

Cristiano Ronaldo er átrúnaðargoð Alejandros Garnacho og virðingin sem hann ber fyrir honum sást bersýnilega þegar táningurinn fagnaði sínu fyrsta marki fyrir Manchester United.
Jose Mourinho og lærisveinar hans í Roma tryggðu sér sæti í umspili um áframhald í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar með því að leggja Ludogorets að velli í lokaumferð riðlakeppninnar í kvöld. Þá vann West Ham sinn riðil með fullt hús stiga í Sambandsdeildinni.
Arsenal tryggði sér efsta sætið í A-riðli Evrópudeildarinnar þegar þeir lögðu FC Zurich á heimavelli sínum í Lundúnum í kvöld. Alfons Sampsted skoraði sjálfsmark þegar Bodö Glimt tapaði gegn PSV Eindhoven.
Lazio er úr leik í Evrópudeildinni í knattspyrnu en lokaumferð riðlakeppninnar var að ljúka í fjórum riðlum. Monaco tryggði sér hins vegar áfram með sigri á Rauðu Stjörnunni á heimavelli.
Manchester United vann 1-0 útisigur á Real Sociedad þegar liðin mættust í lokaumferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar nú í kvöld. Sigurinn dugir United þó ekki til að ná efsta sæti riðilsins og þarf liðið því að leika umspilsleik við lið úr Meistaradeildinni til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum.
Paul Scholes sakaði Antony um trúðslæti eftir að Brasilíumaðurinn ungi tók snúning með boltann, sem hann er þekktur fyrir, í 3-0 sigri Manchester United á Sheriff í Evrópudeildinni í fótbolta.
Manchester United vann öruggan 3-0 sigur er liðið tók á móti FC Sheriff í Evrópudeildinni í knattspyrnu í kvöld. Sigurinn þýðir að liðið er öruggt með sæti í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar og mætir Real Sociedad í hreinum úrslitaleik um efsta sæti E-riðils.
PSV vann nokkuð öruggan 2-0 sigur er liðið tók á móti Arsenal í næst seinustu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld. Í sama riðli þurfu Alfons Sampsted og félagar hans í Bodö/Glimt að sætta sig við 2-1 tap er liðið heimsótti FC Zürich.
UEFA hefur ákveðið að refsa hollenska knattspyrnufélaginu PSV Eindhoven með áhorfendabanni og sekt vegna óláta stuðningsmanna félagsins á heimavelli Arsenal í síðustu viku.
Á miðvikudagskvöld varð endanlega ljóst að Barcelona, stórveldið frá Katalóníu, kæmist ekki áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu karla í fótbolta. Um er að ræða mikið högg þar sem forráðamenn félagsins framkvæmdu hin ýmsu töfrabrögð í sumar til að koma liðinu aftur í fremstu röð, eða svo töldu þeir.
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, staðfesti á blaðamannafundi í dag að Cristiano Ronaldo yrði ekki refsað frekar vegna hegðunar sinnar í leiknum gegn Tottenham í síðustu viku.
Cristiano Ronaldo er byrjaður að æfa á ný með aðalliði Manchester United eftir að hafa verið settur í skammakrókinn fyrir fýlukastið sitt í Tottenham leiknum.
Arsenal tryggði sér sæti í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta í gærkvöld með 1-0 sigri gegn PSV í Lundúnum. Granit Xhaka skoraði sigurmarkið á 70. mínútu.
Granit Xhaka skoraði eina mark leiksins er Arsenal vann sterkan 1-0 sigur gegn hollenska liðinu PSV Eindhoven í toppslag A-riðilsins í Evrópudeildinni í fótbolta í kvöld. Sigurinn tryggði Arsenal sæti í útsláttarkeppninni og fór langleiðina með að tryggja liðinu sigur í riðlinum.
Francis Uzoho sló í gegn með frammistöðu sinni í marki Omonia Nicosia á Old Trafford í gærkvöldi en þessi 23 ára gamli markvörður hefur stolið fyrirsögnunum eftir leikinn þrátt fyrir tap kýpverska liðsins.
Heil umferð fór fram í Evrópudeildinni í fótbolta í kvöld. Ensku liðin Arsenal og Manchester United unnu nauma sigra, lærisveinar José Mourinho í Roma eru í basli og öll lið F-riðils eru með fimm stig að loknum fjórum leikjum.
Manchester United vann eins nauman sigur og mögulegt er þegar Omonia Nicosia frá Kýpur heimsótti Old Trafford í kvöld. Lokatölur 1-0 þökk sé marki Scott McTominay í uppbótartíma þá á Man Utd enn möguleika á að vinna E-riðil.
Bukayo Saka skoraði eina mark Arsenal í naumum 1-0 útisigri á Bodø/Glimt í Evrópudeildinni í fótbolta. Alfons Sampsted lék allan leikinn í hægri bakverði Noregsmeistaranna.
Alfons Sampsted og félagar í Bodö/Glimt taka í kvöld á móti toppliði ensku úrvalsdeildarinnar þegar Arsenal liðið kemur í heimsókn norður til Bodö.
Gærkvöldið var ekki gott kvöld fyrir ítalska félagið Roma sem tapaði þá 2-1 á móti spænska félaginu Real Betis í Evrópudeildinni. Það var þó ekki það eina sem pirraði Rómverja í kringum leikinn í gær.
Arsenal vann öruggan 3-0 sigur er liðið tók á móti Alfons Sampsted og félögum hans í norska meistaraliðinu Bodø/Glimt í Evrópudeild UEFA í kvöld.
Manchester United vann mikilvægan 2-3 sigur er liðið heimsótti kýpverska liðið Omonia í riðlakeppni Evrópdeildar UEFA í kvöld.
Það er nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag þar sem sýndar verða meðal annars beinar útsendingar frá leikjum í Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni í fótbolta, og úr fyrstu umferð Subway-deildar karla í körfubolta.
Aleksander Ceferin, forseti evrópska knattspyrnusambandsins UEFA, barðist fyrir því á sínum tíma að fá Sambandsdeildina samþykkta, deild sem varð svo vinsælli en Evrópudeildin, samkvæmt honum sjálfum.
Finnlandsmeistarar HJK Helsinki hafa verið sektaðir um 18 þúsund evrur vegna óláta áhorfenda liðsins í 2-0 tapi þess fyrir Real Betis frá Spáni í fyrstu umferð í riðlakeppni Evrópudeildarinnar fyrr í þessum mánuði.
Manchester United vann 2-0 útisigur á Sheriff Tiraspol ytra í Evrópudeildinni á fimmtudaginn var. Fjöldi leikmanna gat hins vegar ekki mætt til æfinga á föstudegi né laugardegi vegna matareitrunar.
Alfons Sampsted og liðsfélagar hans í norska meistaraliðinu Bodø/Glimt hafa nú unnið 14 Evrópuleiki í röð í annað hvort Evrópu- eða Sambandsdeild Evrópu. Sigurgangan hófst þann 29. júlí 2021 er liðið lagði þáverandi Íslandsmeistara Vals 3-0.
Landsliðsmaðurinn Alfons Sampsted hóf leik í hægri bakverði þegar Bodø/Glimt tók á móti Zürich í A-riðli Evrópudeildarinnar í kvöld. Lék hann allan leikinn.
Manchester United er komið á blað í Evrópudeildinni í fótbolta þökk sé 2-0 sigri ytra á Sheriff Tiraspol. Jadon Sancho og Cristiano Ronaldo skoruðu mörk liðsins í fyrri hálfleik.
Leik Arsenal við PSV Eindhoven í Evrópudeildinni í fótbolta hefur verið frestað sökum andláts Elísabetar II Bretadrottningar. Óvissa er um leiki komandi helgar í ensku deildarkeppnunum.