýni meðal bæjarbúa og segir bjarta framtíð framundan. Innlent 17.3.2024 12:41
Þorðu ekki að setja út á skipstjórann vegna þrúgandi andrúmslofts Þrúgandi vinnustaðamenning var ríkjandi á flutningaskipinu Wilson Skaw sem strandaði á Húnaflóa í apríl á síðasta ári. Áhöfn skipsins setti ekki spurningamerki við ákvarðanir skipstjórans sem hafði ekki áhuga á að leita aðstoðar hjá heimamönnum sem þekkja vel aðstæður á siglingarleiðinni. Innlent 16.3.2024 15:01
Halda enn í vonina um loðnuvertíð Fiskifræðingar Hafrannsóknastofnunar eru ekki búnir að gefa upp vonina um að nægilega stórar loðnutorfur gætu fundist þennan veturinn til að heimila veiðar. Þannig er fiskiskipinu Heimaey VE enn haldið í viðbragðsstöðu í Vestmannaeyjum til að sigla út til loðnumælinga berist sterkar vísbendingar. Viðskipti innlent 12.3.2024 10:31
Auknar veiðiheimildir til strandveiða Í liðinni viku mælti ég fyrir þingsályktunartillögu um um eflingu strandveiða með auknum aflaheimildum. Í tillögunni er lagt til að stækka félagslega hluta kerfisins úr 5,3% upp í 8,3%. Einnig er lagt til að endurskoðuð verði skipting aflamagns á milli aðgerða innan kerfisins og meiri veiðiheimildum beint til strandveiða og smærri útgerða. Skoðun 10.3.2024 13:30
„Menn trúðu því um tíma að hægt væri að semja við skrattann“ „Við búum á Þórsgötunni í húsi með fjórum íbúðum og erum þar öll nema dóttirin sem býr í Bandaríkjunum. Þar ætlum við að anda í eitt ár en ég skal alveg viðurkenna að það hefur bjargað okkur alveg sálfræðilega að geta verið svona saman fjölskyldan,“ segir Pétur Hafsteinn Pálsson framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík. Atvinnulíf 10.3.2024 08:01
Hroki og yfirlæti og hagsmunagæsla sjómanna Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi fann sig knúna til að geysast fram á ritvöllinn í aðsendri grein á Vísi.is 7. mars síðastliðinn og níða skóinn af Sjómannafélagi Íslands og starfsmönnum þess, með rakalausum hætti. Tilgangurinn er augljós, að ata félagið aur og gera lítið úr því, farið er í manninn en ekki boltann eins og SFS er þekkt fyrir. Skoðun 8.3.2024 16:02
Norskri loðnu landað á Eskifirði en íslenski flotinn enn kvótalaus Fyrstu loðnu ársins hefur verið landað á Eskifirði. Hún var þó ekki úr íslensku skipi heldur norsku sem veiddi hana í Barentshafi. Viðskipti innlent 7.3.2024 18:03
Sjómannafélagið stundi skemmdarstarfsemi Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir fyrirsvarsmenn Sjómannafélags Íslands ekki sýna neinn vilja til að semja um kaup og kjör fyrir hönd sinna félagsmanna. Samningar þeirra hafa verið lausir frá árinu 2019. Viðskipti innlent 7.3.2024 12:03
Sjómannafélag Íslands - stéttarfélag til málamynda? Öll stéttarfélög sjómanna hafa nú samþykkt kjarasamninga til langs tíma við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. Með hinum nýju samningum er kveðið á um töluverðar kjarabætur og aukin réttindi til handa félagsmönnum allra þessara stéttarfélaga. Skoðun 7.3.2024 11:47
Í viðbragðsstöðu vegna frétta af loðnugöngum Hafrannsóknastofnun hafa borist fréttir síðustu daga af loðnugöngum undan Suður- og Austurlandi en einnig út af Vestfjörðum og Húnaflóa. Fiskiskipið Heimaey VE er haft í viðbragðsstöðu í Vestmannaeyjum ef upplýsingar þykja benda til að stórar torfur séu á ferðinni. Viðskipti innlent 6.3.2024 14:00
Færeyingar fagna fiskflutningaþotu Boeing 757-fraktflutningaþota færeyska flugfélagsins FarCargo fékk hátíðlegar móttökur á Voga-flugvelli þegar hún lenti í fyrsta sinn í Færeyjum síðdegis í gær. Helstu ráðamenn eyjanna voru meðal gesta í móttökuathöfn, þeirra á meðal Aksel V. Johannessen, lögmaður Færeyja, og Høgni Hoydal utanríkis- og atvinnumálaráðherra, og fékk þotan heiðursbunu frá flugvallarslökkviliðinu þegar hún ók í hlað. Viðskipti erlent 6.3.2024 12:42
Íslensk strandmenning í brennidepli á Akranesi Íslensk strandmenning – staða hennar og framtíð er yfirskrift málþings sem Vitafélagið – íslensk strandmenning stendur fyrir á Akranesi eftir hádegi í dag, mánudag 4. mars. Þar verða fyrirlestrar, tónlist og umræður um stöðu og fjölbreytileika íslenskrar strandmenningar og því meðal annars velt upp hvort þessi menningararfur Íslendinga sé í hættu. Menning 4.3.2024 01:00
Arctic Sea Farm fær að rækta fleiri fiska í Ísafjarðardjúpi Matvælastofnun hefur veitt Arctic Sea Farm ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis í Ísafjarðardjúpi í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 5. júní og var frestur til að skila inn athugasemdum til 5. júlí 2023. Viðskipti innlent 29.2.2024 14:35
Loðnan við Vestfirði ekki nægilega mikil Loðnan sem fannst undan Patreksfirði í gær reyndist ekki vera í nægilegu magni til að unnt sé að heimila veiðar. Von um loðnuvertíð er því orðin veik og blasir loðnubrestur við þennan veturinn. Fulltrúar Hafrannsóknastofnunar funda með fulltrúum útgerðarinnar í dag um stöðuna. Viðskipti innlent 29.2.2024 11:55
Hafði lokið loðnuleit en snúið við til að kanna vestangöngu Fiskiskipið Heimaey VE var á siglingu af Vestfjarðamiðum í dag áleiðis til heimahafnar eftir að hafa lokið loðnuleit þegar ákvörðun var tekin um að snúa skipinu til frekari leitar. Ástæðan er vísbending sem barst síðdegis um loðnugöngu undan Patreksfirði. Viðskipti innlent 28.2.2024 21:03
Skoða enn hvort Samherji og Síldarvinnslan séu sama fyrirtækið Samkeppniseftirlitið hefur hafið athugun á því hvort samband Samherja og Síldarvinnslunnar sé svo náið að félögin jafngildi einni efnahagslegri einingu en ekki samstarfi sjálfstæðra keppinauta. Viðskipti innlent 28.2.2024 11:30
Lítill loðnubátur flutti 440 manns í einni ferð „Fyrst hélt ég að það væri að gjósa fyrir utan eyjuna og ég var bara að dást að þessu sköpunarverki, hvað það var fallegt. Þetta var náttúrulega ógnarfallegt og tilkomumikið. En svo þegar ég áttaði mig á að þetta var á eyjunni sjálfri, þá fór ég að skelfast. En í raun hafði maður ekki mikinn tíma til að hugsa um þetta, atburðarásin var svo hröð,“ segir Ragnheiður Einarsdóttir. Lífið 28.2.2024 07:01
Færeyingar fá núna raforku með virkjun sjávarstrauma Færeyingar eru byrjaðir að virkja sjávarföllin í samstarfi við sænskt þróunarfélag. Túrbína upp á 1,2 megavött er þegar komin í sjó og þykir reynslan það góð að farið er að undirbúa 200 megavatta raforkuframleiðslu úr sjávarstraumum við Færeyjar. Erlent 26.2.2024 21:00
Engar torfur fundist enn í loðnuleitinni Þriðja loðnuleitin frá áramótum, sem núna stendur yfir, hefur enn sem komið er ekki skilað neinni viðbót sem gefur tilefni til að ætla að grænt ljós verði gefið á loðnuveiðar þennan veturinn. Tvö leitarskip af þremur hafa lokið sinni yfirferð en það þriðja heldur áfram að leita næstu tvo til þrjá daga. Viðskipti innlent 26.2.2024 11:55
Kaldbakur festir kaup á Optimar Fjárfestingafélagið Kaldbakur, sem er í eigu tveggja stofnenda Samherja, hefur gengið frá kaupum á hátæknifyrirtækinu Optimar af þýska eignarhaldsfélaginu Haniel. Optimar framleiðir sjálfvirk fiskvinnslukerfi til notkunar um borð í fiskiskipum, á landi og í fiskeldi og er með viðskiptavini í meira en 30 löndum. Viðskipti innlent 26.2.2024 11:03
Segja að loðnan gæti verið að bíða eftir nýju tungli Starfsmenn Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum velta því nú fyrir sér hvort loðnan hafi ekki enn fundist vegna þess að hún bíði eftir nýju tungli. Það er byggt á gamalli japanskri sjómannaspeki. Viðskipti innlent 22.2.2024 15:42